Morgunblaðið - 14.04.2022, Side 47

Morgunblaðið - 14.04.2022, Side 47
MINNINGAR 47 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 2022 ✝ Þuríður Júlíus- dóttirfæddist á Hellissandi 25. febr- úar 1933. Hún lést 24. mars 2022 á Hrafnistu Sléttu- vegi 25. Foreldrar Þuríð- ar voru Júlíus Alex- ander Þórarinsson, sjómaður og verka- lýðsforingi á Hellis- sandi, f. 1889, d. 1964 og Sigríður Katrín Guð- mundsdóttir húsfreyja, f. 1895, d. 1969. Börn þeirra voru fimm: Jón, Guðmundur, Hrefna, Þur- íður og Þórður en Þuríður var ein eftirlifandi þeirra systkina. að vinna fyrir sér aðeins 16 ára. Hún vann ýmis störf m.a. á veit- ingastöðum, saumastofu á hóteli á Siglufirði og í frystihúsi í Innri-Njarðvík. Einnig bjó hún í Eyjafirðinum í nokkur ár. Þuríður flutti með fjölskyld- unni til Svíþjóðar 1970 og vann við heimilisþjónustu. Keypti litla fiskbúð í Orsa og bjó til ólíka fiskrétti. Fjölskyldan bjó á hin- um ýmsu stöðum þar í landi. Þuríður menntaði sig í vinnu fyrir geðfatlaða þá í Malmö. Kunni hún því starfi vel. Fjölskyldan flutti aftur til Ís- lands 1986 og sótti hún sér þá réttindi í sjúkraliðanum og vann áfram við að sinna geðfötluðum á Hringbraut til 68 ára aldurs. Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Eina hálfsystur átti Þuríður, Lilju Jóns- dóttur. Árið 1958 giftist Þuríður Grétari Hinrikssyni og eignuðust þau þrjá syni: Hinrik, f. 1956, Eldór, f. 1957, sem er látinn, og Sigurð, f. 1959. Fyrir átti Þuríð- ur dótturina Ólöfu Bettý, f. 1951. Barnabörnin eru 7 og barnabarnabörnin eru 10. Þuríður ólst upp á Sólheimum á Hellissandi og byrjaði snemma að vinna fyrir sér í vist og þrif- um. Hún fór ung frá Hellissandi Mamma mín sofnaði svefnin- um langa 89 ára að aldri. Hún átti við veikindi að stríða síðustu æviárin. Mamma var ekki aðeins mamma mín heldur einnig besti vinur minn. Hún var yndisleg amma, full af ást og um- hyggju. Mamma mátti ekkert aumt sjá og var hjarta hennar stórt og fallegt og umhyggja fyr- ir öllum. Við ferðuðumst víða og alltaf var skemmtilegt og gott að vera nálægt henni. Ýmis óvænt atvik komu upp sem gerðu ferðirnar minnisstæðar. Hún var ein af þeim sterkustu, duglegustu og sjálfstæðustu manneskjum sem ég hef kynnst á ævinni. Hún vildi alltaf vera fínt klædd, með varalit og ilm- vatn enda glæsikona þar á ferð. Hún elskaði matarboð og bauð oft í veislur og þá var ekkert til sparað. Hún var sannarlega mik- il félagsvera. Mamma mín, ég kveð þig að þessu sinni með þeim orðum sem alltaf voru sögð og einnig þau síðustu sem þú gast sagt síðasta daginn sem þú lifðir: Love you. Lífið verður fátækara núna án þín. Takk fyrir allt. Þín dóttir, Ólöf Bettý. Elsku amma mín. Ég mun aldrei gleyma gleði þinni, hjarta- hlýjunni og innilegu knúsunum þínum. Það að vera í kringum þig var alltaf fjör og gaman, ást og samvera og þú varst klett- urinn minn þegar ég þurfti á að halda. Alltaf til staðar, hlustaðir og gafst góð ráð og endalaust af ást. Ég mun aldrei gleyma þegar við fífluðumst og dönsuðum þangað til við grétum úr hlátri hvort sem það var á Spáni eða á elsku Hlíðarveginum í Kópavogi. Ég man ófáar ferðir okkar á markaðina í Taílandi að skoða endalaust glingur