Faxi - 01.12.2021, Qupperneq 24
24 FAXI
E lsa Pálsdóttir leikskólakennari og
kraftlyftingakona úr Garðinum hefur
sýnt og sannað að það er aldrei of seint að
setja sér markmið og að aldur er engin fyr-
irstaða þegar hefja á keppni í íþróttagrein.
Hún hefur á árinu bæði sett Evrópumet og
heimsmet í klassískum lyftingum og er á
leið á fleiri mót. Hún er af kraftakyni komin
í báða leggi og komst að því fyrir stuttu síð-
an að hún vildi einbeita sér að því sem hún
er best í, styrknum og kraftinum.
Svanhildur Eiríksdóttir settist niður með
kynsystur sinni og sveitunga úr Garðinum
til þess að ræða feril hennar í klassískum
lyftingum og hvernig það kom til að hún fór
að keppa af krafti, þá komin fast að sextugu.
„Ég varð fimmtug í október 2010 og í janúar
2011 ákveð ég að taka þátt í Þrekmótaröðinni,
sem er röð móta sem reyna á þrek, styrk og
þol keppenda. Við vorum nokkrar „kellur“ á
mínum aldri sem langaði til að prufa að setja
saman lið, fimm konur sem allar höfðum
verið í líkamsrækt. Við tókum sem sagt þátt í
einu móti, stóðum okkur ágætlega en gerðum
svo ekkert meira með þetta. Það var líka annar
hópur héðan sem tók þátt í þessu móti, „Dirty
nine“ og í framhaldi af mótinu pikkuðu þær
í mig og ég fór að æfa og taka þátt í mótum
með þeim. Við urðum þá „Fimm fræknar,“
segir Elsa.
Elsa þurfti að skora B-manneskjuna í
sér á hólm því æfingafélagarnir fræknu
æfðu alltaf á morgnana og sú tilhugsun
var erfið. „Ég hugsaði með mér, ef ég ætla
að fara að keppa með þeim, þá tek ég að
sjálfsögðu æfingar með þeim, þó það sé enn
nótt hjá mér. Vekjaraklukkan var því stillt
á 5:15 frá janúar 2011, alla virka daga. Við
vorum í fjölbreyttum æfingum, í Crossfit
og Bootcamp og alla vega æfingum með
okkar eigin líkamsþyngd, ásamt hlaupi. Við
kepptum saman í rúm sjö ár og fórum m.a.
til Bretlands og Skotlands, tókum þátt í
nokkrum mótum þar. Erlendis eru keppn-
irnar einstaklingskeppnir, en bæði liðamót
og einstaklingskeppnir á Íslandi. Ég tók
yfirleitt eingöngu þátt í liðakeppnunum hér
heima.“
Hvernig varst þú að standa þig
í einstaklingskeppnunum?
„Bara ágætlega“, segir Elsa af hógværð.
„Auðvitað var maður búinn að æfa helling
fyrir þau. Það sem lá best fyrir mér voru
æfingar með þyngdir, úthaldslega er ég
ekkert mjög sterk. Þegar við vorum í
liðakeppnunum hér heima þá voru svo
fjölbreyttar æfingar að yfirleitt var hægt að
skipta keppendum niður eftir styrkleikum
hvers og eins.“
-Elsa Pálsdóttir Evrópu- og heimsmeistari í klassískum lyftingum segir árið í ár
hafa þróast með allt öðrum hætti en hún átti vona á. Óvissuferðin sé vissulega
óvænt en um leið mjög skemmtileg upplifun.
„Ég er bara á
einhverri óvissuleið“
Elsa gefur sig alla í hnébeygjuna og á
skjánum má lesa að þyngdin er 117,5 kg,
sem gaman er að geta að var fyrsta lyfta
Elsu á Evrópumótinu og fyrsta heimsmetið.
Ljósm. European Powerlifting Federation