Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1941, Blaðsíða 52

Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1941, Blaðsíða 52
Nordahl Crieg 17. maí 1940 (Kvæði þetta var fiutt í Lundúna-útvarpinu 17. maí 1940. Norðmenn vörðust þá enn í Hálogalandi, og þar tók skáldið sjálft þátt í frelsisbaráttunni.) Á Eiðsvelli stöngina auða yfir angandi limið ber. En fyrst nú í dag vér finnum, hvað frelsið í rauninni er: Um landið fer sigrandi söngur, er svellur frá ströndu til fjalls, þó að hvísli honum hálfluktar varir undir heroki kúgaravalds. Sú fullvissa er fædd í oss öllum, að frelsið sé líf hvers manns, jafn einfalt og eðlisbundið sem andardráttur hans. Vér fundum, er áþjánin ægði, hve andþrengslin sóttu oss heim sem köfnun í sokknum kafbát . . . Vér kunnum ei dauða þeim. Því verri en byggðanna bruni er sú bölvun, sem enginn sér, en vefur í eitruðum eimi hvern afdal og tind og sker: Af njósnum og uppljóstursótta er orðið í Noregi reimt. Vér áttum oss aðra drauma, — og aldrei verður þeim gleymt. Vér erjuðum landið til eignar, unz ávöxt gaf mold og sær, með striti, er þann veikleika vakti, að virða hvert líf, sem grær. Sem storkun við tímans stefnu var starf vort friðinum vígt. — Og riddarar rústa og dauða hafa rétt til að hæða slíkt. Nú er fyrir andrými barizt! Og allir vér treystum því, að Norðmenn nái enn þá að anda í einingu og frelsi á ný. — Vér fjarlægðumst frændurna syðra, föla og úrvinda menn. Til þeirra sé kall vort og kveðja: Vér komum til yðar senn! Hér blessum vér minning hvers bróður, er blóð fyrir frið vorn gaf, hvers hermanns, er blæddi á hjarnið, hvers háseta, er barst í kaf. Vér erum svo alltof fáir, að engum má gleyma af þeim: Þeir fylgja oss til dáða, þeir dauðu, þann dag, er vér komum heim! Magnús Ásgeirsson þýddi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108

x

Norræn jól : ársrit Norræna félagsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norræn jól : ársrit Norræna félagsins
https://timarit.is/publication/1682

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.