Læknablaðið - 01.06.2022, Blaðsíða 11
L ÆKNABL AÐIÐ 2022/108 279
R A N N S Ó K N
Inngangur
Á Héraðsskjalasafni Skagfirðinga eru varðveitt fáséð og viðamik-
il gögn um líkamsmælingar grunnskólabarna í Barna- og gagn-
fræðaskóla Sauðárkróks sem Jón Þ. Björnsson skólameistari fram-
kvæmdi á árunum 1912-1953. Þessi gögn hafa ekki verið notuð í
rannsóknir áður, en meginmarkmið rannsóknarinnar var að bera
mælingar Jóns saman við samskonar mælingar sem gerðar voru á
börnum á sama aldri skólaárið 2018-2019 í Árskóla á Sauðárkróki
og í Varmahlíðarskóla.
Jón Þ. Björnsson fæddist þann 15. ágúst 1882. Hann lauk prófi
úr Möðruvallaskóla árið 1899 og sinnti fjarkennslu í Skagafirði allt
til ársins 1905 en þá flutti hann til Danmerkur og lagði stund á
nám við Kennaraskólann í Jonstrup og Kennaraháskólann í Kaup-
mannahöfn. Árið 1908 fluttist Jón aftur heim í Skagafjörð og hóf
þegar í stað störf við Barnaskóla Sauðárkróks þar sem honum var
boðin staða skólameistara.1 Jón kom á fót unglingadeild við skól-
ann og kenndi sjálfur mörg fög í báðum deildum ásamt því að
rannsaka líkamsástand nemenda sinna á „vísindalega hlutlausan
hátt“ samhliða læknisskoðunum.2 Jón hóf hæðar- og þyngdar-
mælingar haustið 1912, árið 1914 bættust við gripstyrks- og and-
rýmdarmælingar og árið 1918 byrjaði Jón að mæla brjóstvídd. Jón
hélt vel utan um niðurstöður mælinga og geymdi í línustrikuðum
Linda Björk Valbjörnsdóttir1,2 sjúkraþjálfari
Þórarinn Sveinsson1 lífeðlisfræðingur
Árni Árnason1,3 sjúkraþjálfari
1Rannsóknarstofu í hreyfivísindum, námsbraut í sjúkraþjálfun,
heilbrigðisvísindasviði Háskóla Íslands, 2Heilbrigðisstofnun Norðurlands á
Sauðárkróki, 3Gáska sjúkraþjálfun, Reykjavík.
Fyrirspurnum svarar Linda Björk Valbjörnsdóttir, lindabjork@skybox.is
Á G R I P
INNGANGUR
Á fyrri hluta 20. aldar voru læknar og kennarar farnir að huga að heilsufari
skólabarna á Íslandi og töldu að líkamsmælingar væru mikilvægar til að
fylgjast með líkamsþroska og gætu nýst til samanburðar við mælingar
í öðrum landshlutum, löndum og við rannsóknir. Á Héraðsskjalasafni
Skagfirðinga eru varðveitt gögn um mælingar á líkamsástandi barna á
Sauðárkróki á árunum 1912-1953 sem framkvæmdar voru af Jóni Þ.
Björnssyni skólameistara.
EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR
Hæð, þyngd, gripstyrkur, brjóstvídd og andrýmd 6-15 ára barna voru
mæld tvisvar á skólaárinu 2018-2019 í Árskóla á Sauðárkróki og í
Varmahlíðarskóla. Mælingarnar voru bornar saman við samskonar mælingar
sem framkvæmdar voru í Barna- og gagnfræðaskóla Sauðárkróks á árunum
1912-1953.
NIÐURSTÖÐUR
Börn sem voru í 2.-10. bekk skólaárið 2018-2019 voru marktækt hærri,
þyngri og með meiri brjóstvídd og andrýmd en jafnaldrar þeirra á árunum
1912-1953 (p<0,001-0,037). Börn í 2.-9. bekk voru með marktækt hærri
líkamsþyngdarstuðul en jafnaldrar þeirra 1912-1953 (p<0,001-0,027).
Marktækni hélst eftir leiðréttingu fyrir hæð og þyngd í brjóstvíddar- og
andrýmdarmælingum. Börn skólaárið 2019-2018 voru með marktækt minni
gripstyrk en jafnaldrar þeirra höfðu í 2. og 4.-7. bekk þegar leiðrétt var fyrir
hæð og þyngd (p<0,001-0,025). Þá var einnig þróun á líkamsástandi barna
yfir tímabilið 1912-1953 þar sem marktæk aukning varð í flestum mælingum
(p<0,001-0,040).
ÁLYKTANIR
Marktæka aukningu á mældum þáttum skólaárið 2018-2019 samanborið við
tímabilið 1912-1953 má hugsanlega rekja til bættra lífsgæða, svo sem betri
húsakosts og meira framboðs af matvöru.
Líkamsástand barna og unglinga
á Sauðárkróki og í Varmahlíð
fyrr og nú