Læknablaðið - 01.06.2022, Blaðsíða 49
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 317
Dagur í lífi svæfingalæknis
01:00 Bíb, bíb, bíb, bíb. Ohh, hvað er
þetta? Sný mér á koddanum, kíki á sím-
ann, dexcom follow appið er með við-
vörun, hár blóðsykur. Nokkuð dæmigert
miðað við tíma sólarhrings, stundum rýk-
ur blóðsykurinn upp hjá börnunum eftir
að þau eru sofnuð, stundum ekki. Annað
af tveimur er með háan blóðsykur og fær
bónus af insúlíni. Athuga blóðsykurinn
hjá hinum sykursýkiseinstaklingi heim-
ilisins, hann er fullkominn og örin beint
fram. Legg mig og fljótur að sofna aftur.
Mikilvægur eiginleiki svæfingalæknis að
vera fljótur að vakna og fljótur að sofna,
algjört lykilatriði.
03:00 Bíb, bíb, bíb, bíb. Ohh, hvað nú?
Dexcom follow sendir viðvörun, lágur
blóðsykur. Fer á fætur. Þröngva nokkrum
þrúgusykurtöflum upp í hálf sofandi
barn, bíð þar til ég sé að þeim er skilað
niður í maga, stoppa basal insúlíngjöf-
ina í 1 klst. Þetta virðist duga, blóðsykur
hættur að lækka og er á leið upp. Þvílík
himnasending sem þessir blóðsykursíritar
eru. Legg mig aftur.
06:30 Vekjaraklukkan hringir. Kaffi og
ræs á liðið. Bíddu var það ekki í dag sem
ég ætlaði að byrja nýtt líf? Hugleiða á
hverjum morgni, æfa á morgnana, borða
hollt, bara borða ketó eða vegan eða ketó-
vegan. Jú, það var eitthvað sem hljómaði
sem góð hugmynd í gær. Kaffi, annar
kaffi. Allir vaknaðir og komnir í gang.
07:15 fer af stað niður á Glerártorg á
Akureyri í vinnuna. Þar eru Læknastofur
Akureyrar til húsa. Fjölbreytt starfsemi,
móttaka, speglanir og tvær skurðstofur.
Æða-, almennar, þvagfæra-, bæklunar-,
HNE-skurðlækningar og svæfingar fyrir
tannlækna.
07:30 Mættur. Er ekki fyrstur á staðinn,
Valur þvagfæraskurðlæknir er mættur.
Hvenær mætir hann eiginlega í vinnuna
(???) og svo hjólar hann allt líka, óþolandi,
pottþétt búinn með Wim-Hof-öndunaræf-
ingar eða jóga í morgunsárið.
Skipti um föt, ræsi öndunarvélina, tek
til öll lyf og búnað fyrir daginn, keyri vél-
ina í gegnum „full test“, athuga stöðuna á
súrefninu. Hér er ég einn svæfingalæknir,
enginn svæfingahjúkrunarfræðingur í
teyminu, en verð umkringdur kröftugu
og jákvæðu starfsfólki innan skamms.
Þetta er töluvert öðruvísi vinnustaður en
hinn vinnustaðurinn minn, Sjúkrahúsið á
Akureyri. Mjög góð blanda að geta unnið
á báðum stöðum.
08:00 Tannlæknirinn mættur og fyrsti
sjúklingur dagsins tekinn inn kl. 8:00.
08:00-12:00 Hitti þrjú börn á aldrinum
2-5 ára. Þau eru samtals með líklega um
20 skemmdir. Hitti þrjá skömmustulega
foreldra. Tannskemmdir í börnum eru
vandræðalegar. En hverju er um að kenna,
spyr ég tannlækninn? „Jú - vanrækslu og
foreldrum sem spyrja barnið hvort það
vilji bursta tennurnar og svo glerungs-
göllum sem virðast vera hratt vaxandi
vandamál og enginn veit af hverju. Og
svo foreldrum sem nota ekki tannþráð hjá
börnunum sínum!“ Úpps, tannþráð hjá
börnum! Vissi ekki að þess þyrfti, hugsa
ég. „Agalegt þetta með foreldra sem nota
ekki reglulega tannþráð hjá börnunum
sínum,“ segi ég með hneykslan í röddinni.
