Skessuhorn - 27.10.2021, Side 24
MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 202124
Síðastliðinn fimmtudag voru af-
hentar umhverfisviðurkenningar
Akraneskaupstaðar fyrir árið 2021.
Ákveðið var að hafa sama hátt á og
í fyrra að fulltrúar úr Skipulags-
og umhverfisráði fóru og afhentu
viðurkenningar fyrir utan heim-
ili fólks. Ragnar B. Sæmundsson
bæjarfulltrúi og formaður nefndar-
innar stýrði dagskrá, ásamt Guð-
ríði Sigurjónsdóttur nefndarmanni
og Sigurði Páli Harðarsyni sviðs-
stjóra. Þess ber að geta að Ólafur
Adolfsson, sem sæti á í nefndinni,
átti ekki heiman gengt þennan dag.
Viðurkenningarnar voru vandað-
ur skjöldur og viðurkenningarskjal
í ramma. Í aðdraganda þessa vals
gafst íbúum kostur á að senda inn
tilnefningar sem ráðið fór síðan
yfir en kallaði til liðs við sig Hel-
enu Guttormsdóttur lektor við um-
hverfisskipulagsbraut LbhÍ. Að
sögn Ragnars B Sæmundssonar var
markmiðið að vekja í víðum skiln-
ingi athygli á atriðum sem skipta
uppbyggingu og framtíð bæjarins
máli og verðlauna það sem vel er
gert í umhverfismálum.
Falleg einbýlishúsalóð
Hjónin Vilborg Helgadóttir og Jón
Þór Þorgeirsson fengu viðurkenn-
ingu í flokknum falleg einbýlishúsa-
lóð fyrir garðinn við Hólmaflöt 8.
Endurgerð lóðar er vel heppnuð,
aðkoma er falleg með fjölbreyttum
gróðri sem liggur milli gangstétt-
ar og skjólveggs. Mikið úrval reyni-
tegunda setja skemmtilegan svip á
lóðina.
Falleg fjölbýlishúsalóð
Íbúar við Akralund 2 fengu viður-
kenningu fyrir fallega fjölbýlishúsa-
lóð, en lóðin er einstaklega snyrti-
leg með fallegu samræmi milli að-
komu og efnisvals í skjólveggjum,
merkingum, ruslageymslum o.s.fv.
Skálína er í steypti gönguleið og
tilkomumikið náttúrugrjót setur
fallegan svip á aðkomu.
Hvatningarverðlaun
Hvatningaverðlaunin fengu
eigendur að Deildartúni 4. Viðar
Sigurðsson tók við þeim fyrir sína
hönd og annarra eigenda hússins.
Verðlaunin eru fyrir miklar endur-
bætur utan húss. Í ljós kemur glæsi-
leg tignarleg bygging með falleg-
um yfirbyggðum svölum og skraut-
steypu sem einkennir mörg steypt
hús á Akranesi frá upphafi síðustu
aldar. Hús með mikið varðveislu-
gildi.
Vel heppnaðar
endurbætur
Hjónin Sigurður Már Jónsson og
Sigríður Hallgrímsdóttir fengu
viðurkenningu fyrir vel heppnað-
ar endurbætur á húsi og lóð við
Krókatún 8, en húsið er í daglegu
tali kallað Sandar. Niðurstaðan er
vel uppgert steinhús sem stendur
við sjávarlóð, í einum elsta hluta
bæjarins. Lóðin situr djúpt og er
einstaklega opin og falleg sjávar-
megin frá strandstígnum, þar sem
einfalt lágvaxið gróðurval vinn-
ur með náttúrunni og ströndinni.
Endurgerð húss, pallur baka til og
gróður skapa sterka upplifun af
staðaranda svæðisins.
Tré ársins
Tré ársins er fallegur ilmreynir sem
stendur við aðkomu að raðhúsi
þeirra Vigdísar Elfu Jónsdóttur og
Hjálms Dórs Hjálmssonar að Jör-
undarholti 133. En gaman er að
segja frá því að þau Jón Þór og Vil-
borg, sem áttu fallegustu einbýl-
ishúsalóðina, gróðursettu reynitréð
á sínum tíma.
Samfélagsverðlaun
Loks voru samfélagsverðlaun af-
hent. Þau hlaut Helga Ólöf Oli-
versdóttir. Helga hefur sýnt ótrú-
lega samfélagslega virkni með dag-
legum göngum og kaffibollaver-
kefni sínu á Covidtímum þar sem
hún fór með kaffi og bolla og drakk
utan dyra ýmist ein eða með öðr-
um og sendi kveðju til vina og ætt-
menna á samfélagsmiðlum. Á sama
tíma hefur hún gengið í gegnum
erfið veikindi, búin að vera mikið
ein en sýnt fordæmi sem hvatt hef-
ur marga til dáða.
mm
Viðurkenningar fyrir falleg hús og umhverfi á Akranesi
Akranes í haustblíðunni. Ljósm. frg.
Vilborg og Jón Þór taka við viðurkenningu fyrir fallega einbýlishúsalóð. Hólmaflöt 8.
Hluti íbúa við Akralund 2 tóku við viðurkenningu fyrir fallega fjölbýlishúsalóð. Akralundur 2.
Viðar Sigurðsson tekur við hvatningarverðlaunum f.h. íbúa við Deildartún 4. Deildartún 4.