Skessuhorn - 27.10.2021, Side 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 43. tbl. 24. árg. 27. október 2021 - kr. 950 í lausasölu
Í BRAUÐRASPI
DEEP FRIED
BREADED SHRIMP
999 kr.
Tilboð gildir út október 2021
arionbanki.is *Skv. MMR 2021
Ert þú með besta
bankaappið?
Ef þú ert ekki með Arion appið getur þú sótt
það í App Store eða Google Play
FRAPPÓ
HEFUR ÞÚ
PR ÓFAÐ?
Fyrr í þessum mánuði fékk Slökkvilið Borgarbyggðar kærkomið tækifæri til
æfinga. Sótt hafði verið um leyfi fyrir niðurrifi á gömlu húsi sem stóð í Galtarholts-
landi og var ákveðið að kveikja eld og leyfa slökkviliðsmönnum að spreyta sig.
Að sögn Heiðars Arnar Jónssonar varaslökkviliðsstjóra eru æfingar sem þessar
kærkomnar, en þar fá liðsfélagar í slökkviliðinu m.a. tækifæri til að æfa lestur í
eld og reyk, yfirtendrun við bruna og sitthvað fleira. Við slíkt tækifæri er einnig
upplagt að taka góða hópmynd. Sjá einnig frétt um nýliðakvöld slökkviliðsins á
bls. 14 Ljósm. Rolando Diaz.
Fiskverð hefur verið í hæstu
hæðum á fiskmörkuðum lands-
ins síðustu vikur. Að sögn Andra
Steins Benediktssonar, fram-
kvæmdastjóra Fiskmarkaðs Snæ-
fellsbæjar, er skýringin á þessu
háa verði sú að miklar ógæftir
hafa verið og lítið framboð ver-
ið af fiski. Andri segir að þegar
bátar hafa komist á sjó hafi afl-
inn verið góður og nefnir að línu-
bátar hafa fengið 150 til 200 kíló
á bala sem telst mjög gott á þess-
um árstíma. Handfærabátar hafa
sömuleiðis aflað vel þegar gefið
hefur til róðra og sama megi segja
um dragnótarbáta. „Ég held að
hátt fiskverð muni allavega haldast
fram að jólum og spilar þar 13%
skerðing á þorskkvóta inn í verð-
hækkunina,“ segir Andri og bætir
við að jafnframt telji hann að fisk-
verð haldist hátt á komandi vertíð
og minni sveiflur verði á verði en
á síðustu árum.
Örvar Marteinsson, skipstjóri á
línubátnum Sverri SH frá Ólafs-
vík, segir að hann sé ánægður með
verðið. „En hins vegar eru miklar
brælur og bátar ekki komist á sjó í
langan tíma. Það er meira um fisk
á grunnslóð en undanfarin ár,“
segir Örvar og bætir við að það
sé erfitt að forðast ýsuna á línu-
bátum og finnst honum ótækt að
bátar í krókaaflakerfinu megi ekki
velja sín veiðarfæri eins og að leyfa
þeim að fara á netaveiðar.
af
Gott fiskverð þegar menn komast á sjó
Línubáturinn Sverrir SH á veiðum í síðustu viku. Var aflinn fimm tonn og meðal-
verð á þorski í þessum róðri var 505 krónur.
sími 437-1600
Næstu viðburðir
á Söguloftinu
STORMFUGLAR
Einars Kárasonar
Fimmtudaginn 4. nóvember
kl. 20:00
Miðasala á tix.is
og borðapantanir:
landnam@landnam.is
og í síma 437-1600