og dót sem við þurftum alls ekkert á að halda, en samt, þú gast ekki staðist það því þú elskaðir allt sem glitraði og var af gulli. Þú keyptir nánast allan lagerinn af plastblómum af götusalanum þegar hann stopp- aði hjá okkur á veitingastaðnum eitt kvöldið þar og ég held hann hafi brosað alla leiðina heim til sín. Það var endalaust gaman að koma þér á óvart því viðbrögðin þín og gleðin voru stórkostleg að upplifa og góðu minningarnar eru endalausar og yndislegar og mun ég alltaf bera þær í hjarta mínu. „Love you too, amma Lou.“ Þótt ég sé látinn harmið mig ekki með tárum. Hugsið ekki um dauðann með harmi og ótta. Ég er svo nærri að hvert eitt ykkar tár snertir mig og kvelur, þótt látinn mig haldið. En þeg- ar þið hlæið og syngið með glöðum hug, sál mín lyftist upp í mót til ljóss- ins. Verið glöð og þakklát fyrir allt sem lífið gefur. Og ég, þótt látinn sé, tek þátt í gleði ykkar yfir lífinu. (Höf. óþekktur) Rebecca og fjölskylda. Þura frænka, ömmusystir mín, var ein af uppáhaldsfrænk- um mínum, orkumikil, hress og kát. Þegar ég var lítil í heimsókn hjá ömmu bað ég ömmu oft um að hringja í Þuru til að bjóða henni í heimsókn svo þær gætu farið „að leika“. Ekki var um hefðbundinn leik að ræða heldur settu þær amma á svið heilu leikþættina þegar þær rifjuðu upp gamlar minningar og léku atriði úr eigin lífi eða komu með hinar bestu eftirhermur af hin- um og þessum, svo skellihlógu þær báðar og við öll með. Þura frænka var með æðislegan hlát- ur og svo gaman að hlæja með henni. Þura var líka óspör á hrósið, einhvern tímann þegar við mað- urinn minn komum að sækja hana sagði hún eitthvað á þessa leið: „Mikið er þetta æðislegur bíll, en hvað þetta er fallegt mælaborð, en hvað þú ert frá- bær bílstjóri.“ Samantekið á blaði virkar þetta e.t.v. kómískt eða innantómt en svona var Þura, hún var óspör á lýsing- arorðin og jákvæð með eindæm- um. Því sá ég mikið eftir þegar heilsu hennar hrakaði, en þá varð stundum erfiðara fyrir hana að halda þessari jákvæðni. Á háskólaárum mínum var ég svo heppin að búa við hliðina á henni og þótti mér vænt um að geta leitað til hennar og kynnst henni betur. Þegar litið er yfir æviskeið Þuru er ekki annað hægt en að dást að þrautseigju hennar, hún var algjör nagli, hugrökk og dugleg þrátt fyrir allskyns mót- læti. Samt sem áður kom það mér á óvart að hún skyldi á átt- ræðisaldri skella sér í fallhlíf- arstökk en þegar ég spurði hana hvernig hefði verið svaraði hún: „Æðislegt en alltof stutt.“ Ég kveð þig með þakklæti í huga fyrir fallegar og góðar minningar, elsku frænka. Takk fyrir sögurnar og hláturinn, þú varst æðisleg eins og lýsingar- orðin þín. Þið amma getið nú slegið upp leiksýningu og hlegið saman á ný. Halla Tinna Arnardóttir Þura frænka var alltaf glæsi- leg til fara og Tiger-stíllinn ein- kennandi hjá henni enda átti hún ófáar slíkar flíkur. Þá fór hún ekki út úr húsi nema að varalita sig. Hún var hrókur alls fagn- aðar, elskaði veislur og alltaf tilbúin að taka þátt þar sem var fjör. Þegar hún lýsti einhverju voru lýsingarorðin allsráðandi, allt svo stórkostlegt, æðislegt, glæsilegt og frábært og hún meinti það svo sannarlega. Þura gladdist alltaf þegar