Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1986, Blaðsíða 49

Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1986, Blaðsíða 49
 Teikning: Gudbjörg Hjartardóttir. konungur yfir borðum vera, en sá dagur mun dveljast, er vér sveitungar látum allir skírast." Bolli tók vel undir þetta og bað Kjartan einn ráða þeirra máli. Við- ræðu þeirra Kjartans hafði konungur fyrri spurt en borðin væru í brottu, því að hann átti trúnað í hvers þeirra herbergi hinna heiðnu manna. Konungurinn verður allglaður við þetta og mælti: „Sannað hefur Kjart- an orðskviðinn, að hátíðir eru til heilla bestar.“ Og þegar um morguninn snemma, er konungur gekk til kirkju, mætti Kjartan honum á strætinu með mikilli sveit manna. Kjartan kvaddi konung með mikilli blíðu og kvaðst eiga skyld erindi við hann. Konungur tók vel kveðju hans og kvaðst hafa spurt af hið ljósasta um hans erindi, — „og mun þér þetta mál auðsótt.“ Kjartan bað þá ekki dvala við að leita að vatninu, og kvað þó mikils mundu við þurfa. Konungur svarar og brosti við: , Já, Kjartan," segir hann, „eigi myndi okkur hér um harðfæri skilja, þótt þú værir nokkru kaupdýrri." Síðan voru þeir Kjartan og Bolli skírðir og öll skipshöfn þeirra og fjöldi annarra manna. Þetta var annan dag jóla fyrir tíðir. Síðan bauð konungur Kjartani í jólaboð sitt og svo Bolla, frænda hans. Það er sögn flestra manna, að Kjartan hafi þann dag gerst handgenginn Ólafi konungi, er hann var færður úr hvítavoðum, og þeir Bolli báðir. Hallfreður var eigi skírður þann dag, því að hann skildi það til, að konungur sjálfur skyldi halda honum undir skírn; konungur lagði það til annan dag eftir. Kjartan og Bolli voru með konungi, það er eftir var vetrarins. Konungur mat Kjartan umfram alla menn fyrir sakir ættar sinnar og atgervi, og er það alsagt, að Kjartan væri þar svo vinsæll, að hann átti sér engan öfund- armann innan hirðar; var það og allra manna mál, að enginn hefði slíkur maður komið af íslandi sem Kjartan. Bolli var og hinn vaskasti maður og metinn vel af góðum mönnum. Líður nú vetur sá; og er vorar, búast menn ferða sinna, svo sem hver ætlaði. Ur Laxdœlu 47

x

Norræn jól : ársrit Norræna félagsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norræn jól : ársrit Norræna félagsins
https://timarit.is/publication/1682

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.