Skessuhorn - 27.10.2021, Side 8
MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 20218
Aflatölur fyrir
Vesturland
16. til 22. október.
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu.
Akranes: 3 bátar.
Heildarlöndun: 4.329 kg.
Mestur afli: Ebbi AK-37:
2.415 kg. í einni löndun.
Arnarstapi: Engar landanir á
tímabilinu.
Grundarfjörður: 10 bátar.
Heildarlöndun: 336.418 kg.
Mestur afli: Sigurborg SH-12:
74.392 kg. í einni löndun.
Ólafsvík: 14 bátar.
Heildarlöndun: 76.017 kg.
Mestur afli: Egill SH-195:
13.684 kg. í tveimur löndun-
um.
Rif: 5 bátar.
Heildarlöndun: 113.777 kg.
Mestur afli: Örvar SH-777:
91.530 kg. í einni löndun.
Stykkishólmur: 3 bátar.
Heildarlöndun: 13.123 kg.
Mestur afli: Bára SH-27:
5.322 kg. í tveimur löndunum.
Topp fimm landanir á
tímabilinu:
1. Örvar SH-777 RIF: 91.530
kg. 17. október.
2. Sigurborg SH-12 GRU:
74.392 kg. 18. október.
3. Runólfur SH-135 GRU:
63.534 kg. 18. október.
4. Jón á Hofi ÁR-42 GRU:
56.535 kg. 17. október.
5. Sturla GK-12 GRU:
51.234 kg. 17. október.
-frg
Blés yfir
mörkum
STYKKISHÓLMUR: Lög-
reglumenn á eftirlitsferð um
Stykkishólm síðla þriðjudags í
síðustu viku stöðvuðu för ök-
umanns vegna gruns um ölv-
unarakstur. Blés ökumaður-
inn yfir mörkum um áfengis-
magn í útöndun. Var hann því
færður á lögreglustöð þar sem
fram fór blóðtaka. Fór mál
hans í hefðbundið ferli að því
loknu. -frg
Skilinn eftir á
heiðinni
VESTURLAND: Á þriðju-
dagskvöld í síðustu viku barst
lögreglu tilkynning um kyrr-
stæða bifreið á Holtavörðu-
heiði. Þegar lögreglu bar að
garði kom í ljós að sprung-
ið hafði á bílnum og hann því
óökufær. Eru ökumenn hvatt-
ir til þess að ganga þannig frá
bifreiðum að þær séu vel sýni-
legar þurfi að skilja þær eft-
ir og að þær skapi ekki hættu
fyrir aðra ökumenn. -frg
Grunaður um
fíkniefnaakstur
BORGARNES: Lögreglu-
menn á eftirlitsferð í Borg-
arnesi stöðvuðu á þriðju-
dagskvöld ökumann á Vest-
urlandsvegi við Brúartorg,
vegna gruns um akstur undir
áhrifum ávana- og fíkniefna.
Var ökumaðurinn í kjölfarið
ákærður og er mál hans í rann-
sókn. -frg
Herða tímabund-
ið heimsóknar-
reglur
ÓLAFSVÍK: Vegna smita í
samfélaginu hefur verið tek-
in ákvörðun um að herða
tímabundið á heimsóknar-
reglum á Dvalar- og hjúkr-
unarheimilinu Jaðri í Ólafs-
vík. Þessar reglur munu gilda
til 2. nóvember. Nánar um
tímabundnar reglur á snb.is
-mm
Síðastliðinn fimmtudag kom upp
grunur um covid smit í Dölun-
um og voru í kjölfarið allnokkur
smit staðfest. Á mánudaginn voru
14 í einangrun og 117 í sóttkví.
Upptökin eru ekki ljós, en nokkr-
ir kennarar og nemendur Auðar-
skóla í Búðardal eru smitaðir og því
hefur allt skólahald legið niðri frá
því á fimmtudaginn. Herdís Erna
Gunnarsdóttir, skólastjóri Auðar-
skóla, sagði í samtali við fréttaritara
Skessuhorns að skólinn og leik-
skólinn verði lokaðir alla þessa viku.
Í grunnskólanum eru síðan vetrar-
frísdagar í upphafi næstu viku, en
enn hefur ekki verið tekin ákvörðun
um hvort leikskólinn verði opnaður
aftur eftir helgina, það velti á þró-
un smita í samfélaginu í Dölunum.
