Morgunblaðið - 14.04.2022, Side 29

Morgunblaðið - 14.04.2022, Side 29
29 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 2022 i á Snæfellsnesi VATNASAFN ●Stykkishólmur HELGAFELLSSVEIT DALABYGGÐ EYJA- OG MIKLAHOLTSHREPPUR SNÆFELLS- BÆR GRUNDAR- FJARÐAR- BÆR Bjarnar- hafnar- fjall Jónsnes Hofsstaðavogur K ol gr af ar fj ör ðu r Á lfta fjörður Breiðafjörður Stykkishólmur í Helgafellssveit Staðsetning, helstu staðreyndir og kosningaúrslit Úrslit í síðustu sveitarstjórnarkosningum* Kosið var 26. maí 2018 Kjörskrá: Atkvæði: Kjörsókn: 833 737 89% ÍBÚAR 1.290 AFGANGUR* 109 m.kr. HEILDARSKULDIR 2022 2,8 ma.kr. SKULDAHLUTFALL** 2022: 139% 2025: 130% KYNJASKIPTING ALDURSSKIPTING ÍBÚAR 18 ÁRA & ELDRI 1.002 FLATARMÁL 254 km² 51% Karlar Konur 49% H-listinn er með hreinan meirihluta Bæjarstjóri: Jakob Björgvin Jakobsson Forseti bæjarstj.: Hrafnhildur Hallvarðsdóttir (H) *Áætlanir um A- og B-hluta 2022 **Áætlanir um A- og B hluta. 0 50 100 150 200 250 300 350 > 7051-7031-5018-30< 18 ■ H H-Listinn 46,0% 4 ■ L Samtök félagshyggjufólks 22,8% 1 ■ 0 Okkar Stykkishólmur 31,2% 2 Stykkishólmur og Helgafellssveit samþykktu sameiningu með afgerandi hætti í mars síðastliðnum. Hólmurinn hafði 1.211 íbúa á 11 km² lands en Helgafellssveit aðeins 79 íbúa en 243 km². Í Stykkishólmi er talsverð útgerð, verslun, þjónusta og stjórnsýsla, ferðaþjónusta var talsverð fyrir og hefur aukist mikið síðustu ár. *Hér eru úrslit í Stykkishólmi 2018, en hreppsnefndarkosningarnar í Helgafellssveit voru óhlutbundnar, 45 á kjörskrá og 36 gild atkvæði. DAGMÁL Andrés Magnússon Stefán E. Stefánsson Í febrúar síðastliðnum samþykktu íbúar Helgafellssveitar og Stykkis- hólmsbæjar að sameina sveitar- félögin tvö. Þar munu íbúar því ganga til kosninga í nýjasta sveitar- félagi landsins í maí næstkomandi. Tvö framboð skiluðu inn listum. Annars vegar er það H-listi fram- farasinna og hins vegar Í-listi Íbúa- listans. H-listinn hefur verið með hreinan meirihluta síðasta kjör- tímabilið og teflir fram öðru sinni bæjarstjóraefninu Jakobi Björgvin Jakobssyni. Dagmál Morgunblaðsins óskuðu eftir samtali við oddvita framboð- anna beggja. Mætti Hrafnhildur Hallvarðsdóttir til leiks fyrir hönd H-lista, sem hún leiðir, en þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir þar um sáu efstu menn á lista Í-listans sér ekki fært að mæta til leiks. Var sú skýring gef- in að enn ætti fólk eftir að stilla sam- an strengi, ekki síst vegna samein- ingarinnar fyrrnefndu, og að ekki væri tímabært að tjá sig við fjöl- miðla. Sáu sér ekki fært að mæta Þar við sat en auk Hrafnhildar boðuðu blaðamenn Morgunblaðsins Sævar Benediktsson hjá fyrirtækinu BB og synir ehf. til leiks. Það kom því nokkuð á óvart þegar bróðir hans, Hafþór, mætti á svæðið og sagði Sævar upptekinn. Hann hefði sent sig í sinn stað. „Það er ekkert nýtt. Ég hef farið til tannlæknis fyrir hann,“ útskýrði Hafþór og uppskar hlátur við- staddra. Viðtalið við þau Hafþór og Hrafnhildi má nálgast í hljóð- upptöku á mbl.is og á helstu hlað- varpsveitum undir heitinu Dagmál – Kosningar 2022. Hrafnhildur segir áherslumun milli framboðanna og hún neitar því ekki að H-listinn halli sér meira til hægri í pólitíkinni meðan Í-listinn njóti frekar stuðnings félagshyggju- aflanna á svæðinu. Spurð út í hvern- ig afstöðumunur listann á yfirstand- andi kjörtímabili hafi birst segir hún að H-listinn hafi lagt áherslu á fram- kvæmdir og uppbyggingu en hlotið gagnrýni fyrir það, þar sem það hafi kallað á lántökur. Nefnir hún sem dæmi frágang á lóð grunnskólans sem var byggður árið 1985 en lóðin aldrei kláruð. „Það var ekki alveg samstaða um það. Það kostaði og við áttum ekki fullt af peningum en við vildum fara í það. Hún hafði verið nógu lengi svelt. Við fórum líka í að ljúka við byggingu leikskólans. Hann var byggður 2007. Þá vantaði eina deild því þá voru færri börn. Nú vantar okkur fleiri leikskólapláss af því að unga fólkið er að þyrpast heim.“ Þau Hrafnhildur og Hafþór eru sammála um að atvinnustig í sveitar- félaginu sé með besta móti. Er hann raunar mjög skorinorður þegar kemur að stöðunni. Allir geta fengið vinnu „Það þarf enginn að vera atvinnu- laus hérna og það ætti í raun að slökkva á atvinnuleysisbótasjóðum um land allt almennt í dag. Það þarf að draga fólkið út og láta það fara að vinna. Það geta allir fengið vinnu sem vilja vinna. Það vantar fólk al- staðar.“ Bendir Hafþór á að fyrirtækin sæki starfsfólk víða að og að upp- bygging víðar á landinu smiti yfir í Hólminn. Þannig hafi aukin umsvif í laxeldi á Vestfjörðum haft jákvæð áhrif á þjónustugeirann á Snæfells- nesi. T.a.m. hafi skipasmíðastöðin í Stykkishólmi mikið að gera í við- haldi því tengdu. Hrafnhildur segir sveitarstjórnina vilja búa í haginn með frekari upp- byggingu. Þannig verði best stuðlað að hóflegum en traustum vexti. Seg- ir hún mikinn í hug í fólki og að það sé t.d. jákvætt að fasteignaverð í Stykkishólmi sé hátt í samanburði við önnur svæði á landsbyggðinni. Dagmál Hafþór Benediktsson hjá BB og synir ehf. og Hrafnhildur Hallvarðsdóttir, oddviti H-listans í komandi kosningum, ræddu við Andrés Magnússon og Stefán E. Stefánsson í heimsókn þeirra í Hólminn fyrr í vikunni. Unga fólkið tekið að þyrpast í bæinn á ný - Atvinnustig hátt í Hólminum - Þörf á frekari uppbyggingu Morgunblaðið/Sigurður Bogi Mikið er rætt um þörfina fyrir nýjan Baldur en skipið sem nú tengir Vest- firði og Stykkishólm er komið verulega til ára sinna. Skipið er 40 ára.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.