Skessuhorn - 27.10.2021, Síða 22
MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 202122
Síðastliðinn fimmtudag veitti Borg-
arbyggð árlegar viðurkenningar í
umhverfismálum. Það er umhverf-
is- og landbúnaðarnefnd sveitar-
félagsins sem hefur umsjón með
verk efninu; kallar eftir tilnefning-
um, fer yfir þær og metur áður en
verðlaunahafar eru boðaðir til fund-
ar. Sem fyrr voru veitt verðlaun fyrir
lóð við íbúðarhús, lóð við atvinnu-
húsnæði, snyrtilegt bændabýli auk
sérstakrar samfélagsviðurkenningar
til einstaklings, hóps eða fyrirtækis
sem vakið hafa athygli fyrir störf að
umhverfismálum.
Fram kom hjá Margréti Vagns-
dóttur, formanni umhverfis- og
landbúnaðarnefndar, að á annan
tug tilnefninga hafi borist um 15
kandidata til verðlauna. Dómnefnd
fór yfir allar innsendar tilnefningar
og fór í framhaldi í vettvangsferð
á staðina. Í viðurkenningarskyni
fengu verðlaunahafar viðurkenn-
ingarskjöl en auk þess birkitré frá
Grenigerði og gjafapoka frá Ljóma-
lind. Bændabýlið fékk að auki skilti
til að festa á vegvísi heim að bænum.
Falleg lóð við íbúðarhús
Í þessum flokki eru það íbúar að
Borgarvík 5 í Borgarnesi sem hlutu
viðurkenninguna, hjónin Bjarni Þór
Traustason og Sigrún Ögn Sig-
urðardóttir. Í niðurstöðu dóm-
nefndar segir að lóðin sé einstak-
lega falleg og snyrtileg og öllu vel
við haldið. Greinilegt sé að mik-
il vinna og natni hafi verið lögð í
viðhald húss og lóðar. Gróður er
fjölbreyttur; trjágróður, fjölæringar
og sumarblóm. Heildarsvipur lóð-
ar góður.
Snyrtileg lóð við
atvinnuhúsnæði
Í þessum flokki er það Bjarg í Borg-
arnesi sem hlaut viðurkenninguna.
Þorsteinn Arilíusson og Heiður
Hörn Hjartardóttir eru ábúendur
á Bjargi þar sem þau reka myndar-
lega ferðaþjónustu. Í niðurstöðu
dómnefndar segir að allt umhverfi
gistiheimilisins Bjargs sé snyrtilegt,
gróðri vel við haldið og tún slegin.
Náttúrufegurð á svæðinu og snyrti-
legt umhverfi auki á jákvæða upp-
lifun gesta.
Snyrtilegt bændabýli
Í þessum flokki var það Brekka
í Norðurárdal sem hlaut viður-
kenningu ársins. Þar búa hjónin og
bændurnir Elvar Ólason og Þór-
hildur Þorsteinsdóttir. Um Brekku
segir í niðurstöðu dómnefndar að
býlið sé myndarlegt og bygging-
um, sem eru ólíkar að aldri, sé vel
Verðlaun veitt fyrir fallegt umhverfi
og snyrtimennsku
Verðlaunahafar og fulltrúar sveitarfélagsins. F.v. Þórdís Sif Sigurðardóttir sveitarstjóri, Þórhildur Þorsteinsdóttir og Elvar Ólason á Brekku, Margrét Vagnsdóttir formaður umhverfis- og landbúnaðarnefndar,
Sigurbjörg Ólafsdóttir handhafi samfélagsviðurkenningar, Bjarni Þór Traustason og Sigrún Ögn Sigurðardóttir í Borgarvík 5, Sigrún Ólafsdóttir og Sigurjón Helgason nefndarmenn í umhverfis- og landbúnað-
arnefnd, Heiður Hörn Hjartardóttir á Bjargi og Hrafnhildur Tryggvadóttir starfsmaður umhverfis- og landbúnaðarnefndar. Ljósm. mm.
Garðurinn við Borgarvík 5 í Borgarnesi í fullum blóma í sumar. Ljósm. aðsend.
Umhverfi við Bjarg og viðhald húsa er til fyrirmyndar. Ljósm. mm.
Borgarvík 5 í Borgarnesi
Ljósm. aðsend.