Faxi - 01.12.2021, Qupperneq 26
26 FAXI
örvaði hjartsláttinn nokkuð. Er ég að fara
til útlanda að keppa? Það var ekki það sem
ég hafði verið að stefna að en þegar ég fór
að hugsa þetta betur þá fannst mér þetta
ótrúlega spennandi og mikið tækifæri, svo
ég ákvað að skella mér. Og ég fann þjálfara
sem var til í að vinna með mér og hann tók
tæknina alveg í gegn og við erum enn að
vinna í henni því hún hefur svo mikið að
segja með þyngdirnar. Því betri tækni, þeim
mun léttari verður lyftan.“
Þjálfari Elsu heitir Kristleifur Andrésson
og er með mikla reynsuí lyftingum. Hann
hittir hún þrisvar til fjórum sinnum í viku
til að vinna í tækninni. Eftir að Elsa fór að
vinna með Kristleifi gat hún aftur hleypt
B-manneskjunni að því æfingarnar fara nú
fram síðdegis. Það gefur betra svigrúm upp
á tímastjórnunina því á morgnana heldur
Elsa til vinnu í Stapaskóla og vill ekki þurfa
að hætta í miðri æfingu.
Áður hafði Elsa starfað í Reykjavík og tók
þá æfingar einu sinni í viku með Kraftlyft-
ingafélagi Kópavogs og þjálfara sem hún
hafði aðgang að þar. „Það hjálpaði mér
ótrúlega mikið á fyrstu stigum, þjálfaði mig
m.a. í því að keppa á mótum.“ Þegar heims-
faraldurinn reið yfir fannst Elsu ekki rétt að
vera að fara á milli tveggja stöðva svo hún
flutti sig alfarið suður. Þá hitti hún Kristleif.
Elsa valdi einnig að keppa fyrir hönd Massa
kraftlyftingafélags þegar boð á fyrsta mótið
kom, enda í hennar heimabæ. „Mér fannst
það aldrei spurning.“
Elsa segist ekki lengur hafa tölu á þeim
bikar- og Íslandsmótum sem hún hafi keppt
í hvað þá titlunum frá þeim mótum, þeir
séu komnir eitthvað á fimmta tug.
Gaf allt í þetta
Fyrsta mót Elsu á erlendri grundu var
Evrópumót í Tékklandi í júlí á þessu ári.
Þar gekk henni ótrúlega vel, setti fimm
heimsmet og um leið Evrópumet. „Ég setti
heimsmet strax í fyrstu tilraun í hnébeygju,
þannig að önnur lyftan var aftur heimsmet
því ég bætti mig og enn í þriðju tilraun-
inni. Þess vegna teljast þetta svona mörg
heimsmet. Svo setti ég heimsmet í rétt-
stöðunni og heimsmet fyrir samanlagðan
árangjur, þ.e. samanlagða þyngd.“
Hvað erum við að tala um mikla
þyngdaraukningu á milli tilrauna?
„Það er ofboðslega misjafnt. Yfirleitt er
talað um að í fyrstu lyftu verður þú að taka
þyngd sem þú ert alveg viss um að geta
tekið svo þú náir að fá eina gilda lyftu í
öllum greinum, þannig eru mótareglurnar.
Ein tilraun af þeim þremur sem maður
fær verður að vera gild, annars er mótið
ónýtt. Svo má ekki lækka sig. En þetta
getur hlaupið á 10 kílóa þyngingu, jafnvel
meira, nema kannski í bekkpressunni, þar
er yfirleitt minni þynging á milli tilrauna.
Þetta er oft svolítið stressandi, því þú vilt
taka örugga þyngd án þess að vera að taka
alltof létt. Í annarri tilraun fer maður oft
nálægt sínu besta og í þriðju tilraun reynir
maður að bæta sitt besta. Oftast er minna
á milli annarrar og þriðju lyftu. Það hefur
yfirleitt gengið hjá mér en ef það er mikil
samkeppni og þú ert að keppa við einhvern
sem er á sama stað og þú, þá hefur maður
tilhneigingu til að hækka sig meira og tekur
meiri áhættu.“
Eftir gott gengi á Evrópumótinu var Elsu
boðið að keppa á heimsmeistaramótinu
í klassískum lyftingum sem haldið var í
Svíþjóð í september sl. Elsa sló til enda
þótti henni kjörið að fylgja eftir góðum
árangri á Evrópumótinu tveimur mánuðum
áður. „Þar voru fleiri keppendur og sterkari
einstaklingar, en markmið mitt var að bæta
heimsmetin og það gekk eftir, þó það hafi
ekki verið þrautalaust. Ég gerði bæði miðju-
lyftuna í hnébeygjunni og réttstöðulyftunni
ógilda. Í hnébeygjunni var ég grunlaus um
að ég hafði gert ógilt, taldi mig hafa gert allt
rétt, en þeir mátu það svo að ég hafi ekki
farið nógu neðarlega. Þetta er líka sálfræði-
legt. Þá tek ég sömu þyngd aftur. Í réttstöð-
unni, sem er alltaf síðasta greinin á mótum,
lyfti ég upp fyrstu lyftunni, en í annarri
lyftunni þá er stöngin svo níðþung að ég
bara næ henni ekki upp. Það var tilraun til
að bæta heimsmetið og ég hugsaði, ég læt
þetta ekki gerast. Ég þurfti að fara í andlega
vinnu í pásunni á milli lyfta og svo bara gaf
ég allt í þetta. Það bjargaði mótinu að sú
lyfta fór upp, ég hefði aldrei verið sátt við
þennan árangur ef sú lyfta hefði ekki farið
upp.“ Það má heyra að það þarf stáltaugar
í þessa íþrótt. Þarna setti Elsa heimsmet í
hnébeygju og réttstöðulyftu og samanlagðri
þyngd.
Árangurinn byggir alltaf á því
hvað þú leggir í þetta
Hvað varðar andlegu hliðina segist Elsa
vera búin að fara margoft yfir keppnina í
huganum þegar að móti kemur, segir mælt
með því að keppendur geri það og í raun
mjög mikilvægt. „Þegar maður er búinn
Elsa að taka á því í réttstöðulyftu á Evrópumótinu. Ljósm. European Powerlifting Federation
Verðlaunapeningarnir frá heimsmeistara-
mótinu í Svíþjóð í september sl. Eleiko er
nafnið á stærsta styrktaraðila keppninnar.
Ljósm. Svanhildur Eiríks
Bikararnir frá Evrópumótinu í Tékklandi
í sumar. Ljósm. Svanhildur Eiríks
Verðlaunapeningarnir sem Elsu hlotnuðust
á Evrópumótinu í Tékklandi í júlí í sumar.
Ljósm. Svanhildur Eiríks