Morgunblaðið - 14.04.2022, Page 22
var mikil áskorun fólgin í því að
hanna og byggja á þessari við-
kvæmu lóð, og í raun ekki sjálf-
gefið að þar yrði yfirleitt byggt.
Verkefnið þurfti því að nálgast af
virðingu og auðmýkt og var nálg-
unin sú að kallast á tillitssaman
hátt á við eldra húsið. Að sama
skapi þurfti viðbyggingin einnig að
tala við umhverfi sitt og hið
stærra samhengi háskólasvæð-
isins.
Með því að móta landslag lóð-
arinnar hafi nýbyggingin ásýnd
þriggja hæða byggingar og er
neðsta hæðin þannig falin. Þá var
farin sú leið að byggja sem minnst
fyrir ásýnd á eldra húsið og halda
stefnu þess, og hefur sú nálgun,
ásamt litavali úr pallettu umhverf-
isins, styrkt þá formheild sem
skapast hefur milli þessara sögu-
frægu bygginga. Þetta á einnig við
um hönnun og efnisval innandyra,
þar sem viður og litir vísa í eldra
hús ásamt sjónsteypu og stáli og
mætast þar gamli og nýi tíminn á
áreynslulausan en kraftmikinn
hátt.
Mynda samræmda heild
Í áliti Minjastofnunar um tillögu
að breyttu deiliskipulagi á lóð Há-
skóla Íslands vegna viðbyggingar
við Gamla Garð frá 2019 kemur
m.a. fram að stofnunin telur að vel
hafi tekist til með aðlögun fyrir-
hugaðra nýbygginga að yfirbragði
og formeinkennum þeirrar sögu-
legu byggðar sem fyrir er á há-
skólalóðinni næst Hringbraut.
Stofnunin leggi áherslu á að áferð
og litaval ytra borðs fyrirhugaðra
nýbygginga myndi eðlilega teng-
ingu við elstu byggingarnar innan
reitsins, Þjóðminjasafnið, Gamla
Garð og Setberg.
Pétur H. Ármannsson arkitekt
og sviðsstjóri hjá Minjastofnun
segir í samtali við Morgunblaðið
að Andrúm arkitektar hafi haft
samráð við Minjastofnun um lita-
setningu nýbyggingar þar sem
tekið var mið af upphaflegum múr-
lit Gamla Garðs og steinaðri áferð
nálægra bygginga, Setbergs og
Þjóðminjasafnsins. „Að mínu mati
tókst með þessu að mynda sam-
ræmda heild þar sem gamalt og
nýtt kallast á,“ segir Pétur.
Ástæða er til að hvetja áhuga-
fólk um húsagerðarlist til að skoða
nýbygginguna við Gamla Garð.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Nýbygging Hér er horft að Gamla Garði úr suðurátt. Viðbyggingin þurfti að tala við umhverfi sitt og hið stærra samhengi háskólasvæðisins, segja arkitektar hússins í umsögn sinni um verkið.
Þar sem gamalt og nýtt kallast á
Nýtt og gamalt Nýbyggingin sést hér austan við hinn upprunalega Gamla Garð, sem var byggður árin 1933-34.
Innanhúss Viður og litir vísa í eldra hús ásamt sjónsteypu og stáli og mætast
þar gamli og nýi tíminn. Mildir litir eru áberandi á göngum nýbyggingar.
- Viðbygging við Gamla Garð fylltist á augabragði - Íbúarnir eru mjög ánægðir með aðstöðuna
- Nálgunin við verkefnið var sú að kallast á tillitssaman hátt á við eldra húsið, segja arkitektarnir
Tenging Húsin eru tengd með gler-
byggingu sem snýr að Hringbraut.
BAKSVIÐ
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Viðbygging við elsta stúdentagarð
háskólans, Gamla Garð, var vígð í
október í fyrra. Viðbyggingin fór
strax í útleigu og fylltist eins og
skot, segir Guðrún Björnsdóttir,
framkvæmdastjóri Félagsstofn-
unar stúdenta. Guðrún segir að
íbúarnir séu mjög ánægðir með
aðstöðuna og hún heyri ekki betur
en háskólasamfélagið sé mjög sátt
við bygginguna.
Um er að ræða tvær byggingar
og þar eru 69 einstaklingsherbergi
með sérsalerni. Þá eru þar setu-
stofur, samkomusalur og sameig-
inleg eldhúsaðstaða sem styrkir
mjög félagslega þáttinn með því að
hvetja til samskipta og minnka lík-
ur á því að nemendur einangrist.
Var byggður árin 1933-34
Gamli Garður var byggður árin
1933-34 og nýttur sem stúdenta-
íbúðir/sumargisting. Hinn þjóð-
þekkti arkitekt Sigurður Guð-
mundsson teiknaði húsið. Fyrstu
stúdentarnir fluttu þangað inn
haustið 1934. Það var árið 2016
sem farið var að undirbúa við-
byggingu við Gamla Garð.
Borgarráð samþykkti síðan í
ágúst 2019 deiliskipulag fyrir
svæðið byggt á tillögu Andrúms
arkitekta. Að sögn arkitektanna
22 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 2022
LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800
SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646