Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1986, Blaðsíða 15

Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1986, Blaðsíða 15
höggormi eða eðlu hér inni í fjalla- ranninum". „Það var leitt“, sagði Vöggur og glúpnaði. Þeir héldu nú áfram um ýmiskonar rangala og alltaf skilaði þeim lengra og lengra inn í fjallið. Smámsaman tók að birta, og er þeir komu fyrir eitt hornið, sá Vöggur sér til mikillar undrunar inn í stóran sal uppljóm- aðan. Veggirnir voru úr silfurbergi og meðfram þrem þeirra stóðu smávaxn- ir, gleiðgosalegir dvergar, er báru blys og kyndla, en ljósið frá þeim kastaðist aftur frá kristalsveggjunum í öllum regnbogans litum. Fyrir miðjum fjórða veggnum sat fjallasjólinn í gullnu öndvegi. Hann var í asbest- skikkju, sem var hlaðbúin í skaut nið- ur. En hann var raunalcgur á svip. A silfurstóli við hlið hans sat dóttir hans, búin guðvefjarslæðum, og var hún enn hryggari í bragði og virtist aðframkomin. Hún var náfol í fram- an, en aðdáanlega fogur. í miðjum sal gat að líta gríðarstóra vog, en umhverfis hana stóðu jötnar, er lögðu eitthvað á víxl sitt á hvora metaskálina. Frammi fyrir fjallasjólanum stóð urmull af búálfum frá öllum bæjun- um, kotunum og hverfunum þar í kring. Gerðu þeir grein fyrir öllu því, er fólkið á heimilum þeirra hafði hugs- að, sagt og gert á umliðnu ári. En fyrir hverja góða hugsun og gott verk, sem sagt var frá, lögðu jötnarnir gullin met á aðra metaskálina; en fyrir hverja ljóta hugsun og illa athöfn, sem getið var um, lögðu þeir annaðhvort höggorm eða eðlu á hina metaskálina. „Sérðu nú, hvernig í öllu liggur, Vöggur minn?“ hvíslaði Skröggur. „Svo er mál með vexti, að konungs- dóttirin þarna er sjúk. Eins og klafa- bundin, skínandi hugsjón, sem ekki nær fram að ganga, situr hún þar á stóli sínum. Hún hlýtur að deyja, ef hún kemst ekki bráðlega á burt úr fjallinu. Hún þráir að fá að anda að sér háfjallablænum, sjá ljóma sólar- innar og blik stjarnanna. Og henni hefur verið heitið því, að fái hún að líta himininn, þá fái hún og að sjá alla dýrð himnanna og lifa cilíflega. Og hún þráir þetta og tregar. En út úr berginu kemst hún ekki fyrr en á því aðfangadagskveldi, er mennirnir hafa breytt svo, að metaskál hins góða sígur alla leið til jarðar og vegur meta- skál hins illa í loft upp. En nú sérð þú, að þær standa svo að segja í járnum“. Naumast hafði Skröggur lokið máli sínu, fyrr en hann var kvaddur fram fyrir konunginn til þess að gefa skýrslu sína. Og það var ekkert smá- ræði, sem hann hafði frá að segja, og flest allt var það gott, því að reynsla hans tók aðeins yfir jólavikuna; en þá dagana, sem menn minnast barns þess, er fyrir mildi sína og mannkær- leika varð konungur aldanna, eru menn venjulegast betri og vingjarn- legri hver í annars garð en ella. Og bergrisarnir lögðu hvert gull- metið á fætur öðru á metaskálarnar, meðan Skröggur var að segja frá, og vogarskál hins góða tók að síga æ því meir sem hann sagði lengur frá. Loks var hún orðin til muna þyngri en hin. En Vöggur stóð eins og á nálum, af því að hann kveið því, að sitt nafn mundi verða nefnt þá og þegar, og hann hrökk við, þá er Skröggur að lokum nefndi nafn hans. Það sem Skröggur sagði um Vögg og ullarsokk- ana, vil ég helst ekki þurfa að hafa upp hans vegna; cn ekki má ég leyna því, að einn risanna fleygði stóru, grænu eitureðlunni, er Vöggur hafði séð fyrir skemmstu, á aðra meta- skálina. Og það munaði meir en lítið um hana. Nú litu allra augu nema Skröggs, sem horfði eitthvað út í hött, á Vögg, konungurinn, konungsdóttir- in, jötnarnir, dvergarnir og álfarnir, og augnaráðið var ýmist þrungið af gremju eða angurværð. Einkum var augnaráð konungsdóttur svo rauna- legt og þó svo milt, að Vöggur brá báðum höndum upp fyrir andlit sér og gat ekki á nokkurn mann litið. En nú tók Skröggur að segja frá Geirþrúði gömlu á heiðinni, að hún hefði tekið munaðarleysingjann hann Vögg litla að sér; að hún ynni bæði fyrir sér og honum með því að ríða net og gólfábreiður og með ýmiskonar tó- vinnu, og þannig tækist henni með iðni sinni og ástundun að fæða hann, klæða og skæða, þótt hún væri komin að fótum fram. En iðja hennar bæri líka blessunarríkan ávöxt; drengurinn dafnaði vel hjá henni, hann væri hugprúður, hjartagóður og glað- lyndur og því væri hún honum góð og fyrirgæfi honum, þótt honum stund- um yrði eilthvað á. Hún bæði guð fyrir honum á hverju kveldi, áður en hún sofnaði; og nú síðast í morgun hefði hún lagt af stað í býtið í kaupstaðinn til þess að kaupa handa honum eitthvað, er hún gæti glatt hann með á jólunum. Meðan Skröggur var að segja frá þessu, lögðu jötnarnir þung gullin met að öðru hvoru á metaskál hins góða; en græna eitureðlan stökk niður af hinni metaskálinni og hvarf. Kon- ungsdótturinni vöknaði um augu og Vöggur tók að hágráta. — — Og hann grét meira að segja enn, er hann var að vakna í rúminu heima hjá sér. En þá voru þeir Skröggur og hann búnir að vera í fjallasalnum og Skröggur búinn að koma honum heim og í rúmið og bjóða honum góða nótt, þótt Vöggur litli væri þá svo syfjaður, að hann tæki ekki lifandi vitund eftir því. En er hann vaknaði, þá skíð- logaði eldurinn í hlóðunum og Geir- þrúður gamla laut ofan yfir hann og sagði: „Veslings litli Vöggur minn, sem varst svo lengi einsamall hérna í myrkrinu! Ég gat ekki komið fyrr en þetta; það er svo langt. En nú hef ég hérna handa þér kóngaljós og hveiti- brauð og hunangsköku, og meira að segja ofurlitla köku, er þú getur mulið í sundur handa vinum þínum smá- fuglunum á morgun!" „Og sjáðu nú bara“, bætti Geir- þrúður gamla við, „hér er ég með ullarsokka, sem ég ætla að gefa þér í jólagjöf; það er nú það, sem þig van- hagar mest um núna, litli slitvargur- inn þinn! Og hérna er ég með stígvéla- skó handa þér, sem ég hef keypt í kaupstaðnum, svo að þú þurfir nú ekki að þramma á tréklossunum þín- um yfir jólin“. Lengi hafði Vöggur litli óskað sér þess að eignast svona stígvélaskó, enda virti hann þá nú fyrir sér í krók og kring og gleðin skein út úr augun- um á honum. En ennþá betur virti

x

Norræn jól : ársrit Norræna félagsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norræn jól : ársrit Norræna félagsins
https://timarit.is/publication/1682

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.