Skessuhorn - 27.10.2021, Qupperneq 16
MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 202116
Á morgun, fimmtudaginn 28.
október, verður fyrstu lömbunum
slátrað í nýju viðurkenndu örslátur-
húsi Grímsstaðakjets ehf. á Gríms-
stöðum í Reykholtsdal. Hjónin Jó-
hanna Sjöfn Guðmundsdóttir og
Hörður Guðmundsson keyptu
Grímsstaðajörðina árið 2017 af
foreldrum hennar og tóku um leið
við sauðfjárbúi í fullum rekstri. Þau
hófu fljótlega undirbúning að stofn-
un kjötvinnslu og sláturhúss. Árið
2020 var kjötvinnsluhúsið byggt og
síðasta haust var það tilbúið með
viðeigandi leyfum til vinnslu. Nú
hefur verið byggt við kjötvinnslu-
húsið aðstaða þar sem hægt er að
slátra lömbum og geitum við viður-
kenndar aðstæður. Öll tilskilin leyfi
fyrir sauðfjárslátrun voru í höfn 6.
október síðastliðinn. Til að þau
fengjust þurfti meðal annars að afla
réttinda til að aflífa og blóðga og
sláturaðstaðan sömuleiðis að vera
úr viðurkenndum efnum, svo sem
ryðfríu stáli. Örsláturhús eru skil-
greind þannig að leyfilegt er að
slátra allt að 30 lömbum á dag en
dýralæknir er ætíð viðstaddur, líkt
og í öðrum sláturhúsum. Gríms-
staðakjet er fyrsta viðurkennda ör-
sláturhúsið á Vesturlandi, en fyr-
ir er Sláturhús Vesturlands í Brák-
arey með mun víðtækara leyfi, en
næsta sláturhús við það er alla leið
norður á Hvammstanga eða aust-
ur á Selfossi. Næsta örsláturhús er
hins vegar í Birkihlíð í Skagafirði.
Ætla að fullvinna allt
kjöt heima
Jóhanna Sjöfn og Hörður eiga um
370 kindur á vetrarfóðrum. Þar sem
sláturtíð er nú langt komin þetta
árið reikna þau með að einungis um
120 gimbrum úr þeirra eigin rækt-
un verði slátrað í nýja sláturhúsinu
í haust, en hrútlömbin sendu þau til
slátrunar á Hvammstanga. Næsta
haust munu þau svo bjóða öðrum
bændum að slátra og vinna kjöt sitt
hjá Grímsstaðakjeti.
„Okkar áætlanir ganga út á að
slátra öllum okkar eigin lömbum
sjálf og fullvinna kjötið hér heima.
Nýta allan innmat og það sem til
fellur. Þannig sjáum við fyrir okkur
að auka til muna virði framleiðslu
okkar. Bændur fá nú um 520 krón-
ur fyrir kílóið af lambakjöti hjá slát-
urleyfishöfum og eru 5500 krónur
innheimtar fyrir skrokkinn í heim-
töku. Við seljum kjötið frá okkur á
1300 krónur kílóið. Erum því að
taka hingað heim allan milliliða-
kostnaðinn og aukum þannig virði
okkar eigin framleiðslu. Einnig get-
um við nýtt innmat, hausa og annað
sem til fellur af skepnunni. Kjötið
seljum við að hluta til í Hönnubúð í
Reykholti, sem við eigum og rekum
sjálf, en að öðru leyti markaðssetj-
um við og seljum kjötið í gegnum
Facebook síðu Grímsstaðakjets.“
Auka vinnu heima fyrir
Fénu á Grímsstöðum er öllu ekið
á Arnarvatnsheiði í júní og smal-
að til réttar í Fljótstungu um miðj-
an september. Þau byrja því ekki
heimaslátrun úr eigin ræktun fyrr
en eftir þann tíma, en segja ekkert
því til fyrirstöðu að geta hafið sum-
arslátrun í ágúst fyrir aðra bændur
sem láta fé sitt ganga í heimahög-
um. Þau Jóhanna Sjöfn og Hörð-
ur segjast ekki í vafa um að helstu
tækifærin í sauðfjárrækt felist í auk-
inni verðmætasköpun heima fyrir
og hvetja aðra bændur til að íhuga
möguleikana sem í þessu felast.
„Við viljum fullvinna eigin fram-
leiðslu og láta reyna á að hægt sé
að lifa af sauðfjárrækt. Með til-
komu Grímsstaðakets, slátrun og
vinnslu, þá sjáum við fyrir okkur
að við munum geta unnið meira
hér heima á búinu og minnkað
við okkur vinnu utan bús,“ segja
þau en Jóhanna Sjöfn rekur versl-
un í Reykholti og Hörður vinn-
ur við smíðar. „Það er mikill virð-
isauki sem felst í þessari starfsemi
og gefur okkur ótal möguleika.
