Skessuhorn - 27.10.2021, Blaðsíða 12
MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 202112
Laugardaginn 23. október var
bæjarbúum boðið að skoða Bær-
ingsstofu sem hefur verið mik-
ið endurnýjuð undanfarin misseri.
Ingi Hans Jónsson hefur haft yfir-
umsjón með framkvæmdunum en
verið er að betrumbæta aðstöðu í
Sögumiðstöðinni og þar á meðal
Bæringsstofu. Allir stólarnir voru
til að mynda bólstraðir upp á nýtt
og inngangurinn færður svo eitt-
hvað sé nefnt. Síðasta laugardag var
svo bæjarbúum boðið að skoða þar
sem Bæringsstofa er tilbúin. Ingi
Hans fór yfir framkvæmdirnar og
svo var gestum boðið í kaffi eftir
kynninguna.
tfk
Eins og greint var frá í Skessu-
horni í síðustu viku er matarveisla
og matarhátíð Vesturlands hand-
an við hornið. Nóvembermánuð-
ur verður tileinkaður matarmenn-
ingu á Vesturlandi og verður haldin
matarveisla allan mánuðinn í lands-
hlutanum. Þá verður matarhátíð á
Hvanneyri laugardaginn 13. nóv-
ember frá kl. 13-17, þar sem m.a.
verður boðið upp á matarmarkað
auk viðburða tengdum mat, matar-
framleiðslu og matarhefð. „Áhugi
fólks eykst sífellt á að fá að vita um
uppruna matar og meðferð hans
sem og áhugi á matartengdum
viðburðum. Eins og ég segi alltaf:
Matur er manns gaman,“ segir Hlé-
dís Sveinsdóttir, einn skipuleggj-
andi Matarhátíðar á Vesturlandi
í samtali við Skessuhorn. „Nóv-
ember verður stóri matarmánuð-
ur Vesturlands og við ætlum að fá
til liðs við okkur veitingahús, fram-
leiðendur og aðra aðila, stóra sem
smáa, sem tengjast matarhefðum á
einhvern hátt, til að minna á hversu
rík við erum af góðum mat á Vest-
urlandi. Við vorum með matarhátíð
2019 sem var vel sótt og skemmti-
leg og okkur langar að endurtaka
leikinn,“ segir Hlédís.
Fjölbreytt úrval á mat-
armarkaðinum
Nú þegar hafa nokkrir aðilar skráð
sig til leiks með skemmtilega pop-
up viðburði í matarveislu nóv-
embermánaðar. Má þar til dæm-
is nefna sauðfjárbúið Ytri-Hólmi,
þar sem ákveðna daga í nóvem-
ber verður boðið upp á smakk úr
kjötbúðinni af léttreyktum lamba-
hrygg, gröfnu og tvíreyktu og fleiru
góðgæti beint frá býli. „Mér þyk-
ir það svo falleg birtingarmynd að
hafa vinnslu og búð heima á sauð-
fjárbúi,“ segir Hlédís. Kaffi kyrrð í
Borgarnesi tekur líka þátt og mun
bjóða upp á slökunarviðburð með
kakói 11. nóvember. Á Icelanda-
ir hótel Hamri verður villibráðar-
kvöld helgina 19. og 20. nóvember.
Dönsk jólaveisla verður á Fosshótel
Stykkishólmi 25. nóvember og jóla-
veisla verður haldin á Vogi Country
Lodge á Fellsströnd í Dölum.
„Við verðum svo með ýmsar
skemmtilegar uppákomur á matar-
hátíðinni á Hvanneyri. Það er eitt-
hvað svo viðeigandi að halda mat-
arhátíð á Hvanneyri, í Landbúnað-
arháskóla Íslands, þar sem undir-
staða landbúnaðarframleiðslu er,“
segir Hlédís. Hún segir dagskrána
á Hvanneyri enn vera að taka á sig
mynd. „Kvenfélagið 19. júní ætlar
að bjóða upp á veitingar og mun
m.a. prófa að vera með bjórvöffl-
ur með bjór frá Steðja. Við fáum
svo góða heimsókn frá Norður-
landi vestra en Vörusmiðjan Biopol
kemur með bíl smáframleiðenda í
heimsókn. Þau ætla að koma með
brot af því besta frá Norðurlandi
vestra,“ segir Hlédís og bætir við að
enn sé hægt að skrá þátttöku í mat-
arhátíðinni á Hvanneyri og matar-
veislu nóvembermánaðar.
„Allir sem eru að gera eitthvað
matartengt eiga erindi í viðburða-
dagatal okkar, hvort sem það tengist
mat, matarhefð eða matarfram-
leiðslu á hvaða stigi sem er,“ seg-
ir Hlédís og bætir við að á matar-
hátíðinni verða veittar viðurkenn-
ingar í Askinum. „Það er hægt að
tilnefna frambærilegar matarhetj-
ur til 30. október inni á askurinn.is.
Við höfum nú þegar fengið margar
góðar tilnefningar og viljum endi-
lega fá fleiri,“ segir Hlédís. Hægt er
að finna allar upplýsingar um við-
burði í nóvember og á matarhátíð-
inni á Hvanneyri á matarhatid.is.
arg
Listakonurnar Þóra Sólveig Berg-
steinsdóttir og Liv Nome hafa
undanfarna daga dvalið í vinnu-
stofu Artak350 í Grundarfirði. Þar
hafa þær unnið að sýningu sem þær
munu halda í Sögumiðstöðinni
miðvikudaginn 27. október næst-
komandi. Gjörningurinn Sacred er
samvinnuverkefni Þóru Sólveigar
og Liv síðan 2016. Myndbandsverk
þeirra, sem nefnist Standing, verð-
ur sýnt ásamt tónlistar- og mynd-
bandsverkefninu Flora eftir Liv
Nome saman með nýju efni frá
Grundarfirði. Þetta er samtvinn-
að við verkið Sacred sem var frum-
sýnt á A! Gjörningahátíð 2017. Það
verður spennandi að sjá afrakstur-
inn af þessari vinnu þeirra Liv og
Þóru og eru Grundfirðingar og
nærsveitungar hvattir til að mæta.
tfk
Unnsteinn Guðmundsson og fjölskylda færðu Sögumiðstöðinni uppstoppaðan hrafn sem Unnsteinn stoppaði upp. F.v.
Björg Ágústsdóttir, Tinna Unnsteinsdóttir, Ingi Hans Jónsson, Ari Unnsteinsson, Rúna Ösp Unnsteinsdóttir og Unnsteinn
Guðmundsson.
Bæjarbúum boðið að
skoða Bæringsstofu
Ingi Hans er hér að fara yfir fram-
kvæmdirnar með gestum.
Áhugasamir hlýða á fyrirlesturinn í nýbólstruðum sætunum.
Mynd frá sýningu gjörnings þeirra Liv og Þóru.
Sacred Flora sýnt
á Rökkurdögum
Liv Nome og Þóra Sólveig Bergsteinsdóttir í vinnuaðstöðu sinni hjá Artak350.
Þóra Sólveig og Liv í listgjörningnum Sacred Flora.
Matur er manns gaman
Nóvember verður stóri matarmánuður Vesturlands