vel gekk hjá fólkinu hennar. Hún bjó í Svíþjóð í um 20 ár en flutti þá heim til Íslands. Öðru hvoru saknaði hún Svíþjóðar en fyrst og fremst barnanna sinna sem þar bjuggu. Í Svíþjóð menntaði hún sig til að vinna með geð- veika eins og hún sagði og hóf starfsferil sinn þar. Þegar heim kom munaði Þuru ekki um að bæta menntun sína því sænska menntunin var ekki metin á Ís- landi svo hún kláraði sjúkraliða- skólann og vann síðan alla tíð með geðfötluðum og líkaði vel. Þegar hún bjó í Svíþjóð heim- sótti ég hana og við þvældumst um og hún lét sig hafa það að fara með mér í rússíbana í Tív- olíi í Kaupmannahöfn svo ég færi ekki ein. Allt gerði hún svo við gætum notið dvalarinnar. Hrefna móðir mín og Þura, systir hennar, voru mjög nánar og mikið stuð þegar þær hittust. Þegar þær lýstu einhverju voru leikrænir tilburðir óspart notað- ir og mikið hlegið. Þær gerðu margt saman svo þegar heilsa Hrefnu bilaði missti Þura mikið og einnig þegar vinkonur hennar kvöddu ein af annarri, henni fannst hún vera ein eftir. Þura naut þess að ferðast bæði innanlands og erlendis. Hún bjó um tíma á Spáni og í Taílandi og líkaði mjög vel. Eft- irminnileg er ferð sem við fórum saman til Orlando. Það var mikið ævintýri að heimsækja skemmti- garða og verslunarmiðstöðvar og ferðin ógleymanleg ekki síst vegna hástemmdra lýsingarorða hjá henni því allt var svo æð- islegt og frábært. Hún fór einnig til Rio í Brasilíu og fleiri landa en Spánn og sérstaklega Kanarí heillaði hana alltaf og hún hlakk- aði til að heyra ferðasögur hjá þeim sem fóru þangað. Um tíma bjuggum við Þura hlið við hlið á Hlíðarvegi í Kópa- vogi en þá var oft glatt á hjalla og mikill samgangur milli okkar og borðuðum við oft saman. Síð- ustu tvö árin dvaldi hún á Hrafn- istu á Sléttuvegi en þá hafði heilsu og sjón hennar hrakað svo mikið að hún gat ekki búið áfram í Bólstaðarhlíð þar sem henni leið vel. Hún saknaði þess stund- um að hafa flutt úr Kópavogi en þar var heilsan betri og hún gat lifað því lífi sem hún vildi. Hún var alltaf ósátt við að tapa svona sjóninni en þá bjargaði henni að geta hlustað á hljóðbækur, reglulega fékk ég að heyra að ég yrði að lesa þessa eða hina bók- ina, hún lifði sig svo inn í sög- urnar sem hún hlustaði á. Þuríður er síðust systkina sinna að kveðja þetta jarðlíf. Henni leiddist að vera ein eftir og þráði hvíldina. Síðustu orðin sem hún sagði við okkur Bettý dóttur sína voru „Love you“. Þannig kvaddi hún iðulega okk- ur nánasta fólkið sitt. Um leið og ég þakka Þuru frænku sam- fylgdina og óska henni góðrar ferðar í sumarlandið, sendi ég innilegar samúðarkveðjur til fjölskyldunnar. Love you. Brynja Kristjánsdóttir. Þuríður Júlíusdóttir Elsku mamma. Nú hef ég hugsað um þessa minning- argrein í nokkra daga og hvort ég eigi að skrifa hana yfirhöfuð, því það eru ekki til orð yfir það sem þú varst mér og því munu þessi orð aldrei ná því flugi sem þau eiga skilið. Síðustu dagar hafa einkennst af þakklæti, svo ótrúlega miklu þakklæti fyrir tímann sem við fengum og kærleikann og viskuna sem þú gafst mér, svo ekki sé talað um hláturinn sem við deildum, enda segir það nokk- uð um þig að geta fengið (uppá- halds)son þinn til þess