Skessuhorn - 27.10.2021, Qupperneq 38
MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 202138
Hver er skemmtilegasta
námsgreinin í skólanum?
Spurning
vikunnar
(Spurt í Grunnskóla Snæfellsbæjar í
Ólafsvík)
Guðný Kristín Clausen
„Íþróttir.“
Bríet Elvan Sæbjörnsdóttir
„Íslenska.“
Júlía Dröfn Júlíusdóttir
„Íslenska.“
Matthildur Inga Traustadóttir
„Enska.“
Sara Egilsdóttir
„Smíði.“
Hressir sundmenn Sundfélags
Akraness stóðu sig vel í óhefð-
bundnu Faxaflóasundi sem fram
fór síðasta föstudag. Þeir syntu 21
kílómetra í Jaðarsbakkalaug sem er
sama vegalengd og tekur að synda
á milli Akraness og Reykjavík-
ur. Stefnan var að synda meðfram
Langasandi en veðrið var mjög
óhagstætt til að synda í sjónum og
því var ákveðið að taka slaginn í
Jaðarsbakkalauginni. Þátttakend-
um var skipt upp í þrjú lið sem
hvert um sig synti sjö kílómetra
eins hratt og þau gátu og gekk það
prýðisvel.
Með Faxaflóasundinu voru
krakkarnir að safna fyrir æfinga-
ferð erlendis og vilja þeir þakka fyr-
ir frábæran stuðning. Enn er hægt
að styðja krakkana með frjálsum
framlögum og er reikningsnúmer
þeirra: 186-15-376670 Kt. 630269-
4239. vaks
Lionsklúbburinn Rán og Lions-
klúbbur Ólafsvíkur afhentu nýverið
Grunnskóla Snæfellsbæjar hreiður-
rólu frá fyrirtækinu Krumma.is.
Búið var að setja róluna upp við
starfsstöð skólans í Ólafsvík þar
sem nemendur skólans eru búnir að
prófa hana. Hefur hún vakið lukku
og er góð viðbót við þau leiktæki
sem fyrir eru á skólalóðinni.
Á myndinni eru þau Hilmar Már
Arason skólastjóri, Sigrún Ólafs-
dóttir og Lára Hallveig Lárusdóttir
frá Lionsklúbbnum Rán og Þröstur
Albertsson frá Lionsklúbb Ólafs-
víkur með róluna góðu á milli sín.
þa
Knattspyrnumaðurinn og fyrir-
liði ÍA til fjölda ára, Arnar Már
Guðjónsson, hefur kvatt upp-
eldisfélag sitt eftir langan og far-
sælan knattspyrnuferil. Samningur
Arnars Más við ÍA rann út um síð-
ustu mánaðamót og var ekki endur-
nýjaður. Arnar Már varð fyrir alvar-
legum hnémeiðslum í leik gegn Val
á Akranesvelli í júlí 2019 er hann
sleit krossband og liðþófi rifnaði
og hefur hann átt í þeim meiðsl-
um síðan, en er þó búinn að ná
sér nokkuð vel í dag og segist vera
fullfær um að halda áfram að leika
knattspyrnu.
„Þetta er eins og að sjá á eft-
ir nánum ástvini að hætta hjá ÍA.
Félagið hefur alltaf verið mér afar
kært og þar hef ég eignast mína
bestu vini, en ég skil afstöðu félags-
ins,“ segir Arnar Már. „Þó að mín-
um tíma hjá ÍA sé lokið þá lít ég svo
á að ég sé ekki hættur í knattspyrnu
og mig langar til þess að halda
áfram að spila. Meiðslin hafa gert
það að verkum að ég get ekki æft
af fullum krafti miðað við það sem
áður var.“
Arnar Már segir að það sé margs
að minnast á löngum ferli, sem
hófst árið 2004 þegar hann lék sinn
fyrsta leik með meistaraflokki, og
lék hann samfellt með ÍA til ársins
2008 en þá gekk hann til liðs við
KA á Akureyri og lék fyrir norð-
an í tvö áður en hann gekk aftur til
liðs við Skagamenn. Arnar Már lék
upp alla yngri flokkana með ÍA og á
þeim árum sagði hann að sínar fyr-
irmyndir hefðu verið Siggi Jóns og
tvíburarnir Arnar og Bjarki Gunn-
laugssynir. Alls lék Arnar Már sam-
kvæmt skráningu KSÍ 257 leiki í
meistaraflokki og skoraði í þeim 45
mörk. Auk þess lék hann níu lands-
leiki með ungmennaliðum Íslands.
Er hann nú orðinn sjöundi marka-
hæsti leikmaður ÍA frá upphafi.
Þegar talið berst að hvað upp úr
standi á löngum ferli, svarar Arn-
ar Már: „Það voru engir titlar sem
unnust á þessum árum en auðvitað
voru margir eftirminnilegir leikir
og minnisstæð mörk hjá mér. Mér
eru ofarlega í huga tvö mörk sem
ég skoraði frá miðju á Akranesvelli.
Annars vegar gegn Þór frá Akureyri
og síðan gegn Val. Ég held að ég
sé sá eini sem hef skorað frá miðju
bæði í vestur- og austurmarkið á
vellinum,“ segir Arnar Már að lok-
um léttur í bragði. se
Gáfu skólanum hreiðurrólu
Sundkrakkarnir eldhressir eftir sundið. Ljósm. Sundfélag Akraness.
Faxaflóasundið var synt í Jaðarsbakkalaug
Arnar Már var valinn besti leikmaður
ÍA árið 2018 auk þess að vera valinn
bestur að mati stuðningsmanna ÍA og
einnig ÍATV. Ljósm. úr einkasafni.
Kveður ÍA með söknuði og þakklæti
segir Arnar Már Guðjónsson sem hefur lokið farsælum knattspyrnuferli með ÍA
Arnar Már Guðjónsson.