Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2012, Blaðsíða 48

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.2012, Blaðsíða 48
48 – Sjómannablaðið Víkingur ingar þar sem allar skipasmíðastöðvar verða uppteknar og geta ekki tekið verkefnið að sér. Í dag eru aðeins 100 skipasmíða- stöðvar sem geta framkvæmt breytingar af þessu tagi að kröfum stofnunarinnar. Það þýðir aðeins að þessar skipasmíðastöðvar þurfa að breyta 24 skipum á sólarhring allt fram til ársins 2020. Þá hafi Alþjóðasiglingastofnunin ekki tekið með í reikninginn að heimsflotinn er sárlega þjáður af kreppu og engir fjármunir á lausu til að leggja í breytingar. Það er því ljóst að ákvæðið mun þvinga útgerðarmenn til að leggja eða selja þúsundir skipa í brotajárn. Sjóferðabækur Íslenskir sjómenn hafa ekki farið varhluta að því að ekki er hægt að fá sjóferðabækur hérlendis sökum áhugaleysis stjórn- valda enda er engin stefna til í málefnum sjómanna eða sigl- inga. Enginn áhugi er á að leysa þann vanda sem sjómenn okkar standa frammi fyrir. Og það sem meira er, fyrir nokkrum árum síðan ákváðu fulltrúar stjórnvalda sem sóttu fund ILO um sjóferðabækur að þetta væri ekki neitt sem við ættum að skoða næstu árin. Því miður þá er heimurinn orðinn þannig að tor- tryggni er allsstaðar og þar af leiðandi verða menn stöðugt að vera með öruggari persónuskilríki. Í janúar skrifuðu stjórnvöld á Filippseyjum undir samning Alþjóðavinnumálastofnunarinnar ILO númer 185 sem fjallar um mun strangari sjóferðabækur en fyrra ákvæði stofnunarinnar í samþykkt ILO 108 kvað á um. Íslensk stjórnvöld uppfylla ekki einu sinni ákvæði 108 sam- þykktarinnar sem gerir sjómönnum okkar erfitt um vik og er meðal annars neitað að fara í land af skipum sínum í erlendum höfnum. Talsmaður Alþjóðaflutningaverkasambandsins, Jon Whitlow, bendir á að sú þjóð á flesta sjómenn heimsflotans sendi sterk skilaboð til stjórnvalda um allan heim. Þá bendir hann á að tilgangur samþykktarinnar er einnig að auka öryggi sem stöðugt hefur verið áhyggjuefni eftir 9/11. Nokkrum dög- um áður en stjórnvöld Filippseyja undirrituðu ákvæðið ákváðu brasilísk stjórnvöld að draga til baka tímabundið ákvæði um að sekta útgerðir þeirra skipa sem manna skip sín með áhöfnum sem ekki hafa undirritað og uppfyllt ákvæði ILO samþykktanna 185 og 108. Það er því ljóst að íslenskir sjómenn geta ekki gert ráð fyrir að komast á skip sem sigla til Brasilíu enda eru fáar út- gerðir sem hafa áhuga á mönnum sem kalla yfir þær sektir fyrir það eitt að hafa þá í áhöfn. Hryðjuverkaáætlun Nýlega fundust leynigögn á manni í Þýskalandi sem grunaður er um að tengjast hryðjuverkasamtökunum Al Qaeda sem sýndu fram á að til væri áætlun um að ræna skemmtiferðaskipi. Gögnin voru falin í klámmyndbandi með kóðun á minnislykli sem maðurinn var með á sér. Skipinu átti að ræna í hafi og síð- an átti að klæða alla farþegana í appelsínugula galla til að líkja eftir meðferð fanganna í Guantanamo Bay. Átti að nota farþeg- ana til að fá lausa grunaða hryðjuverkamenn í haldi í Banda- ríkjunum og hjá bandamönnum þeirra. Í leyniskjalinu kom fram að til hefði staðið að drepa farþegana einn af öðrum og birta myndbandsupptökur af aftökunum á vefsíðu Al Queda. Á undanförnum árum hefur verið ráðist á farþegaskip af hryðjuverkamönnum. Árið 2004 sprakk sprengja um borð í ferjunni Superferry 14 sem síðar kom í ljós að svokallaður Abu Sayyaf hópur hafði komið fyrir í skipinu og létust 118 manns. Hryðjuverkahópurinn Abu Nidal réðst á grísku ferjuna City of Poros, árið 1988, með þeim afleiðingum að 9 létust og tæplega 100 slösuðust. Þremur árum áður tóku líbýskir hryðjuverka- menn farþegaskipið Achille Lauro herskyldi og drápu fatlaðan amerískan gyðing að nafni Leon Klinghoffer. En fyrsta sjórán hryðjuverkamanna mun vera þegar portúgalskir fasistar tóku farþegaskipið Santa Maria herskyldi árið 1961 með 600 far- þegum og 300 manna áhöfn. Hryðjuverkamennirnir gáfust upp eftir að hafa fengið loforð um landvist í Brasilíu. Utan úr heimi Sjómenn til hamingju með daginn hedinn.is Sjómannablaðið Víkingur vill minna alla sjómenn á að árlega stendur blaðið fyrir ljósmyndakeppni sjómanna og rennur skilafrestur mynda út hinn 31. nóvember nk. Veitt eru verðlaun fyrir þrjár bestu myndirnar en síðan fara fimmtán myndir áfram í Norðurlanda- ljósmyndakeppni sjómanna sem mun fara fram í Noregi í ársbyrjun 2013. Nú eru sjómenn hvattir til að vera duglegir við myndatökur en myndir eru þegar byrjaðar að berast í keppnina. Myndir má senda á iceship@heimsnet.is. Ljósmyndakeppni sjómanna 2012

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.