Ekki er heldur slæmt að geta boðið
neytendum upp á gæða kjötafurðir
beint frá bónda. Það er viðurkennt
að þegar slátrað er heima losna
bændur við að flytja lömbin lifandi
um langan veg, jafnvel milli lands-
hluta, en við það minnkar stressfa-
ktorinn í skepnunni áður en henni
er slátrað. „Við látum sláturlömb-
in á kerru hér heima og keyrum
með þau nokkur hundruð metra
hingað að sláturhúsinu þar sem
þau standa í rólegheitunum þar til
röðin kemur að þeim. Eftir slátr-
un eru skrokkarnir látnir hanga
í fimm daga en eftir það fara þeir
ýmist beint í úrbeiningu eða í frost.
Við getum því boðið upp á meyrara
kjöt því í stóru sláturhúsunum er
ekki aðstaða til að láta kjötið hanga
og brjóta sig eins lengi og æskilegt
er.“
Stefna á fullvinnslu
Jóhanna Sjöfn segir að nú hafi hún
leyfi til að salta kjöt og var hún
einmitt að salta í fötur þegar blaða-
maður Skessuhorns leit þar við í
síðustu viku. „Ef ég svo vil bæta
við vinnsluna, til dæmis framleiða
grillkjöt, kæfu eða aðra vöru, þarf
ég fyrst að skila inn innihaldslýs-
ingu á vörunni, því öll framleiðsla
fer í gegnum gæðahandbók og er
háð ströngu eftirliti Matvælastofn-
unar. Nú er fram undan hjá mér að
sækja um leyfi til framleiðslu á til
dæmis grillkjöti því við ætlum að
nýta allar afurðir sem best til að
hámarka virðið. Síðar munum við
til dæmis koma okkur upp reykað-
stöðu þannig að fólk geti pantað
jólahangikjötið beint frá okkur,“
segir Jóhanna Sjöfn að endingu.
mm
Gjaldskrá Íslandspósts mun um
næstu mánaðamót taka breytingum.
Þær eru gerðar til að að uppfylla lög
sem Alþingi samþykkti í sumar sem
kveða á um að gjald endurspegli
raunkostnað. Gjaldskrá mun því
hækka á einhverjum stöðum, eink-
um í þéttbýli, en lækka á öðrum.
Hækkanirnar lenda fyrst og fremst
á íbúum og fyrirtækjum á lands-
byggðinni. Í tilkynningu frá Íslands-
pósti vegna hækkunarinnar segir að
fyrri lög hafi kveðið á um að sama
gjaldskrá væri fyrir póstsendingar,
óháð hvar á landinu sendandi eða
móttakandi væri staddur. Mark-
mið þeirra laga var að kostnaður við
sendingar á pósti væri sá sami um
allt land. Útfærsla þessa markmiðs
fól í sér að ríkissjóður niðurgreiddi
hluta sendingarkostnaðar fyrir við-
skiptavini á strjálbýlli svæðum til
móts við sendanda. Lagabreytingar
frá því í sumar kveða á um að gjald
fyrir sendingar á 0-10 kg pökkum
endurspegli raunkostnað við flutn-
ing og mun ríkið einnig hætta að
niðurgreiða kostnað við sendingar.
Gildistaka laganna þýðir að Póst-
urinn þarf að aðlaga gjaldskrá sína
á pökkum innanlands 0-10 kg sem
sums staðar verður til þess að verð
hækka en annars staðar munu þau
lækka.
Einnig tekur 1. nóvember gildi
ný verðskrá fyrir fjölpóst sem tek-
ur mið af breyttum raunkostnaði við
slíkar sendingar. „Fjölpóstur hefur í
gegnum tíðina fengið að fljóta með
öðrum bréfasendingum sem varð til
þess að viðbótarkostnaður við þessa
dreifingu var óverulegur þar sem
bréfin báru mestan hluta kostnað-
ar. Vegna fækkunar á bréfum hefur
Pósturinn nú viðkomu á mun færri
stöðum en áður. Fjölpóstur kall-
ar hins vegar á viðkomu á hverjum
stað og hefur raunkostnaður við
dreifingu hans því aukist. Ný verð-
skrá fyrir fjölpóst tekur mið að þess-
um breytingum,“ segir í tilkynningu
frá Íslandspósti.
Póstinum er áfram heimilt að
viðhafa sömu verðskrá um allt land
á bréfum undir 51 grammi. Engin
ákvörðun hefur verið tekin um
breytingu á verðskrá að svo stöddu
og mun Pósturinn því eftir sem áður
sinna póstsendingum til allra lands-
manna fyrir hönd ríkisins. mm
Verðbreytingar hjá Íslandspósti á pökkum
innanlands og fjölpósti
Jóhanna Sjöfn hellir pækli yfir væntanlegt saltkjöt.
Grímsstaðakjet byrjar sauðfjárslátrun í vikunni
Hörður Guðmundsson og Jóhanna Sjöfn Guðmundsdóttir framan við nýja sláturhúsið.