að hlæja á dánarbeði þínum þó svo að ég hafi verið meira og minna hág- renjandi. Hágrenjandi að hvísla orðum að þér sem þú nú þegar vissir en ég vildi bara vera viss, Anna Sólmundsdóttir ✝ Anna Sól- mundsdóttir fæddist 5. apríl 1947. Hún lést 12. mars 2022. Útförin fór fram 24. mars 2022. vera alveg viss um að þú vissir hversu mikið ég elska þig, vera alveg viss um að þú vissir hversu mikið þú hefur kennt mér, vera al- veg viss um að þú vissir hversu stór hluti þú ert af mér. Þú ert og hefur allt- af verið skærasta ljósið í mínu lífi og vísað mér veginn í gegnum lífsins ólgusjó en nú er sjórinn spegil- sléttur um stund og tími til að syrgja. Syrgja og gráta það að líf- ið er breytt og verður aldrei eins. Þú lifir í hjarta mínu, mamma, og eina sem ég get gert til að heiðra minningu þína er að umvefja börnin mín þeirri hlýju og kær- leika sem þú gafst mér í vöggu- gjöf og hefur gefið mér allar göt- ur síðan. Ég segi það sama og ég sagði við prestinn: það er verið að fara að jarða bestu mömmu í heimi. Góða ferð mamma og Guð þig geymi. Þinn sonur, Herbert (Hebbi). Minningarkort á hjartaheill.is eða í síma 552 5744 Sálm. 16.11 biblian.is Kunnan gerðir þú mér veg lífsins, gleðignótt er fyrir augliti þínu, yndi í hægri hendi þinni að eilífu. Elskuleg systir okkar, mágkona og frænka, ELÍN PÁLMADÓTTIR, blaðamaður og rithöfundur, sem lést á hjúkrunarheimili Hrafnistu við Brúnaveg aðfaranótt laugardagsins 2. apríl, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni föstudaginn 22. apríl klukkan 13. Fjölskyldan sendir sérstakar þakkir til starfsfólks Sólteigs við Brúnaveg. Sólveig Pálmadóttir Helga Pálmadóttir Helgi Samúelsson systkinabörn og fjölskyldur þeirra Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSA GUÐBJÖRNSDÓTTIR, lést á heimili sínu Hömrum, Mosfellsbæ, föstudaginn 8. apríl. Útförin verður auglýst síðar. Kristín Dagný Þorláksdóttir Ásgeir Þorláksson Eva Hildur Kristjánsdóttir Vilhjálmur Þorláksson Sigrún Guðmundsdóttir Þorgeir Pétursson barnabörn og barnabarnabörn Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför okkar ástkæru INGVELDAR PÁLSDÓTTUR, Hverfisgötu 92b. Jóhannes Ólafur Ólafsson Ásta Þórunn Jóhannesdóttir Brynjar Húnfjörð Ólafía Jóhannesdóttir Einar Páll Jóhannesson Páll Aronsson Inga Einarsdóttir og aðrir aðstandendur Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát okkar ástkæra ÞORSTEINS JÓNS ÓSKARSSONAR, fyrrverandi forstöðumanns hjá Pósti og síma, Krummahólum 4, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks Vitatorgs, Hrafnistu Reykjavík fyrir einstaka umönnun og virðingu. Svanhildur Halldórsdóttir Edda Þorsteinsdóttir Halldór Guðmundsson Einar Baldvin Þorsteinsson Sally Thorsteinsson barnabörn og barnabarnabörn Við þökkum fjölskyldu og vinum auðsýnda samúð við andlát og útför ástkærs föður míns og afa okkar, ÞÓRHALLS BIRGIS JÓNSSONAR, Vesturströnd 6, Seltjarnarnesi. Við viljum einnig þakka Jakobi Jóhannssyni krabbameinslækni, Heimahjúkrun Heru og starfsfólki líknardeildar Landspítalans fyrir góða og alúðlega umönnun í veikindum hans. Gyða Þórhallsdóttir Arna Gyðudóttir Bjarki Gyðuson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.