Morgunblaðið - 14.04.2022, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 14.04.2022, Qupperneq 24
VIÐTAL Atli Steinn Guðmundsson atlisteinn@mbl.is „Ég fæddist í Reykjavík árið 1959 og svo flutti ég til Vestmannaeyja þar sem ég bjó til átta ára aldurs,“ hefur dr. Ragnheiður Bragadóttir frásögn sína, prófessor í augnlækningum við Háskólasjúkrahúsið í Ósló í Noregi, Ullevål í daglegu tali, og sérfræð- ingur í sjónhimnuskurðlækningum. Við erum stödd á skrifstofu Ragn- heiðar í byggingu númer 36, Ullevål- sjúkrahúsið er nánast eins og eigið sveitarfélag mitt í norsku höfuðborg- inni og ekki fyrir hvern sem er að rata um fjölda bygginga á lóðinni, þær elstu frá ofanverðri 19. öld. Ragnheiður fannst þó að lokum. Augnlæknirinn hefur búið í Skandinavíu hálfa ævi sína, hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1979 og innritaðist í lækna- deild Háskóla Íslands, þegar ákveðin í að helga starfsferil sinn því sem við gætum einna best samkvæmt orða- tiltækinu – sjáaldri augans. „Ég var eiginlega ákveðin í að verða augn- læknir áður en ég byrjaði í lækn- isfræðinni. Mér finnst augað svo fal- legt og sjónin er svo mikilvæg,“ segir Ragnheiður og erfitt að mótmæla þeirri yfirlýsingu enda hefur hún aukið lífsgæði býsna margra um dag- ana, sé aðeins litið til skurðaðgerða hennar skipta þær þúsundum á löngum ferli. Sérfræðingur í rafeðlisfræði „Á þessum tíma var ekki numerus clausus [fjöldatakmarkanir miðaðar við ákveðinn fjölda efstu próftaka] í læknadeildinni en þegar ég byrjaði voru þar margir sem voru að fara í annað og þriðja skiptið á fyrsta ár og rosaleg pressa á okkur, það var reynt að fella okkur og því haldið áfram gegnum allt læknanámið,“ segir Ragnheiður og getur ekki var- ist hlátri. „Við vorum held ég yfir 60 sem útskrifuðumst ’86 og svo tók ég kandídatsárið á Akureyri,“ heldur hún áfram og játar að á þessum tíma hafi hún þó aðeins verið að bíða eftir að komast á augndeild. Það tókst og við tóku níu mánuðir á Landakots- spítala en þá var stutt í Skandinavíu- för og þaðan hefur Ragnheiður enn ekki snúið. „Ég fékk hjálp frá Ingimundi Gíslasyni, lækni á Landakoti, við að koma mér út til Svíþjóðar. Ég hafði áhuga á rannsóknum á sjónhimnunni og þannig lenti ég í Linköping,“ segir Ragnheiður sem bjó um árabil í þessum sænska smábæ en háskóla- sjúkrahúsið þar var á þessum tíma mjög framarlega í sjónhimnurann- sóknum og lauk hún doktorsgráðu í augnlækningum þaðan árið 1996 sem sérfræðingur í rafeðlisfræði augans. Í Linköping komst Ragnheiður í kynni við Kristinu Narfström, pró- fessor í dýralækningum, sem að sögn Ragnheiðar var býsna lunkin við að finna dýr með sjónhimnusjúkdóma, bæði hunda og ketti. „Í hundum og köttum eru mjög margir arfgengir sjónhimnusjúkdómar sem hún hefur fundið og við fengumst til að mynda við sjónhimnuígræðslur á köttum í Gautaborg. Þeirri sem sá um kettina fyrir okkur þar þótti hálfóhugnan- legt að við værum að fara að skera í augun á köttum en ég sagði henni að hún gæti verið alveg róleg með það, ég væri búin að æfa mig svo mikið á mannfólkinu,“ segir Ragnheiður og glottir við tönn. Ýmislegt