11:00 „Bíddu, er ekkert af börnunum
búið að fara að grenja í dag, hvorki fyrir
né eftir? Mikið gengur þetta vel,“ segi ég.
Ætli það sé búið að rannsaka hvort það
séu minni grenjur eftir TIVA miðað við
svæfingu með gösum? Ég ætla að gera allt
„evidence based“ í vinnunni minni, hugsa
ég. En um leið og ég er búinn að sleppa
orðinu, heyrist hátt grenj af vöknun. Ein-
hver að vakna og er ekki í góðu skapi.
Ohh, hefði betur sleppt að segja þetta
upphátt. Aldrei að fagna of snemma.
12:30 Erum aðeins á eftir áætlun, þarf að
geta byrjað að vekja síðasta sjúklinginn
í síðasta lagi kl. 15:00 svo hann sé farinn
heim fyrir kl. 16 svo að dagsplanið gangi
upp. Sleppum mat, tek bara kaffi með mér
inn á stofuna. Næsti sem ég hitti er að-
eins eldri og með einhverfu. Það er mjög
mismunandi hversu mikið fólk langar að
láta stinga sig með nál, vinur minn hristir
ákveðið hausinn og setur upp svip sem
fer ekki framhjá neinum þegar minnst er
á nál. Hann er stór og stæðilegur og ég
myndi verða undir ef við færum að glíma.
Sé að við eigum kannski eitt sameiginlegt
áhugamál. „Hvaða ís finnst þér bestur?“
spyr ég. Færist bros yfir minn mann.
Ég held áfram. „Mér finnst súkkulaðiís
bestur. Þú verður að fá þér stóran ís
þegar þú ert búinn hjá tannlækninum.“
Á meðan við ræðum um ístegundir er
hjúkrunarfræðingurinn á stofunni búin
að setja stasa og smella inn nál. Gefum
innleiðingarlyf á meðan við tveir sjáum
fyrir okkur þann stærsta súkkulaðiís sem
gerður hefur verið.
16:00 Dagurinn gekk upp og allir á
leið heim. Sest við tölvu og fyrirtækið
mitt sendir reikning á Sjúkratryggingar
Íslands fyrir svæfingum dagsins. Tek
saman hvert byrjað korter með sjúkling
í svæfingu, urðu samtals 28 korter. SÍ
borgar fyrirtækinu strax daginn eftir, sem
borgar Læknastofunum aðstöðugjöld um
næstu mánaðamót. Fyrirtækið mitt borgar
svo annað slagið eitthvað fyrir mig eða
borgar mér laun í lok mánaðarins, það er
dýrt að hafa starfsmann, tryggingagjald,
tryggingar og fleira.
16:00-18:00 Heim, skutla krökkunum á
æfingar. Fylgist með blóðsykri þeirra á æf-
ingunum, hann á það til að sveiflast hratt
upp og niður í boltanum. Undirbúum
kvöldmat og ræðum daginn, ég og konan
mín. Erum enn svolítið norsk/sænsk og
viljum hafa kvöldmat helst fyrir kl. 18.
Eftir 18:00 Krakkarnir, heimalestur,
undirbúa morgundaginn. Mikið agalega
er ég þreyttur. Ég byrja nýtt líf á morgun,
æfi og hugleiði á hverjum degi. Ætla að
fylgjast með twitter, lesa bækur, lesa
greinar, læra meira um hjartaómun, fara
á kaffihús með vinum, verða betri að . . .
hrotur.
Bíb, bíb, bíb ...
Þóroddur Ingvarsson
á Læknastofum Akureyrar
Á myndinni eru Ingvar, Sigurður Rúnar
Sæmundsson sérfræðingur í barnatannlækn-
ingum frá Hlýju tannlæknastofu og Nanna
Hákonardóttir aðstoðarkona tannlæknis.