Skessuhorn - 27.10.2021, Qupperneq 17
MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 2021 17
Í þrálátum rigningum í haust hafa
nokkrar aurskriður fallið í vestan-
verðu Kirkjufelli í Grundarfirði. Á
meðfylgjandi mynd má glöggt sjá
að skriðurnar eru sumar hverjar
nokkuð breiðar. sk
Framkvæmdir hófust í júlí síðast-
liðnum við tólf íbúða fjölbýlishús
á reitnum við endann á Vestur-
götu á Akranesi, nálægt þar sem
Ægisbraut, Vesturgata og Esju-
braut mætast en sem telst vera Vall-
holt 5 samkvæmt skipulagi. Ágæt-
is gangur hefur verið í þessu síð-
ustu mánuði og önnur hæð hússins
er nú komin á sinn stað. Blaðamað-
ur Skessuhorns tók þessar myndir
í vikunni þegar hann átti leið fram
hjá húsinu.
vaks
Um liðna helgi hélt Lionsklúbbur
Nesþinga á Snæfellsnesi kótilettu-
kvöld í fjórða sinn. Vel var mætt
og nánast fullur salur í félagsheim-
ilinu Röst á Hellissandi. 60 kíló
af kótilettum voru steiktar fyr-
ir kvöldið en þær voru fengnar hjá
Hraðbúðinni á Hellissandi. Veislu-
stjóri var Sigríður Klingenberg en
hún er Söndurum að góðu kunn,
ættuð frá Laufási á Hellissandi. Sá
hún meðal annars um skemmtiat-
riði ásamt því að aðstoða við út-
drátt í happadrætti kvöldsins. Af-
ganginn af kótilettunum færðu
lionsmenn dvalarheimilinu Jaðri.
Vildu Lionsfélagar fá að nýta tæki-
færið og koma á framfæri þakklæti
til allra þeirra sem styrktu eða gáfu
vinninga í happadrættið. þa
Nemendur 1. bekkjar í Grunn-
skóla Snæfellsbæjar skelltu sér út
í list- og verkgreinatíma í liðinni
viku. Tilefnið var að prófa nýja
poppkorns körfu sem skólinn festi
kaup á á dögunum til að nota í úti-
kennslu. Poppkorns karfan gerir
nemendum kleift að fylgjast með
því þegar poppmaísinn spring-
ur út og breytist í brakandi popp-
korn.
Veðrið var ágætt og settu nem-
endur ásamt þeim Ingu mynd-
menntakennara og Paulinu heimil-
isfræðikennara körfuna og eldstæðið
upp á skólalóðinni á Hellissandi.
Smávægilegir byrjunarörðugleik-
ar gerðu vart við sig en nemendur
og kennarar létu það ekki á sig fá
og byrjuðu bara aftur. Það voru svo
kátir og glaðir krakkar sem gæddu
sér á gómsætu poppkorni sem þau
höfðu poppað yfir opnum eldi með
kennurunum sínum. Ætlunin er,
ef veður leyfir, að fleiri nemendur
skelli sér út í þessari viku til að prófa
búnaðinn. þa
Nokkrir nemendur í kvikmynda-
tækni í Tækniskólanum í Reykja-
vík unnu tvo daga í síðustu viku
við tökur á stuttmynd sem tekin
er upp í yfirgefnu húsi á Akranesi.
Húsið umrædda er við Vesturgötu
74, heitir Bjarg en ekki hefur ver-
ið búið í húsinu í yfir 25 ár. Sam-
kvæmt heimildum bjuggu þar síð-
ast mæðgurnar Erna Oddgeirsdótt-
ir og Jóna Kristín Emilsdóttir. Að
sögn Þórhildar Kristínar, sem er
leikstjóri stuttmyndarinnar og hitti
blaðamann á tökustað, hefur fullt
af fólki sem átt hefur leið fram hjá
húsinu verið að forvitnast hjá þeim
hvað væri í gangi. Hún segir að þau
séu að taka upp sitt fyrsta verkefni
í skólanum og þemað sé hrollvekja.
Það sé mjög erfitt „consept“ þar
sem það þarf að vera mjög hræði-
legt og því erfitt að fanga það. Tóta,
eins og hún er kölluð, segir að Bald-
ur, sem er ættaður af Skaganum
og einn af samnemendum þeirra,
hafi bent þeim á þetta yfirgefna
hús og þau fengið leyfi hjá núver-
andi eiganda þess að nota það í tök-
ur. Í húsinu eins og gefur að skilja
er hvorki rafmagn né vatn og því
frekar kalt hjá nemendunum í tök-
unum en allar tökur myndarinnar
eru teknar inni í húsinu. Rafmagn
fyrir ljós og tæki fengu þau lánað úr
tveimur nærliggjandi húsum og eru
afar þakklát fyrir það.
Alls eru þau sjö nemendurnir sem
taka þátt í stuttmyndinni en um er
að ræða leikara, myndatökumenn,
ljósamenn og hljóðmann ásamt
leikstjóra. Fengu þau að auki einn
kennarann sinn til að leika í fyrstu
senu myndarinnar. Tveir tökustað-
ir eru í myndinni en hinn er Kex
Hostel í Reykjavík. Tóta segir að
myndin verði sýnd í skólanum og
segir að í raun sé sagan byggð á því
hvernig húsið var útlits. Myndin
fjalli í stuttu máli um málarann Úlf
sem tekur að sér að mála þetta hús
en er varaður við því að taka verkið
að sér því tveir menn hafi áður horf-
ið sem ætluðu að mála það. Skugga-
legir hlutir gerast í framhaldinu
sem óþarfi er að fara nánar út í.
Aðspurð um námið í Tækniskól-
anum segir Tóta að það sé mjög
skemmtilegt og gott nám og hún
mæli eindregið með því. Það sé
bæði hægt að fara í kvikmyndaskól-
ann og kvikmyndatækni í Tækni-
skólanum en báðir skólarnir séu
góðir á sinn hátt. Hún segir að þau
muni ljúka námi í desember á næsta
ári með diplóma í kvikmyndatækni
og kvikmyndagerð og hlakki mikið
til að starfa við kvikmyndaiðnaðinn
á næstu árum. vaks
Fjölbýlishús við Vallholt
tekur á sig mynd
Nemendur poppuðu
yfir opnum eldi
Húsið Bjarg við Vesturgötu 74.
Tóku upp stuttmynd í yfirgefnu húsi
Randí, Tóta, Daníel Máni, Sindri Snær, Kristinn Heiðmar, Baldur og Sólmundur.
Aurskriður hafa fallið
í Kirkjufellinu
Veislustjórinn ásamt Kristni bæjarstjóra og Óla Rögg.
Kótilettukvöld Lionsmanna á Sandi