Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2012, Side 10

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2012, Side 10
10 – Sjómannablaðið Víkingur Skipsbjöllur hafa öldum saman verið um borð í skipum. Þær hafa verið notaðar til merkjagjafa, til að fylgjast með tímanum og til aðvörunar. Fyrstu heimildir um bjöllur eru allt frá brons- öld og þá frá Kína þar sem þær nutu mikillar virðingar. Á miðöldum í Evrópu hófu kristnir menn að nota bjöllur til að hringja inn guðsþjónustur líkt og við þekkjum í dag sem og þegar þurfti að koma sérstökum tilkynningum á framfæri. Slegið í glas Fyrstu heimildir um skipsbjöllur eru frá árinu 1485 en þá voru þær komnar um borð í breskt skip að nafni Grace Dieu. Tíu árum síðar segja heimildir að breska skipið Regent hafi verið með tvær skips- klukkur sem nefndar voru vaktabjöllur í munalista skipsins. Eflaust hafa sjómenn fljótlega áttað sig á notagildi skipsbjöllunnar, ekki hvað síst í slæmu skyggni og þoku en fyrstu öruggu heimildirnar um slíka notkun eru frá árinu 1676. Þá mun Henry nokk- ur Teonage, sem þjónaði sem prestur í breska Miðjarðarhafsflotanum, hafa lýst því hversu hentugt var að nota skips- bjöllur í þoku, trumbur og byssuskot, svo að skipin flæktu ekki reiðum saman. Smátt og smátt fóru skipsbjölluhringing- ar að verða að venju í þoku og slæmu skyggni. Það var þó ekki fyrr en 1858 að breskar flotareglur gerðu bjölluhringing- ar að skyldu í takmörkuðu skyggni. Sigl- ingareglur hafa allar götur síðan haft bjölluhringingar sem hluta af viðvörun- arhljóðum frá skipum. Sjómenn nútímans hafa ekki þurft að nota skipsklukkur í eins ríkum mæli og áður fyrr. Í dag eru öll skip búin þoku- lúðrum sem hafa leyst skipsbjöllurnar af hólmi við merkjagjafir í takmörkuðu skyggni en reyndar eru enn ákvæði í al- þjóðasiglingareglunum um að skipsbjalla skuli slegin þegar skip liggur við akkeri sem og ef það stendur á grunni. Skipsbjöllurnar voru einnig notaðar til að fylgjast með tímanum áður en menn fengu skipsklukkur til þeirra nota. Eins og fram kom hér að framan eru til heimildir um tvær bjöllur um borð í skipum allt frá 1495 en slíkt hélst og hefur í raun haldist alla tíð að mestu. Önnur skipsbjallan er staðsett frammi á bakka og hin í stýrishúsi. Tilgangur stýr- ishússbjöllunar var að halda utan um tímavörslu á siglingavöktum. Til þess höfðu menn stundaglas sem var með sandi í og mældi nákvæmlega 30 mínút- ur. Í breska flotanum voru ungir drengir notaðir til að fylgjast með stundaglasinu og í hvert sinn sem efri hluti stunda- glassins tæmdist í það neðra snéru þeir því við og á sama tíma slógu þeir hljóm í skipsbjölluna. Þetta var kallað að slá glas. Þessi siður var við lýði á íslenskum skipum allt fram á sjötta og sjöunda ára- tug síðustu aldar. Má segja að með brott- hvarfi farþegaskipanna Gullfoss, Heklu og Esju hafi þessi siður lagst með öllu af en ég hef ekki heimildir fyrir því að glas hafi verið slegið allan sólarhringinn um borð í íslenskum skipum eftir 1973. Bjölluhringingin sagði allt Við að slá glas miðuðust bjölluhringing- arnar við fjögurra tíma langar vaktir. Eins og áður sagði var sandur í stunda- glasinu og kláraðist að renna á milli hólfa á hálftíma fresti og var jafnan sleg- ið í bjöllu þegar glasinu var snúið. Eftir að menn fengu klukkur á stjórnpalla skipa hvarf stundaglasið en menn hættu ekki að slá glas þrátt fyrir það. Á fyrsta heila tíma vaktar voru þá slegin tvö slög. Næsta hálftíma þar á eftir voru slögin þrjú. Við lok hvers hálftíma til viðbótar var alltaf bætt við einu slagi. Í lok fjög- urra tíma vaktar voru því slegin átta högg. Næsta hálftíma þar á eftir var á ný aðeins slegið eitt högg en síðan koll af kolli þar til aftur voru komin átta högg og ný vaktaskipti. Þótt þessi siður sé nú löngu aflagður á íslenskum skipum og þótt víðar væri leitað þá hefur hann þó haldist áfram í hinum tæknivædda sjóher Bandaríkjamanna. Skipsbjöllur gegndu einnig því hlut- verki að aðvara skipverja í tilfellum elds- voða um borð. Ef eldur kom upp var skipsbjöllunni hringt látlaust í fimm sek- úndur og í kjölfarið slegið eitt, tvö eða þrjú högg sem gaf til kynna hvar á skip- inu eldurinn var, framskipi, miðskips eða í afturskipi. Við brottför skipa úr höfn var skips- klukka einnig slegin. Þessi siður var við- hafður á skipum í farþegaflutningum til að vara þá, sem og aðra, við að brátt drægi að brottför skips. Þegar 20 mín- útur voru í brottför var eitt högg slegið í klukkuna, tvö högg þegar 10 mínútur voru til brottfarar og þrjú högg við brott- för. Að lokum má ekki gleyma hlutverki skipsklukkunnar við hífingu akkeris. Þegar hver einstakur liður kom upp úr sjó voru slegin jafn mörg högg og liður- inn taldi. Í því tilfelli fækkaði því högg- um eftir því sem minna var eftir af keðj- unni í sjó og þegar akkerið var komið í sjólínu var skipsklukkunni slegið ótt og títt. Á sama hátt og menn fóru að nota úr og klukkur til að fylgjast með tíman- um í stað þess að slá glös hafa ný vinnu- brögð komið í stað þeirra verka sem skipsklukkan ómaði undir. Viðvörunar- kerfi aðvara skipverja ef eldur kviknar, talstöðvar upplýsa um framgang akkeris- hífinga og skipsflautur gefa öðrum skip- um merki um ferðir sínar. Þrátt fyrir að enn séu ákvæði í alþjóðasiglingareglum um notkun skipsbjalla eru þær í dag orðnar meira punt og til minningar um gamla tíma og gamla siði. Hilmar Snorrason Sk ips b j ö l l u r Skipsklukkan af nýsköpunartogaranum Ingólfi Arnarsyni. Skipsklukkan af Gullfossi.

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.