Morgunblaðið - 14.04.2022, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 2022
FAXAFEN 14, 108 REYKJAVÍK
WWW.Z.IS
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Kunnugleg andlit prýða merki glænýs hlaðvarps sem leit
dagsins ljós á dögunum. Leikarinn Aron Már Ólafsson,
oft kallaður Aron Mola, og fjármálafræð-
ingurinn Arnar Þór Ólafsson, sem er einn-
ig stjórnar hlaðvarpinu Pyngjan, eru
mennirnir á bak við hlaðvarpið Ólafssynir í
Undralandi. Hlaðvarpið stökk strax upp í
fyrsta sæti á vinsældalista Apple podcast
en fyrsti þátturinn datt inn á hlaðvarpsveitur á laug-
ardag.
„Svo hér er um afar sjaldgæft kombó að ræða á hlað-
varpsmarkaði og erum við nánast tilbúnir að fullyrða að
hér eru áður óseð öfl að mætast á bak við míkrafóninn,“
segir Arnar í samtali við morgunblaðið og K100.is.
„Þrátt fyrir að deila eftirnafni eru ungu mennirnir
ekki bræður heldur vinir sem kynntust í Verzló á ung-
lingsárum. Þeir benda lesendum á að hlusta á fyrsta
þáttinn til að heyra hvernig vinirnir kynntust.
Aron Már lýsir því að þeir Arnar vilji leyfa hlust-
endum að líða eins og þeir séu inni í stofu hjá þeim.
„Við viljum vera vinir hlustandans,“ segir Aron sem
segir að spjallhlaðvarpið Þarf alltaf að vera grín hafi
veitt þeim ákveðinn innblástur enda veit hlustandi alltaf
hvað hann er að fara út í þegar hann kveikir á því. Vin-
irnir segja þó líklegt að þeir fái til sín einhverja viðmæl-
endur í framtíðinni en til að byrja með vilji þeir leyfa
hlustendum að kynnast þeim sjálfum.
„Til að byrja með verður áhersla lögð á líflegar um-
ræður um svokallaðar „kanínuholur“ sem ég og Aron
eigum reglulega til að detta ofan í á netinu. Þess á milli
verðum við með alls konar liði og sprell en þetta er allt í
mótun enn þá,“ segir Arnar.
„Hlaðvarpið fjallar í raun og veru ekki um neitt en
samt á sama tíma fjallar það um svo ótrúlega mikið. Við
erum ekki með neinn fastan þráð í gegnum umræðurnar
af því að umræðurnar fara út í geim og til baka,“ segir
Aron Már jafnframt.
„Við viljum búa til hlaðvarp sem fólk vill hlusta á – vill
koma inn í stofu til þín og hitta góða vini,“ bætir hann við
en hann segir einnig að þeir vilji búa til samtal milli
hlustenda og hlaðvarpsins.
„Þetta er vinalega hlaðvarpið sem þú hlusta á. Þú vilt
hlusta á þetta á leiðinni út í sveit. Þú þarft ekkert að
fylgjast með okkur í línulegri röð.“
Áhugaverð hlaðvörp frá Aroni og Arnari
K100 fékk Aron og Arnar til að deila nokkrum af sín-
um uppáhaldshlaðvörpum með lesendum en þeir eru
báðir afar afslappaðir þegar kemur að hlaðvarpshlustun.
Aron mælti strax með hlaðvarpi vinar síns, Pyngjunni,
en þrátt fyrir að vera ekki hlutlaus segist einlæglega
hafa gaman að því að hlusta á þættina sem fjalla um árs-
reikninga fyrirtækja.
„Það hljómar þurrt á blaði en það er mjög blautt þegar
þú hlustar á það. Ég hafði ekki hugmynd um að ég hefði
áhuga á þessu – og konan mín líka,“ segir Aron sem segir
að hlaðvarpið seðji ákveðna forvitni.
Þá fylgjast þeir báðir með hlaðvarpinu Þarf alltaf að
vera grín, sem veitti þeim ákveðinn innblástur.
„Þú þekkir raddirnar, þú þekkir einkahúmorinn, þú
þekkir einstaklingana,“ segir Aron. „Það er svona eins
og að vera kominn inn í stofu til þeirra.“
Blökastið, hlaðvarp Audda, Steinda og Egils, er einnig
í uppáhaldi enda menn sem þeir Aron og Arnar hafa
fylgst með frá því þeir voru yngri. Þeir eru líka hrifnir af
nýja hlaðvarpinu Eftirmál auk þess sem The Snorri
Björns Podcast Show og Normið eru í uppáhaldi hjá þeim.
