Faxi - 01.12.2021, Qupperneq 44
44 FAXI
Undirbúningur að byggingu Stapa-
skóla hófst fyrir um sex árum síðan,
eða í byrjun árs 2016, þegar settur var á
stofn fjölskipaður undirbúningshópur
þar sem áttu sæti fulltrúar foreldra, nem-
enda, kennara, skólastjórnenda, fræðslu-
ráðs, fræðslusviðs og umhverfissviðs.
Lagt var upp með að vinna undirbún-
ingsvinnuna vel og gefa góðan tíma í
hönnunarferlið, að ákveða hvernig skóla
við vildum fá áður en farið væri af stað í
að byggja.
Ákveðið var jafnframt að vinna hugmynda-
og hönnunarvinnuna eftir ákveðnu ferli sem
er kallað Design Down Process eða Hönnun
frá hinu almenna til hins sérstæða. Aðferðin
var þróuð af skólafólki og arkitektum í
Minnesota í Bandaríkjunum og gengur ferlið
í raun út á að fá alla hagsmunaðila að borðinu
og fá sem flestar og fjölbreyttastar hugmyndir
um hvernig best er að byggja nýjan skóla.
Undirbúningsferlið sem skiptist í nokkur
þrep náði til markmiða skólans, innra starfs
og loks grófrar útfærslu eða hönnunar á
byggingunni sjálfri. Við lok vinnunnar voru
því til gögn sem lýstu megináherslum í skóla-
starfinu og lausleg hugmynd að innra fyrir-
komulagi þeirrar byggingar sem nú er risin.
Það var skýr útgangspunktur í upphafi
vinnunnar að ganga út frá því að skólar í nú-
verandi mynd hafi ekki verið til um allar aldir.
Þeir hafi verið mótaðir af venjulegu fólki og
þeim megi að sjálfsögðu breyta á ýmsa vegu.
Umhverfið þriðji kennarinn
Nú er risinn þessi glæsilegi og framsækni
skóli, þar sem umhverfið og skólabyggingin
leikur svo sannarlega hlutverk þriðja
kennarans eins og ýmsir fræðimenn tala
um þegar þeir benda á námsumhverfið sem
veigamikinn þátt í því að ýta undir fjöl-
breytt, merkingarbært og skapandi nám.
Og þó ekki hafi allt gengið snurðulaust
fyrir sig á þessari vegferð þá hefur öllum
hindrunum verið rutt jafn óðum úr vegi í
anda þess skólastarfs sem verið er að móta,
þar sem byggt er á styrkleikum nemenda,
sköpun, tækni, teymisvinnu og gleði. Þetta
eru áherslur sem mótaðar voru strax í
upphafi.
Klifurveggurinn á gangi yngri deildar-
Það á að vera skemmtilegt
í Stapaskóla