Læknablaðið - 01.06.2022, Page 3
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 271
Hlíðasmára 8
201 Kópavogi
sími 564 4104
Útgefandi
Læknafélag Íslands
Ritstjórn
Helga Ágústa Sigurjónsdóttir,
ritstjóri og ábyrgðarmaður
Berglind Jónsdóttir
Gunnar Thorarensen
Hulda María Einarsdóttir
Ingibjörg Jóna Guðmundsdóttir
Lilja Sigrún Jónsdóttir
Magnús Haraldsson
Ólafur Árni Sveinsson
Tölfræðilegur ráðgjafi
Sigrún Helga Lund
Ritstjórnarfulltrúi
Védís Skarphéðinsdóttir
vedis@lis.is
Blaðamaður
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@lis.is
(í leyfi)
Auglýsingar
Ingvar Freyr Ingvarsson
ingvar@lis.is
Umbrot
Margrét E. Laxness
melax@lis.is
Prófarkalestur
Aðalsteinn Eyþórsson
Upplag
2000
Áskrift
21.900,- m. vsk.
Lausasala
2190,- m. vsk.
Prentun og bókband
Litróf
Vatnagörðum 14
104 Reykjavík
Dreifing
Íslandspóstur
Höfðabakka 9
110 Reykjavík
© Læknablaðið
Læknablaðið áskilur sér rétt til að birta og geyma
efni blaðsins á rafrænu formi, svo sem á netinu.
Blað þetta má eigi afrita með neinum hætti, hvorki
að hluta né í heild, án leyfis.
Fræðigreinar Læknablaðsins eru skráðar (höfund-
ar, greinarheiti og útdrættir) í eftirtalda gagna-
grunna: Medline (National Library of Medicine),
Science Citation Index (SciSearch), Journal Citation
Reports/Science Edition, Scopus og Hirsluna,
gagnagrunn Landspítala.
The scientific contents of the Icelandic Medical
Journal are indexed and abstracted in Medline
(National Library of Medicine), Science Citation
Index (SciSearch), Journal Citation Reports/Sci-
ence Edition and Scopus.
ISSN: 0023-7213
Læknablaðið
THE ICELANDIC MEDICAL JOURNAL
Fulltrúar frá Læknafélagi Íslands fóru nýlega í hringferð um landið. Tilgangur ferðarinnar
var að kortleggja mönnunarvanda á landsbyggðinni og að kanna hvaða kjaramál brenna á
læknum utan höfuðborgarinnar vegna komandi kjarasamninga
■ ■ ■ Snæfríður Ingadóttir
Mikið álag, undirmönnun
og vaktabinding
„Við stoppuðum á alls 16 stöðum, bæði stór-
um og smáum, hringinn í kringum landið,
skoðuðum heilbrigðisstofnanir og ræddum við
læknana á hverjum stað,“ segir Steinunn Þórðar-
dóttir, formaður Læknafélags Íslands, sem fór
í ferðina ásamt framkvæmdastjóra félagsins,
Dögg Pálsdóttur. „Þá fannst okkur að við sem
félag yrðum líka að leggja okkar af mörkum
við að kortleggja mönnunarvandann. Til þess
að skilja vandann betur á landsbyggðinni og
átta okkur á því hvaða aðgerða er þörf fannst
okkur mikilvægt að fara þessa ferð og tala
beint við lækna utan höfuðborgarinnar,” segir
Steinunn og heldur áfram. „Það er náttúrulega
mönnunarvandi mjög víða og í mörgum af þeim
héruðum sem við heimsóttum eru læknar að
komast á aldur. Sumir þeirra hafa verið mjög
lengi á sama staðnum. Það stefnir því hratt í það
að ákveðin byggðarlög verði læknislaus innan
fárra ára ef ekkert verður að gert. Þetta er stað-
reynd sem hefur ekki farið hátt í samfélaginu
og við erum svolítið hissa á því. Af hverju eru
sveitarfélög ekki að þrýsta meira á að læknis-
þjónusta sé tryggð á þeirra svæðum? Heilbrigð-
isþjónusta er jú eitthvað sem er mjög ofarlega á
lista þegar fólk er að velja sér stað til búsetu.”
