Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1941, Blaðsíða 38
Norræn jól
krans logandi kertaljósa á höfðinu, færir öllu heimilisfólkinu kaffi með sér-
stöku Luciubrauði, í rúmið, eldsnemma um morguninn.
Dagarnir líða tilbreytingarlítið fram að jólum. Eftir því, sem nær
dregur hátíðinni, aukast áhyggjur og annir fullorðna fólksins, aðallega
kvenfólksins, og jólatilhlökkun unglinganna og barnanna. Það verður að
kaupa jólagjafir, því að allir verða að fá gjafir á jólunum, baka, slátra jóla-
grísnum, ef í sveit er, kaupa í jólamatinn, þvo, brugga jólaölið og
margt fleira.
Áður en nemendurnir fóru heim til sín í jólaleyfið var haldin mikil
jólaskemmtun. Fyrst var sameiginleg kaffidrykkja með ræðum, söng og
hljóðfæraslætti; síðan var leikið leikrit, lesið upp, dansaðir þjóðdansar,
sungnar gamanvísur og farið í hringleiki. Fólkið var glatt og skemmíi
sér innilega vel. Daginn eftir jólaskemmtunina fóru nemendurnir heim
í jólaleyfið, daginn fyrir Þorláksmessu. Eftir voru nokkrir nemendur,
kennarar og þrír útlendir gestir. Einn frá Eistlandi, annar frá Finnlandi
og undirritaður.
Aðfangadagurinn rann upp heiðskír og fagur. Úti var 27 stiga frost á
Celcius og stillilogn. Við, sem eftir vorum, skruppum út á skautabrautina
og hlupum þar litla stund, en fengum okkur síðan göngutúr í skóginum.
Við fórum á skíðum út í skóg til þess að leita að jólatré, fundum stórt
og fallegt jólatré langt inni í skógi. Félagi okkar frá Finnlandi var vanur
skógarhöggi og felldi jólatréð, en við hinir sátum hjá og horfðum á. Síðan
bisuðum við jólatrénu heim, reistum það upp í matsalnum, komum fyrir
á því fjölda kerta og skreyttum það glitrandi skrauti sem siður er
með jólatré.
Síðari hluta dags safnaðist allt heimilisfólkið til miðdegisverðar í
eldhúsinu. Það er siður að borða í eldhúsinu á aðfangadagskvöldið. Eld-
húsið er gert jólalegt með hvítum dúkum og kertaljósum. Fyrst er byrjað
á því að borða rúgbrauð, sem dýft er ofan í heitt soð af svínslærum, sem
soðin eru til jólanna. Þetta er afbragðs matur. Og kallast þetta að „doppa í
grytan“. Þar næst er borðaður „lútfiskur“, sem mest líkist kæstri skötu
á bragðið. En „lútfiskurinn“ er langa, sérstaklega tilreidd. Þá er borðað
brauð og smjör með síld, og svínakjöt og sinep með. Síðan er þykkur
rúsínugrautur með einni möndlu í. Sá, sem fær möndluna, á fyrstur að
36