gagnlegt hafi komið upp úr þessari vinnu, viss genastökk- breyting hafi til dæmis uppgötvast í hundum. „Hundarnir sem við með- höndluðum voru með stökkbreyt- ingar í RPE65-geninu. Ástralskir vísindamenn gerðu vírusvektor með heilbrigðu RPE65-geni og við kom- um því fyrir undir sjónhimnu í aug- um hundanna. Vírusvektorinn smit- aði frumurnar með fríska geninu og hundarnir fengu sjón,“ útskýrir Ragnheiður ferlið og hljómar nánast sem biblíusögur í eyrum óinnvígðra. Kveður hún þarna á ferð eitt margra gena í hverjum stökkbreytingar valda sjónhimnusjúkdómum sem leiða til blindu og er reyndar ákveðin þungamiðja í störfum hennar við Ullevål. 1.300 sjúklingar á listanum „Þegar ég kom hingað varð ég yfirmaður á deild fyrir sjónhimnu- skurðlækningar og setti á fót rann- sóknarstofu fyrir elektrófýsíólógíu [rafeðlisfræði] hérna niðri í kjallara og hún Sonja, sem við mættum í stig- anum, er tæknimanneskja þar,“ seg- ir Ragnheiður af genarannsókn- unum og blaðamaður man glöggt eftir téðri Sonju í stiganum, bros- mildri og huggulegri. Stemningin er mjög heimilisleg hér á augndeildinni. „Í elektrófýsíólógíunni getum við greint á milli þess hvort um arfgenga sjónhimnusjúkdóma er að ræða eða sjúkdóma af öðrum orsökum,“ út- skýrir Ragnheiður. Hún heldur lista yfir sjúklinga, sem greindir eru á rannsóknarstof- unni, og smám saman hafi margar stökkbreytingar fundist með rann- sóknum sem teygja sig víða um heim. Á listanum hafi því fjölgað jafnt og þétt og hann brátt talið 1.300 manns. Fáeina úr þessum hópi var ekki hægt að meðhöndla fyrr en téð- ar rannsóknir á hundunum höfðu skilað sínu. „Fyrsta genameðferðin á arfgengum augnsjúkdómi var ein- mitt á RPE65, að hluta til vegna okk- ar rannsókna á hundunum. Við höfð- um þá á skrá nokkra sjúklinga sem ég meðhöndlaði fyrir tæpu ári. Loks- ins eftir 20 ár!“ segir Ragnheiður sigri hrósandi og játar að draumur hennar hafi einmitt verið að hefja meðhöndlun þessara sjúklinga áður en sól eftirlaunaáranna risi yfir hana. Samstarf þeirra Narfström, sem hófst í Linköping á sínum tíma, teyg- ir sig yfir áratugi og raunar langt út fyrir Skandinavíu og Evrópu. „Hún fékk prófessorsstöðu í Missouri, var „headhunt-uð“ [ráðin gegnum stjórnenda-/sérfræðingaleit] til Bandaríkjanna og samstarf okkar hélt áfram eftir það. Hún fékk þar mjög góða aðstöðu til sinna rann- sókna, ég var þar mörgum sinnum og við gerðum augnaðgerðir saman,“ segir Ragnheiður en í vefútgáfu þessa viðtals má sjá mynd af þeim Narfström framkvæma augnaðgerð á hundi í Missouri í byrjun ald- arinnar. Blindur ef við gerum ekkert Sjúklingar koma inn á skurðar- borð Ragnheiðar af ýmsum ástæð- um, svo sem þegar um sjónhimnulos er að ræða, sem er bráðaaðgerð, og sjóntap af völdum sykursýki en sá sjúkdómur getur valdið blindu sé hann það langt genginn að leysi- geislameðferð dugi ekki til. „Tækninni hefur fleygt mikið fram síðustu árin, fyrir tuttugu árum sögðum við við sykursjúka, sem voru komnir á þetta stig, „ef við gerum ekki neitt missirðu sjónina, ef við skerum þig þá sérðu annaðhvort á morgun eða þú verður blindur“, en núna er þetta allt öðruvísi, miklu