Á vakt allan sólarhringinn
Aðeins var stoppað á stöðum með fasta lækna.
Var það meðvituð ákvörðun vegna tímaleysis.
Þjónusta verktakalækna sé að sjálfsögðu líka
mikilvæg, en við þá verður rætt síðar. Einnig
verður á næstunni farið til Vestfjarða, Vest-
mannaeyja, Akraness, Borgarness og Suðurnesja
auk þess sem fundað verður með læknum á höf-
uðborgarsvæðinu. „Við heyrðum það hjá flestum
læknunum úti á landi að þeim líður þar mjög
vel og eru mjög ánægðir með störf sín og starfs-
umhverfi þó greinilegt sé að álag sé víða allt of
mikið. Þetta virðist því meira spurning um það
hvernig við löðum lækna á staðina, jafnvel með
einhverjum nýjum ráðum. Það kom til dæmis
til tals hvort eitthvað væri hægt að styðja lækna
varðandi íbúðarhúsnæði og kannski koma á
einhvers konar ívilnunum, skuldbindi læknar
sig til búsetu í tiltekinn tíma. Í stórum héruð-
um eru oft fáir læknar þannig það er gríðarleg
vaktabinding á hvern lækni. Sums staðar er
bara einn læknir á staðnum, sem er þá alltaf á
vakt allan sólarhringinn, jafnvel svo dögum og
vikum skiptir. Í komandi kjarasamningum þarf
að horfa til þess að launa þessa miklu bindingu
sérstaklega, að það komi eitthvað álag þegar
bindingin er orðin ákveðið mikil.“
Þá segir Steinunn að þær hafi upplif-
að töluverðan mun á milli minni og stærri
staða. Á stóru stöðunum hafi hreinræktaður
mönnunarvandi verið afar áberandi. „Það er
gríðarlegt álag á Selfossi, Akureyri og Egils-
stöðum, læknarnir þar eru bara mjög undir-
mannaðir. Þar vantar fjármagn og þar var meiri
örmögnun, heldur en hjá læknunum í minni
héruðunum. Til dæmis á Heilsugæslunni á
Akureyri, þar þyrfti að tvöfalda læknahópinn.
Sama er að segja um Heilsugæsluna á Selfossi.
Þar hefur orðið gríðarleg íbúafjölgun og mikil
fjölgun ferðamanna, auk stórra orlofshúsa-
svæða, en læknunum hefur ekki fjölgað í takt
við þessa aukningu.” Aðspurð hvort fjarheil-
brigðisþjónusta geti ekki leyst einhvern vanda
segir Steinunn svo eflaust vera, það er að segja
ef það væru til læknar sem gætu bætt fjarþjón-
ustu á sig.
Ferðin var mjög fróðleg, gagnleg og góð og
þær stöllur komu til baka með mikið af góð-
um hugmyndum. „Það er afar mikilvægt fyrir
okkur sem stéttarfélag að hitta fólkið okkar þar
sem það starfar. Enda mætti framtakið mikilli
ánægju meðal félagsmanna sem við hittum. Lík-
lega verða ferðir af þessu tagi framvegis fastur
liður í starfi félagsins.“
Hjónin Sigurgeir Már Jensson
læknir í Vík í Mýrdal og Helga
Þorbergsdóttir hjúkrunarfræðingur
og sjúkraflutningamaður ásamt
Steinunni Þórðardóttur formanni
LÍ á yfirreið hennar um landið í
vetrarveðrinu um miðjan maí.
Myndin er tekin fyrir utan
heilsugæsluna í Vík og
Reynisdrangar fengu að vera með.
Mynd/Dögg Pálsdóttir