Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2012, Page 35
Sjómannablaðið Víkingur – 35
af Stafnesi. Allur flotinn kippti þangað
en þar fengum við bara festur og rifrildi
en lítinn fisk.
Það er sæmilegt veður, sunnan kaldi
en spáir SV.
Mamma á afmæli í dag og ég ætlaði
að hringja í hana í morgun en fékk þær
fréttir að enginn væri heima, þau hefðu
farið öll til Stykkishólms á sunnudaginn
og hefðu ekki komið heim ennþá.
Einn togari byrjaði túr í dag og var
loftskeytamaðurinn vel fullur og hlógum
við mikið að honum.
Ég rakaði af mér í kvöld 11 mánaða
og 7 daga gamalt alskegg. Það urðu meiri
viðbrigðin. Mér finnst ég vera hálfber og
er skítkalt á kjömmunum. Öll áhöfnin
skemmti sér vel við þetta og sumir þeirra
þekktu mig alls ekki.
8. nóvember, fimmtudagur.
Vorum NV af Stafnesi í dag, á 60-70
föðmum í lélegu fiskiríi, festum og rifr-
ildi. Svipuð veiði hjá hinum.
Ég er ekki búinn að átta mig eftir
raksturinn, hrekk við ef ég lít í spegil og
strýk á mér skeggið eins og áður.
Það er einn dálítið undarlegur náungi
hér um borð, hann er ungur strákur,
kallaður Jói. Strákarnir sem eru með
honum í klefa eru búnir að telja honum
trú um að hann tali uppúr svefni og láta
hann taka pillur, snúa sér öfugt í kojunni
og margt fleira við þessu, svo láta þeir
hann öskra aftur að spili (hann er að-
stoðarmaður við forgálga) hvenær eigi að
hífa og slaka í hlerann, en allir skemmta
sér á hans kostnað.
Ég vorkenni nú strákgreyinu vegna
þessa.
9. nóvember, föstudagur.
Fengum ekkert í nótt, kipptum vestur á
Látragrunn en þar var ekkert að fá og
komin sunnan bræla. Var þá stímað
undan veðri útá Nesdýpi og átti að fara
að kasta þar um miðnætti en þá var
kominn stormur og ekki varð af því að
kastað yrði, enda fauk belgurinn inn yfir
dekkið þegar átti að hífa hann út.
Ég hringdi heim í dag, þar leið öllum
vel, þau höfðu farið um Snæfellsnesið,
komu í Stykkishólm og Gufuskála og
víðar. Þau báðu mig um að sækja um at-
vinnu við Loranstöðina þar, þeim líður
ekki vel að vita af mér á sjónum eftir að
Elliði sökk í vetur. Það stendur til að
bæta við loftskeytamönnum við stöðina
og er verið að byggja yfir þá.
Ég er á báðum áttum, þetta er skín-
andi tækifæri fyrir okkur Diddu mína og
Bylgju.
10. nóvember, laugardagur.
Í nótt var ofsarok sunnan og var stímað
uppundir og um kl. 3 lögðumst við í
mynni Patreksfjarðar og létum reka.
Kristján var orðinn vonlítill um að gera
Birgir Óskarsson, loftskeytamaður og greinarhöf-
undur. Eins og komið hefur fram var Birgir loft-
skeytamaður á Elliða þegar hann fórst og sat þá
sem fastast við loftskeytatækin á meðan fært var
og jafnvel örlítið lengur en það.
FAJ
Friðrik A.
Jónsson ehf
Friðrik A. Jónsson ehf
Akralind 2 - 201 Kópavogur
S: +354 552 2111 - F: + 354 552 2115
www.faj.is
Fagleg ráðgjöf, sala og þjónusta
Bjóðum aðeins viðurkenndan búnað
70
Ára
Flytjum í haust að Miðhrauni 13
Garðabæ við hlið 66° Norður.
Friðrik A. Jónsson ehf
verður 70ára
Seltumagn
Sjávar hæð
Hitaskil 0-50m
Yfiborðshiti
Svif og áta
SeaStar
Hvernig finn ég
Makrílinn?
AP70
LOWRANCE
skarpari mynd
LOWRANCE
skarpari mynd
Hámarkaðu afköstin á sjó með tækjum frá Friðrik A. Jónssyni