Faxi - 01.12.2021, Page 43
FAXI 43
• Efla lögregluembættið. Fjölga lögreglu-
mönnum og bæta starfsaðstöðu þeirra.
Flytja Landhelgisgæsluna til Suðurnesja.
• Efla verknám og nýsköpunargreinar í
Fjölbrautaskóla Suðurnesja, Keili og
Fisktækniskólanum og stuðning við
stofnanir og fyrirtæki í gegnum Miðstöð
símenntunar á Suðurnesjum.
Samgöngu- og loflagsmál
Ljúka þarf tvöföldun Reykjanesbrautar sem
fyrst og auka samvinnu Vegagerðarinnar og
sveitarfélaga um lagningu göngu- og hjóla-
stíga. Styrkja flutningsgetu rafmagns með
öflugri Suðurnesjalínu.
• Efla og styrkja Keflavíkurflugvöll sem
umhverfislega, félagslega og efnahags-
lega sjálfbæra miðstöð farþegaflugs í
Norður-Atlandshafi. Í ljósi eldsumbrot-
anna við Fagradalsfjall og mögulegs
vatnsverndarsvæðis þarf að leggja af
öll áform um byggingu flugvallar í
Hvassahrauni og meta Keflavíkurflug-
völl sem kost fyrir innanlandsflug.
• Hefja undirbúning að Keflavíkurlínu,
grænni tengingu milli Reykjavíkur og
Keflavíkurflugvallar.
• Ýta undir nýsköpun í umhverfismálum
og möguleika á að skapa verðmæti úr
sorpi. Styrkja fráveituframkvæmdir
sveitarfélaga og tilraunir með lífrænar
rotþrær.
Samfylkingin setur fjölskylduna í forgang
með óskertum barnabótum að meðallaun-
um, bættum kjörum eldra fólks og öryrkja
og aðgerðum í húsnæðismálum. Öflugra
heilbrigðiskerfi er sérstakt áherslumál ásamt
því að renna fleiri stoðum undir atvinnu-
lífið, ráðast í kröftugar aðgerðir í lofts-
lagsmálum, setja nýja stjórnarskrá aftur á
dagskrá ásamt auðlindarákvæði sem ver hag
þjóðarinnar og þjóðaratkvæðagreiðslu um
umsókn um aðild að ESB.
Vilhjálmur Árnason
- Sjálfstæðisflokki
Hvaða hagsmunamál er brýnast að
hljóti framgang fyrir Reykjanesið á
þessu kjörtímabili?
Reykjanesið er svæði tækifæranna í landi
tækifæranna. Framtíðin býður upp á fjölda
möguleika á uppbyggingu á fjölbreyttu
og öflugu atvinnulífi, sem mun styðja við
okkar öfluga samfélag. Fjölbreytt, öflugt
nýsköpunardrifið atvinnulíf er það mikil-
vægasta sem Reykjanesið þarf á að halda til
að draga úr því hversu viðkvæm við erum
fyrir öllum þeim hagsveiflum sem koma. Þá
er ekki gott að einstaka fyrirtæki geti haft of
mikil áhrif á svæðið í heild sinni.
Það er því gríðarlega mikilvægt að
grunnþjónusta- og grunninnviðir byggist
upp og styrkist verulega hér á svæðinu.
Fjölga þarf heilsugæslustöðvum og auka
aðgengi að heilbrigðisþjónustu, tryggja fjöl-
breytta menntun ásamt því að byggja upp
grunninnviði eins og dreifikerfi raforku,
vegi, hafnir og flugvöllinn. Þetta verða
áfram stóru verkefni okkar þingmanna
ásamt fjölda annarra mála sem munu stuðla
að því að gera okkar góða samfélag hér á
Reykjanesi enn betra.
Hverju munt þú helst beita þér fyrir á
þessu kjörtímabili?
Mitt grunnmarkmið og helsta áhersla er
alltaf að fólk finni að það hafi það betra í
dag en í gær. Að allt samfélagið taki fram-
förum. Öll viljum við búa við öryggi og geta
rekið heimili þar sem öllum helstu þörfum
fjölskyldunnar er mætt. Því hef ég frá því
að ég var kjörinn á Alþingi lagt áherslu á
þau mál sem ég kom inn á hér að ofan, þ.e.
grunnþjónustu og grunninnviði. Kemur það
líklegast til vegna þess bakgrunns sem ég
hef sem lögreglumaður og að hafa alist upp
í sveit á landsbyggðinni.
Ég trúi því að ef stjórnvöld einbeiti sér
að öflugri grunnþjónustu og innviðaupp-
byggingu, þar sem þörfum fjölskyldunnar
er mætt og stuðlað er að öryggi muni
samfélaginu ganga vel.
Hversu líklegt finnst þér að stefnumál
og áherslur þíns flokks fái framgang á
kjörtímabilinu?
Sjálfstæðisflokkurinn hefur mjög öflugan
þingflokk sem fylgir stefnumálunum fast
eftir. Hér í Suðurkjördæmi eru fjórir af tíu
þingmönnum kjördæmisins frá Sjálfstæðis-
flokknum. Þingmennirnir hafa yfir mikilli
og fjölbreyttri reynslu að ráða. Nú er ljóst
að flokkurinn á aðild að næstu ríkisstjórn.
Þetta allt gefur mér miklar vonir um að við
munum ná góðum árangri í að koma okkar
stefnumálum áfram sem tengjast öll bættu
samfélagi á Reykjanesi sem og á landinu
öllu.
Óskum Suðurnesjamönnum
gleðilegra jóla
og farsældar á nýju ári.
Þökkum samskiptin á árinu sem er að líða.
Brunavarnir Suðurnesja
sími 421-4748
Óskum Suðurnesjamönnum
gleðilegra jóla
og farsældar á nýju ári.
Þökkum samskiptin á árinu sem er að líða.
Vilhjálmur Árnason