Faxi

Árgangur

Faxi - 01.12.2021, Síða 33

Faxi - 01.12.2021, Síða 33
FAXI 33 hraunið renna niður í Merardali. Kvöldin á „Gónhóli” eru ógleymanleg bæði þegar 6 gígar voru virkir og dældu af krafti í hraun- fljótið stóra niður í Merardali og þegar gígurinn var orðinn stór og gaus reglulega af miklum krafti svo maður fann hitann skella á sér. Svo þegar Gónhóll innilokaðist af hrauni og varð að óbrennishólma þá var haldið upp á á Langahrygg og Stóra Hrút til að upplifa nýtt sjónarhorn yfir eldstöðvarnar og hraunið sem þá var komið niður í Nátthaga. Alltaf gaman að fara upp að hrauninu en á eftir að fara hringinn í kringum eldstöðv- arnar allar – það verður gert. Nú á aðventunni er gosinu ekki lok- ið formlega þótt ró hafi verið yfir Geldingadölum síðan snemma í haust. Gígbarmurinn er kominn í 334 metra hæð og hraunið úr honum mælist 150 milljónir rúmmetrar og flatarmálið 4,85 ferkílómetr- ar, samkvæmt Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands. Til samanburðar má geta að Gríms- ey er 5.3 ferkílómetrar. Þrátt fyrir að uppstreymi hafi hætt úr gígnum um miðjan september þá hefur orðið nokkurra metra þykknun á hrauninu í sunnanverðum Geldingadölum og niður í framanverðan Nátthaga. Sléttan í hrauninu vestan gígsins, nyrst í Geldingadölum, hefur sigið um 5-7 metra. Rúmmál þess efnis sem horfið hefur úr norðurenda Geldingadala er álíka mikið og það rúmmál sem bæst hefur við í suðurhlutanum og niðri í Nátthaga. Þarna hefur því orðið tilfærsla innan hraunsins. Eldstöðvarnar eru því enn kvikar og ber að umgangast áfram af fullri virðingu. Seigla Suðurnesjamanna Af gosinu í Geldingadölum má ýmsan lærdóm draga. Það var mikilvægt að jarð- vísindamenn gátu í aðdragandanum spáð fyrir hvar kvikan myndi koma upp – ef hún myndi koma upp. Mikið happ var fólgið í því hvar kvikan braust upp, fjarri mikil- vægum innviðum og að gosið var á landi en ekki í sjó en því hefði fylgt miklu meira öskufall. Því varð lítil sem engin röskun á flugi um alþjóðaflugvöllinn okkar og það sljákkaði í gosinu áður en innviðir eins og lagnir og vegir lentu í alvarlegri hættu. Haldið var af skynsemi utan um aðgengi almennings að eldstöðvunum og umferð stýrt um svæðið í stað þess að loka því. Björgunarsveitir lyftu grettistaki með þrot- lausri vinnu sem enn stendur yfir með því að útbúa greiðfærar leiðir að eldstöðvunum og ekki síst vakta svæðið og aðstoða þá fjölmörgu sem þurft hafa þess við. Þrotlaus vinna björgunarsveitarfólks verður seint fullþökkuð. Þá brugðust bæjaryfirvöld og íbúar Grindavíkur við af æðruleysi og gengu í verkin, mátu stöðuna, héldu stefnu en endurskoðuðu hana reglulega og brugð- ust við því sem upp á kom. Að mínu mati sýndu viðbrögð Suðurnesja- manna við gosinu í Geldingadölum seigluna og kraftinn sem í okkur býr. Við höfum lifað með náttúrunni í árþúsund – nýtt okkur kostina og gæðin sem henni fylgja og unnið með ókostina, af ákveðnu æðruleysi. Nú þegar þetta er ritað í byrjun aðventu er allt með kyrrum kjörum, engin kvika komið upp frá 19. september, óvissustigi verið aflýst og enginn gosmökkur hefur sést yfir Fagradalsfjallinu lengi. Enn má þó sjá skýr merki hitans undir niðri í Geldingadölum í vetrarstillunni. Allir eldfjallafræðingar spá því að nú sé hafið nýtt eldsumbrotatímabil á Reykjanesinu – það síðasta varði í um 300 ár. Suðurnesjamenn varpa öndinni en eru sem fyrr viðbúnir hverju sem á dynur. Eysteinn Eyjólfsson Heimildir www.visitreykjanes.is https://jardvis.hi.is/eldgos_i_fagradalsfjalli Hraunfljótið sígur niður í Merardali. Ljósm. Eysteinn Eyjólfsson Útsýnið eitt maíkvöldið af Gónhóli. Ljósm. Eysteinn Eyjólfsson

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.