Sundlaugin er lokuð, bókasafnið
einnig og á dvalarheimilinu Silfur-
túni hafa heimsóknarreglur verið
hertar og óskað eftir bakvörðum til
starfa. Allt íþrótta- og tómstunda-
starf liggur einnig niðri.
Sýnataka hefur verið mikil á veg-
um heilsugæslunnar, bæði hrað-
próf og einkennasýnatökur, sem
var færð úr heilsugæslunni og út
í sjúkrabílaskýlið til að lágmarka
smithættu. Íbúar hafa mikið spjall-
að um faraldurinn undanfarna daga
á samfélagsmiðlum og fram kemur
að heilu fjölskyldurnar eru í sóttkví
eða einangrun, heima og heiman. Í
Dölunum er samfélagið náið og í
raun makalaust að ekki hafi komið
upp bylgja smita áður í þessum far-
aldri. bj/ Ljósm. sm.
Smit kom upp í hópi nemenda sem
voru í Ungmennabúðum UMFÍ á
Laugarvatni á fimmtudaginn í síð-
ustu viku. Þar komu saman mánu-
deginum áður margir nemend-
ur í níunda bekk úr grunnskólum
af Vesturlandi en á fimmtudags-
kvöldið fékkst staðfest Covid-19
smit í hópnum. Voru foreldrar og
skólastjórnendur strax upplýstir
um málið. Í kjölfarið var ákveðið,
í samráði við Almannavarnir og yf-
irvöld, að best væri að senda sjö-
tíu nemendur heim seint á fimmtu-
dagskvöldið. Að óbreyttu hefðu
ungmennin farið heim um hádegi
á föstudag. Nemendurnir fara því
í sóttkví fram í þessa viku ásamt í
einhverjum tilfellum foreldri eða
forráðamanni.
„Okkur þykir alveg ótrúlega
leiðinlegt að smit hafi komið upp
í búðunum. Það var búið að vera
svo gaman hjá nemendunum í vik-
unni og þeim liðið alveg frábærlega
vel á Laugarvatni. Engum er um
að kenna að svona fór. Við erum
búin undir aðstæður eins og þessar
og vitum að þær geta áfram kom-
ið upp í samfélaginu,‟ sagði Sigurð-
ur Guðmundsson, forstöðumað-
ur Ungmennabúða, í tilkynningu
sem send var út. „Fyrst og fremst
er þetta afar leiðinlegt fyrir smitaða
nemandann. Ég vona að hann finni
ekki mikið fyrir áhrifum smitsins.
Við munum að sjálfsögðu halda
áfram að gæta að sóttvörnum okk-
ar og hreinlæti eins og við gerum
alltaf,‟ segir Sigurður. Strax var far-
ið í ítarlega sótthreinsun á húsnæði
ungmennabúðanna og starfsfólk
fór í kjölfarið í smitgát og PCR-
-próf. arg/ Ljósm. umfí.
Á föstudagskvöldið fékk félags-
þjónusta Borgarbyggðar stað-
festingu á Covid-19 smitum í bú-
setuþjónustu og á hæfingarstaðn-
um Öldunni. „Vegna þessara
smita fara flestir starfsmenn, leið-
beinendur og skjólstæðingar ým-
ist í sóttkví eða smitgát. Við erum
búin að tryggja mönnun í dag og
flestir sem eru í smitgát eða sótt-
kví munu komast í Covid-19 próf í
dag,“ skrifaði Þórdís Sif Sigurðar-
dóttir sveitarstjóri á Facebook síð-
astliðinn laugardag. „Við stöndum
núna frammi fyrir því að það gæti
reynst erfitt að veita fólkinu okk-
ar í búsetunni þá þjónustu sem það
þarf og er lögbundin. Við leitum
til fólks sem þegar hefur skráð sig
í bakvarðasveit Borgarbyggðar en
þurfum hugsanlega meiri mann-
skap. Við leitum því til ykkar, ef
þið getið með einhverjum hætti
létt undir með því starfsfólki sem
eftir stendur til að þjónusta fatl-
að fólk, þá þiggjum við þinn liðs-
styrk,“ skrifaði Þórdís og bætti því
við Aldan verður lokuð a.m.k. út
þessa viku.
mm
Covid bylgja gengur
yfir í Dölum
Óskuðu eftir bakvörðum vegna
smita í búsetuþjónustu
Margir nemendur af Vesturlandi
sendir heim úr Ungmennabúðum