Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1941, Blaðsíða 23
HEITIÐ Norðurlönd á sér langan aldur og er víða þekkt. Hvarvetna
um heim kannast menn við Norðurlönd og vita að þar búa menn-
ingarþjóðir. En í sumum löndum veit almenningur þó naumast skil á því,
að löndin eru fimm og þjóðirnar fimm, er þessi Iönd byggja, þó að allir, er
um Norðurlönd vita nokkuð, sé það kunnugt, að þar búa skyldar þjóðir í
Iíkum löndum.
Það er ekki ýkjalangt síðan, að það var almennt viðurkennt innan
Norðurlandaþjóðanna sjálfra, að ríkin og þjóðirnar væru fimm. Oft gleymd-
ist Island. Það er ekki fyrr en um og eftir 1920, að íslancf fékk almennt
viðurkenndan sess sem fimmta ríkið og þjóðin á Norðurlöndum. Stofnun
og störf norrænu félaganna áttu sinn mikla og góða þátt í þessari
viðurkenningu.
Norrænu félögin voru stofnuð í Svíþjóð, Noregi og Danmörku fyrri
hluta ársins 1919, og á Islandi upprunalega árið 1922 en í Finnlandi 1924.
Allir þeir, er til þekkja vita, að þessi félög, er starfað hafa um 20 ár,
hafa mjög aukið samvinnu og gagnkvæma kynningu Norðurlandaríkjanna.
Ekki hvað sízt hafa íslendingar beinlínis notið norrænnar samvinnu. En
það mál yrði of langt að rekja hér, og bíður það betri tíma og ef til vill
annarra.
2
21