Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1986, Page 9
der og Sverrir Hermannsson, nú sam-
eiginlega tillögu til Poul Schlúters for-
sætisráðherra „om endelig afslutning
af sagen om de islandske hándskrift-
er“, og hann galt síðan samþykki sitt
með bréfi dagsettu 3. mars 1986. Loks
hittust svo Bertel Haarder og Sverrir
Hinn 14. september í haust var þess
minnst með ýmsum hætti að þann
dag var öld liðin frá fæðingu Sigurðar
Nordals sem með háskólakennslu
sinni, ritstörfum og rannsóknum í ís-
lenskum og norrænum fræðum ávann
sér á langri ævi frægð og virðingu sem
varpaði ekki aðeins ljóma á ísland,
heldur Norðurlönd öll. í starfi sínu
kom hann víða við og áhrifa hans
gætti á mörgum sviðum; hann var
t. d. sendiherra íslands í Danmörku
1951—57 þegar mikið þótti við liggja í
handritamálinu. Formaður Norræna
félagsins var Sigurður 1932 — 36.
Ógleymanlegur persónuleiki verður
hann flestum sem kynntust honum og
fullvíst má telja að sem fræðimaður,
skáld og heimspekingur muni hann
lifa lengi í vitund íslendinga.
Vcgna alarafmælisins minntust
hans margir í blöðum og öðrum fjöl-
miðlum. Menntamálaráðherra boðaði
til afmælishátíðar í Þjóðleikhúsinu á
afmælisdegi hans og tilkynnti þar að
komið yrði á laggirnar Stofnun Sig-
urðar Nordals við Háskóla íslands.
Sama dag var opnuð í anddyri Lands-
bókasafnsins sýning á bókum hans,
bréfum og handritum og út komu
undir heildarheitinu „Mannlýsingar“
Hermannsson á Þingvöllum hinn 1.
ágúst 1986 og undirrituðu sérstaka
bókun, sem gerð var bæði á dönsku og
íslensku, til staðfestingar því að hand-
ritamálið væri fullkomlega til lykta
leitt.
Jónas Kristjánsson
þrjú fyrstu bindi ritverka Sigurðar
Nordals sem Almenna bókafélagið
stendur fyrir útgáfu á. Fyrir skemm-
stu gaf svo Hið íslenska bókmenntafé-
lag út hcimspekifyrirlestra Sigurðar
um einlyndi og marglyndi sem þar
með birtast á prenti í fyrsta sinn.
N 1986
0
FORSÍÐAN
Forsíðumynd „Norrænna jóla“ er að
þessu sinni af blaði úr Konungsbók
Eddukvæba, Codex Regius, GKS 2365,
4to, birt vegna formlegra lykta hand-
ritamálsins nú í ár sem um er fjallað á
öðrum stað í ritinu.
í Konungsbók hefur geymst aðal-
uppskrift Eddukvæða. Hún er eitt
frægasta skinnhandrit íslenskt, ritað í
lok 13. aldar, 45 blöð, 19,5x13,4 cm
að stærð, með lituðum upphafsstöfum
og sæmilega varðveitt. Brynjólfur
biskup Sveinsson gafþað Friðriki kon-
ungi III. árið 1662. Eftir það var Kon-
ungsbók Eddukvœba geymd í Kaup-
mannahöfn rúmar þrjár aldir, en var
annað þeirra handrita sem Danir af-
hentu íslendingum fyrst allra 21.
apríl 1971. Hitt er Flaleyjarbók.
í tilefni af 75 ára afmæli Háskóla
íslands á þessu ári hyggst bókaútgáf-
an Lögberg á næstunni gefa út nýja og
vandaða ljósprentun Konungsbókar í
samvinnu við Stofnun Arna Magnús-
sonar í Reykjavík. Kápumynd „Nor-
rænna jóla“ er úr þeirri útgáfu.
Aldarafmæli
Sigurðar Nordals