Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.06.2022, Blaðsíða 3

Læknablaðið - 01.06.2022, Blaðsíða 3
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 271 Hlíðasmára 8 201 Kópavogi sími 564 4104 Útgefandi Læknafélag Íslands Ritstjórn Helga Ágústa Sigurjónsdóttir, ritstjóri og ábyrgðarmaður Berglind Jónsdóttir Gunnar Thorarensen Hulda María Einarsdóttir Ingibjörg Jóna Guðmundsdóttir Lilja Sigrún Jónsdóttir Magnús Haraldsson Ólafur Árni Sveinsson Tölfræðilegur ráðgjafi Sigrún Helga Lund Ritstjórnarfulltrúi Védís Skarphéðinsdóttir vedis@lis.is Blaðamaður Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir gag@lis.is (í leyfi) Auglýsingar Ingvar Freyr Ingvarsson ingvar@lis.is Umbrot Margrét E. Laxness melax@lis.is Prófarkalestur Aðalsteinn Eyþórsson Upplag 2000 Áskrift 21.900,- m. vsk. Lausasala 2190,- m. vsk. Prentun og bókband Litróf Vatnagörðum 14 104 Reykjavík Dreifing Íslandspóstur Höfðabakka 9 110 Reykjavík © Læknablaðið Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta og geyma efni blaðsins á rafrænu formi, svo sem á netinu. Blað þetta má eigi afrita með neinum hætti, hvorki að hluta né í heild, án leyfis. Fræðigreinar Læknablaðsins eru skráðar (höfund- ar, greinarheiti og útdrættir) í eftirtalda gagna- grunna: Medline (National Library of Medicine), Science Citation Index (SciSearch), Journal Citation Reports/Science Edition, Scopus og Hirsluna, gagnagrunn Landspítala. The scientific contents of the Icelandic Medical Journal are indexed and abstracted in Medline (National Library of Medicine), Science Citation Index (SciSearch), Journal Citation Reports/Sci- ence Edition and Scopus. ISSN: 0023-7213 Læknablaðið THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL Fulltrúar frá Læknafélagi Íslands fóru nýlega í hringferð um landið. Tilgangur ferðarinnar var að kortleggja mönnunarvanda á landsbyggðinni og að kanna hvaða kjaramál brenna á læknum utan höfuðborgarinnar vegna komandi kjarasamninga ■ ■ ■ Snæfríður Ingadóttir Mikið álag, undirmönnun og vaktabinding „Við stoppuðum á alls 16 stöðum, bæði stór- um og smáum, hringinn í kringum landið, skoðuðum heilbrigðisstofnanir og ræddum við læknana á hverjum stað,“ segir Steinunn Þórðar- dóttir, formaður Læknafélags Íslands, sem fór í ferðina ásamt framkvæmdastjóra félagsins, Dögg Pálsdóttur. „Þá fannst okkur að við sem félag yrðum líka að leggja okkar af mörkum við að kortleggja mönnunarvandann. Til þess að skilja vandann betur á landsbyggðinni og átta okkur á því hvaða aðgerða er þörf fannst okkur mikilvægt að fara þessa ferð og tala beint við lækna utan höfuðborgarinnar,” segir Steinunn og heldur áfram. „Það er náttúrulega mönnunarvandi mjög víða og í mörgum af þeim héruðum sem við heimsóttum eru læknar að komast á aldur. Sumir þeirra hafa verið mjög lengi á sama staðnum. Það stefnir því hratt í það að ákveðin byggðarlög verði læknislaus innan fárra ára ef ekkert verður að gert. Þetta er stað- reynd sem hefur ekki farið hátt í samfélaginu og við erum svolítið hissa á því. Af hverju eru sveitarfélög ekki að þrýsta meira á að læknis- þjónusta sé tryggð á þeirra svæðum? Heilbrigð- isþjónusta er jú eitthvað sem er mjög ofarlega á lista þegar fólk er að velja sér stað til búsetu.” Á vakt allan sólarhringinn Aðeins var stoppað á stöðum með fasta lækna. Var það meðvituð ákvörðun vegna tímaleysis. Þjónusta verktakalækna sé að sjálfsögðu líka mikilvæg, en við þá verður rætt síðar. Einnig verður á næstunni farið til Vestfjarða, Vest- mannaeyja, Akraness, Borgarness og Suðurnesja auk þess sem fundað verður með læknum á höf- uðborgarsvæðinu. „Við heyrðum það hjá flestum læknunum úti á landi að þeim líður þar mjög vel og eru mjög ánægðir með störf sín og starfs- umhverfi þó greinilegt sé að álag sé víða allt of mikið. Þetta virðist því meira spurning um það hvernig við löðum lækna á staðina, jafnvel með einhverjum nýjum ráðum. Það kom til dæmis til tals hvort eitthvað væri hægt að styðja lækna varðandi íbúðarhúsnæði og kannski koma á einhvers konar ívilnunum, skuldbindi læknar sig til búsetu í tiltekinn tíma. Í stórum héruð- um eru oft fáir læknar þannig það er gríðarleg vaktabinding á hvern lækni. Sums staðar er bara einn læknir á staðnum, sem er þá alltaf á vakt allan sólarhringinn, jafnvel svo dögum og vikum skiptir. Í komandi kjarasamningum þarf að horfa til þess að launa þessa miklu bindingu sérstaklega, að það komi eitthvað álag þegar bindingin er orðin ákveðið mikil.“ Þá segir Steinunn að þær hafi upplif- að töluverðan mun á milli minni og stærri staða. Á stóru stöðunum hafi hreinræktaður mönnunarvandi verið afar áberandi. „Það er gríðarlegt álag á Selfossi, Akureyri og Egils- stöðum, læknarnir þar eru bara mjög undir- mannaðir. Þar vantar fjármagn og þar var meiri örmögnun, heldur en hjá læknunum í minni héruðunum. Til dæmis á Heilsugæslunni á Akureyri, þar þyrfti að tvöfalda læknahópinn. Sama er að segja um Heilsugæsluna á Selfossi. Þar hefur orðið gríðarleg íbúafjölgun og mikil fjölgun ferðamanna, auk stórra orlofshúsa- svæða, en læknunum hefur ekki fjölgað í takt við þessa aukningu.” Aðspurð hvort fjarheil- brigðisþjónusta geti ekki leyst einhvern vanda segir Steinunn svo eflaust vera, það er að segja ef það væru til læknar sem gætu bætt fjarþjón- ustu á sig. Ferðin var mjög fróðleg, gagnleg og góð og þær stöllur komu til baka með mikið af góð- um hugmyndum. „Það er afar mikilvægt fyrir okkur sem stéttarfélag að hitta fólkið okkar þar sem það starfar. Enda mætti framtakið mikilli ánægju meðal félagsmanna sem við hittum. Lík- lega verða ferðir af þessu tagi framvegis fastur liður í starfi félagsins.“ Hjónin Sigurgeir Már Jensson læknir í Vík í Mýrdal og Helga Þorbergsdóttir hjúkrunarfræðingur og sjúkraflutningamaður ásamt Steinunni Þórðardóttur formanni LÍ á yfirreið hennar um landið í vetrarveðrinu um miðjan maí. Myndin er tekin fyrir utan heilsugæsluna í Vík og Reynisdrangar fengu að vera með. Mynd/Dögg Pálsdóttir

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.