Morgunblaðið - 14.04.2022, Page 43

Morgunblaðið - 14.04.2022, Page 43
Tónlist fyrir sálina Matur fyrir líkamann Aðalstræti 2 | s. 558 0000 Lifandi píanótónlist öll kvöld Opnunartími Mán.–Fös. 11:30–14:30 Öll kvöld 17:00–23:00 Borðapantanir á matarkjallarinn.is eða í síma 558 0000 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 2022 Lambalæri 1,5 kg lambalæri á beini ½ dl olía 1 tsk. broddkúmen (e. cummin) 1 tsk. paprikuduft 2 hvítlauksrif, maukuð í hvítlaukspressu 2 appelsínur, rífið börkinn af og skerið síðan í fernt 2 tsk. salt 1½ tsk. nýmalaður svartur pipar 2 msk. fersk basilíka, grófsöxuð Bakað grasker, maís og paprika 1 grasker, skrælt og skorið í grófa báta, 2 rauð chili 1 rauð paprika, skorin til helminga 2 maísstönglar, skornir í fjóra bita 2 msk. smjör salt og nýmulinn pipar Leiðbeiningar Lambalæri, grænmeti og sósa Ofureinföld uppskrift þar sem allt er eldað í sama bakkanum eða ofnpotti. Hitið ofn í 200°C. Blandið olíu, brodd- kúmeni, paprikudufti, rifnum berki af appels- ínum, salti og pipar í skál og penslið vel yfir allt lærið. Látið lærið og restina af hráefnunum í steik- arpott eða á ofnbakka og eldið allt saman í 15 mínútur, takið lærið út og ausið soðinu vel yfir. Lækkið hitann í 120°C og eldið áfram í 1-1½ klst. Ausið soðinu annað slagið yfir kjötið. Tak- ið út og látið jafna sig í u.þ.b. 15 mínútur, setjið álpappír yfir á meðan. Sáldrið saxaðri basilíku yfir áður en lærið er borið fram. Berið fram með soðsósunni úr ofnskúffunni, bragðbætið og þykkið eftir þörfum. Meðlæti Allt grænmetið er skorið gróft kryddað og sett með lærinu í eldun. Ljósmynd/Íslenskt lambakjöt Lamb x chili Þetta er blanda sem nauðsynlegt er að prófa en hér leikur broddkúmenið aðal- hlutverkið ásamt chili sem hefði ábyggilega komið einhverjum undarlega fyrir sjónir hér á öld- um áður en tónar svo skemmtilega við dásamlega bragðgott lambakjötið. Lambalæri með broddkúmeni og chili Hér getur að líta uppskrift þar sem lambalærið er kryddað á heldur óhefðbundinn hátt og útkoman er algjör veisla fyrir bragðlaukana. Meðlætið er heldur ekki af verri endanum en hér er það einfaldleikinn sem ræður og útkoman er ótrúlega skemmtileg og spennandi. Fyllt lambalæri 1 úrbeinað læri 3-4 msk. Bezt á lambið-krydd 1 blaðlaukur 2-3 sveppir 5 hvítlauksrif 1 salatfetakubbur 10 ferskar döðlur 2 msk. olía salt og pipar handfylli timían (2 tsk. þurrkað) 2 msk. Bezt á lambið-krydd Stillið ofn á 180°C. Leggið úrbeinaða lærið á bretti og skerið í kjötið til að fletja það eins vel út og hægt er. Blandið þá blaðlauk, sveppum og hvítlauk saman í matvinnsluvél og setjið í skál. Myljið ostinn saman við, bætið olíunni saman við. Skerið döðlurnar niður og blandið öllu saman. Kryddið þá með salti og pipar, timían og Bezt á lambið-kryddinu. Byrjið á því að krydda kjötið með Bezt á lambið, takið þá fyllinguna og leggið á lambið og dreifið vel yfir. Rúllið þá kjötinu upp og bindið þétt með bandi sem þolir eldun, kryddið kjötið vel að utan með Bezt á lambið. Setjið í eldfast mót og inn í ofn í 30 mín. Eftir 30 mín. setjið þið lok eða álpappír yf- ir kjötið, hægt er að halda áfram að elda það á 180°C í 1-2 klst. í viðbót eða lækka hitann niður í 150°C og leyfa því að hægeldast í 3-4 klst. Piparostasósa 100 ml rjómi 300 ml vatn ½ piparostur 1 pk. Toro-piparsósa Setjið rjóma og 100 ml af vatni í pott ásamt piparosti, gott er að skera ostinn niður til að hann sé fljótari að bráðna. Þegar ost- urinn er bráðnaður, hristið þá saman 200 ml vatn og 1 pk. Toro-piparsósu í krukku t.d. og hellið út í pottinn. Leyfið sósunni að malla í örfáar mínútur. Flóknara er það ekki! Ljósmynd/Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir Fyllt lambalæri og dýrindis piparsósa Guðrún Ýr á Döðlum & smjöri á heiðurinn af þessari uppskrift en hér er lærið úrbeinað, sem býður upp á skemmtilega fyllingu. Guðrún notar bæði salatost og ferskar döðlur, ásamt sveppum og hvítlauk. Útkoman er upp á tíu! Upplagt í veisluna Guðrún Ýr segir að sér finnist afar þægilegt að bjóða upp á úr- beinuð læri. Auðveldara sé að skera þau, eldunin verði jöfn og hægt sé að fylla þau með allskonar skemmtilegu góðgæti.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.