Faxi - 01.12.2021, Síða 42
42 FAXI
Jóhann Friðrik Friðriksson
- Framsóknarflokki
Hvaða hagsmunamál er brýnast að
hljóti framgang fyrir Reykjanesið á
þessu kjörtímabili?
Stærsta hagsmunamálið til skemmri tíma
felst í fjölgun starfa. Atvinnuleysi er enn
hæst á Reykjanesi á landsvísu og því mik-
ilvægt að allir leggist á eitt í þeim efnum.
Það felast mikil tækifæri í orkuskiptum,
nýsköpun og uppbyggingu í tengslum við
hringrásarhagkerfið og umhverfisvænar
lausnir. Orkuskipti í flugi eru nauðsynleg og
þar eru Suðurnesin í lykilstöðu. Atvinnu-
tækifæri þurfa að vera fjölbreyttari og góð
samvinna ríkis og sveitarfélaga getur skapað
öfluga umgjörð fyrir frekari nýsköpun og
uppbyggingu til lengri tíma.
Hverju munt þú helst beita þér fyrir á
þessu kjörtímabili?
Ég mun fyrst og fremst beita mér fyrir
atvinnumálum og heilbrigðismálum og
því fagnaðarefni að Framsókn hafi tekið
við þeim málaflokki. Þar er verk að vinna.
Fjölga þarf heilsugæslum, breyta þjónustu
þeirra í heildrænni nálgun á heilsufar
íbúa og tryggja jafna þjónustu um landið.
Suðurnesin hafa setið eftir og því mikil-
vægt að skóflustunga verði tekin að nýrri
heilsugæslu í Innri-Njarðvík sem fyrst
og aðgengi aukið. Nú þegar hefur verið
auglýst eftir bráðabirgðahúsnæði til leigu
undir heilsugæslu en með réttu ættu þrjár
heilsugæslur að vera á Suðurnesjum. Ekkert
er mikilvægara en heilsan okkar og íslenskt
heilbrigðiskerfi verður að taka mið af öldr-
un þjóðarinnar og mikilvægi heilsueflingar
og forvarna.
Hversu líklegt finnst þér að stefnumál
og áherslur þíns flokks fái framgang á
kjörtímabilinu?
Ég er mjög bjartsýnn á að áherslur Fram-
sóknar nái fram að ganga. Flokkurinn er
klárlega sigurvegari þessara kosninga og
bætti flokkurinn við sig verulegu fylgi í
Suðurkjördæmi. Ég er mjög þakklátur fyrir
þann stuðning og sé áherslur okkar skína
í gegnum nýjan stjórnarsáttmála. Sem fyrr
mun ég vinna skipulega að því að bæta hag
íbúa hér á svæðinu og jafna aðstöðumun
þeirra. Verkefnin eru fjölmörg og tækifærin
hér gríðarleg spennandi. Við getum horft
bjartsýn til framtíðar.
Oddný Harðardóttir
– Samfylkingu
Sterkari Suðurnes!
Á Suðurnesjum verður að styrkja innviði
til að taka á vanrækslu ríkisins undanfarin
ár og aukið álag, einkum á heilsugæslu og
lögreglu. Til að takast á við nýjar áskoranir
á vinnumarkaði þarf að efla menntastofnan-
ir á svæðinu.
Suðurnesjamenn hafa bent á það oft og
of lengi að heilbrigðisþjónustuna á svæðinu
verði að bæta, en talað fyrir daufum eyrum.
Fólkið sem þarf á þjónustunni að halda
finnur á eigin skinni hversu ófullnægjandi
hún er. Biðtíminn er langur, engir heimil-
islæknar, húsakostur þröngur og takmark-
aðar fjárveitingar valda því að skortur er á
heilbrigðisstarfsfólki. Við þetta bætist að
sum störf er erfitt að manna vegna þess að
fagfólk sækir ekki um stöðurnar.
Okkar góða heilbrigðisstarfsfólk segir að
margir í þeirra röðum séu að bugast undan
álagi en fjármálaráðherrann segir þeim bara
að hlaupa hraðar. Skilningsleysi á starfs-
aðstöðu heilbrigðisstarfsfólks og þörfum
sjúklinga er óþolandi.
Nær stefna Samfylkingarinnar fram að
ganga?
Ég sem þingmaður kjördæmisins og
allur þingflokkur Samfylkingarinnar mun
leggjast á árarnar til að vinna stefnumálum
Samfylkingarinnar – jafnaðarmannaflokks
Íslands framgang. Ríkisstjórn og stjórnar-
flokkarnir munu því fá kröftugt aðhald frá
þingmönnum Samfylkingarinnar. Ég hef
saknað þess á undanförnum árum að fá ekki
meiri stuðning frá öðrum þingmönnum
Suðurkjördæmis við tillögur mínar fyrir
Suðurnes en auðvitað er það stjórnar-
meirihlutinn sem ræður.
Sérstakar áherslur Samfylkingarinnar fyr-
ir Suðurnes fyrir næsta kjörtímabil hafa
legið fyrir og eru þessar:
Heilbrigðisþjónusta fyrir alla
Til að mæta öllum íbúum og tryggja góða
heilbrigðisþjónustu á Suðunesjum þarf að
stórauka fjármagn til Heilbrigðisstofnunar
Suðurnesja, bæta húsnæði og starfsaðstöðu,
styrkja stofnunina faglega og fjölga heil-
brigðisstarfsfólki til muna.
• Ný heilsugæslustöð í Reykjanesbæ taki
til starfa strax á næsta ári og tímasett
og fjármögnuð áætlun unnin fyrir
heilsugæslustöð í Suðurnesjabæ. Náms-
plássum fjölgað fyrir hjúkrunar- og
læknanema.
• Félagsþjónusta og heilsugæsla vinni
saman með skipulögðum hætti í öllum
sveitarfélögunum. Dagdvalarrýmum
og hjúkrunarrýmum fyrir eldra fólk
fjölgað. Öll þjónusta við eldra fólk verði
markvissari og einstaklingsmiðuð.
Fjölbreyttari atvinnutækifæri
Gáttin inn í landið er um alþjóðaflugvöll á
Suðurnesjum og nánast allir erlendir ferða-
menn fara þar um. Tryggja þarf lögreglunni
og viðbragðssveitum fjármagn til að sinna
auknum verkefnum. Ferðaþjónusta og
sjávarútvegur eru öflug á svæðinu en fleiri
stoðum þarf að renna undir atvinnulífið.
• Bæta aðstöðu á vinsælum ferðamanna-
stöðum og fjölga viðkomustöðum með
betra aðgengi.
• Efla nýsköpun og veita þróunarstyrki
til sprotafyrirtækja á sviði líftækni,
hugverkaiðnaðar og framleiðslu heilsu-
varnings og matvæla. Fjölga störfum án
staðsetningar.
• Efla listnám og fjölga störfum í menn-
ingu og skapandi greinum. Námsfram-
boð og aðgengi að námi verði bætt með
stuðningi við menntastofnanir.
Jóhann Friðrik Friðriksson
Oddný Harðardóttir