Áður óséð öfl mætast
í Ólafssonum í Undralandi
Vinirnir Aron Már, eða Aron Mola eins og
er oft kallaður, og Arnar Þór byrjuðu á
dögunum með hlaðvarpið Ólafssynir í
Undralandi en þar bjóða þeir hlust-
endum inn í stofu til sín og draga þá
með sér í skemmtilegar „kanínuholur“.
Ferskir Aron Mola og Arnar Þór bjóða hlustendum inn í
stofu til sín í nýja hlaðvarpinu Ólafssynir í Undralandi.
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
„Síðan ég byrjaði með ferðaskrif-
stofuna var Sýrland einn af fyrstu
áfangastöðunum sem ég ákvað að
fara til,“ sagði heimshornaflakk-
arinn Björn Páll Pálsson sem var
staddur á Sýrlandi ásamt fríðu
föruneyti þegar
Síðdegisþátt-
urinn heyrði í
honum í vikunni.
Björn hefur
ferðast einsamall
á spennandi
staði um allan
heim síðasta ára-
tuginn en ekki er
langt síðan hann
ákvað að deila
fróðleiknum og
ferðaástríðunni með öðrum og
stofnaði ferðaskrifstofuna Crazy
Puffin Adventures.
Björn, sem hafði ferðast um Sýr-
land í viku fyrir símtalið, var al-
gjörlega heillaður af landi og þjóð.
Sagðist hann ekki hafa fundið
fyrir neinu óöryggi síðan hann kom
til landsins ásamt sjö manna hópi
en hann sagði Sýrlendinga hafa
tekið þeim opnum örmum, enda
hafa nánast engir túristar ferðast
til landsins um hríð, síðan stríð
skall á í landinu.
„Ég myndi segja að núna væri
Sýrland öruggara en London,“
sagði Björn.
Engir aðrir túristar
„Þetta er vinalegasta fólk sem
ég hef kynnst. Það fyrsta sem mað-
ur heyrir þegar maður hittir sýr-
lenskt fólk er bara: Velkomin til
Sýrlands. Þau eru rosalega ánægð
að sjá túrista í landinu,“ sagði
Björn sem segist ekki hafa séð
neina aðra túrista á ferðalaginu.
„Þetta er búið að vera mjög sér-
stakt að vera að ferðast hérna um
landið og vera alveg út af fyrir
okkur,“ sagði hann en hópurinn
hafði þá ferðast til Damaskus,
Aleppo, Homs og var staddur í
bænum Latakia. Björn staðfesti þó
að Sýrland hefði verið vinsæll
ferðamannastaður fyrir stríðið
enda fullt af fögrum ströndum,
strandbæjum og ómetanlegum
minjum.
„Svo erum við búin að skoða
mikið af kastölum og minjum. Við
vorum í dag að skoða kastala sem
er dagsettur alveg 5.000 ár aftur í
tímann. Sýrland er með mjög ríka
sögu og mjög mikið af fornminjum
sem er gaman að skoða,“ sagði
Björn sem segir að hægt væri að
lýsa ferðinni sem menningarferð.
„Við erum að kynnast þjóðinni,
matnum og borgunum,“ bætti hann
við.
Stríðið setti mark á landið
Hann sagðist þó sjá það mark
sem stríðið í Sýrlandi hefði sett á
landið, sérstaklega í Aleppo og
Homs þar sem mikið var sprengt.
Þar er nú mikið af rústum glataðra
minja eftir sprengjurnar.
Hópurinn leggur þó ekki mikla
áherslu á að skoða áhrif stríðsins á
landið heldur einblínir á að kynn-
ast landinu sjálfu.
„En maður verður var við þetta
stríðsástand sem var hérna í tíu ár,
en það er alveg nóg að sjá,“ sagði
Björn en hann staðfesti að það
væri mikil öryggisgæsla hvarvetna.
Hópurinn er því með sýrlenskan
leiðsögumann og sagnfræðing sem
fylgir þeim hvert fótmál, til að auð-
velda pappírsvinnuna sem fylgir
öryggisgæslunni, og er sérstaklega
fróður um landið.
„Þetta er búið að vera mikið æv-
intýri,“ sagði Björn og staðfesti að
auk þess væri veðrið alveg „geggj-
að“ á þessum árstíma, í kringum 25
gráðurnar.
Sýrland öruggara
en London
Ríkt Sýrland er með ríka sögu,
fjölda kastala og merkilegra minja.
Rúta Ferðalangarnir hafa ferðast
um Sýrland meðal annars í rútu.
Heimshornaflakkarinn Björn Páll ferðast nú um
Sýrland sem hann segir að sé í senn gullfallegt,
öruggt, stórmerkilegt og fullt af vinalegasta fólki
sem hann hefur hitt.
Björn Páll
Pálsson
Upplifun Björn og ferðalangarnir
sjö sem eru með honum eru al-
gjörlega heillaðir af Sýrlandi.