betri áhöld, meiri kunnátta og svo tæknin við að sjá inn í augað,“ út- skýrir Ragnheiður og segir frá smá- sjártækni sem gerir læknum kleift að skoða augað að innan. „Þú færð að sjá það í aðgerðinni núna á eftir,“ segir læknirinn glaðhlakkalega og blaðamanni rennur kalt vatn milli skinns og hörunds. Meðal þess sem Ragnheiður nefn- ir af tækniframförum síðustu ára eru mun smærri áhöld til augnaðgerða. „Nú gerir maður bara pínulítil göt í gegnum augnvegginn, áður fyrr þurfti að gera stór op til að komast að með stærri verkfæri inn í augað. Núna erum við líka með miklu betri smásjár og linsur og horfum á að- gerðina á þrívíddarskjá, ég held það séu bara 500 sjúkrahús í öllum heim- inum með svoleiðis, eitt sjúkrahús í viðbót við okkur hér í Noregi og ég veit að til stendur að kaupa slíka skjái í Stokkhólmi og Kaupmanna- höfn.“ Akrýllinsur og glerhlaupslos Augnskurðaðgerðir Ragnheiðar taka yfirleitt um klukkustund og sjúklingur almennt útskrifaður heim samdægurs með heimsókn í eftirlit daginn eftir. Ótrúlegt? Kannski ekki árið 2022. Aðrar frásagnir af hinum fínþráðóttari vefjum augn- skurðlækninga hljóma jafnvel enn ævintýralegar. „Í sumum aðgerðum notar maður gas inn í augað og síli- konolíur til að loka sárinu, maður getur ekki saumað sjónhimnuna. „Sú sem ég ætla að óperera á eftir,“ segir Ragnheiður, í þessu viðtali er norsk- um og sænskum læknisfræði- hugtökum mikið slett eftir langa bú- setu og allt í lagi að leyfa þeim að vera með sums staðar, „er með það sem kallast ellidrer, eða cataract [einnig ský á auga], þetta er algeng- asta aðgerðin á auga,“ heldur hún áfram og lýsir því hvernig aðgerðin fer fram og lyktar með því að akrýl- linsu er komið fyrir í auganu til að auðvelda sjúklingnum daglegt líf. Þessu fylgja frekari frásagnir af augnkvillum, svo sem götum á sjón- himnu og glerhlaupslosi svokölluðu og þeim aðferðum sem beitt er á skurðarborðinu þessu til meðhöndl- unar sem er vægast sagt nákvæmn- isvinna, unnin gegnum smásjá tengda þrívíddarskjá og alls ekki fyr- ir skjálfhenta. Þegar hér er komið sögu í viðtal- Gætir sjáald- urs auga þíns - „Reynt að fella okkur allt námið“ - Fjórir íslenskir læknar á deildinni Morgunblaðið/Atli Steinn Guðmundsson Efla alla dáð Gott augnsamband læknis og sjúklings verður seint ofmetið og hér horfir dr. Ragnheiður Bragadóttir (vinstra megin) í auga sjúklings síns af þrívíddarskjá og skjámyndin því ekki alveg í fókus frá sjónarhóli lesenda. Skurðlæknirinn Ragnheiður lauk doktorsprófi í rafeðlisfræði augans árið 1996 og hefur meðal annars fengist við sjónhimnuígræðslur á köttum. Íslenskar Þær eru fjórar, íslensku augnlæknarnir við Ullevål, f.v. Ragn- heiður, Helga Huld Petersen, Þóra Jónsdóttir og Valgerður Traustadóttir. 5 SJÁ SÍÐU 26 Morgunblaðið/Atli Steinn Guðmundsson 24 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 2022 N Ý F O R M H Ú S G A G N A V E R S L U N Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is Mikið úrval af HVÍLDARST með og án rafmagns lyftib ÓLUM únaði Verslunin er lokuð laugardaginn 16. apríl
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.