Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1986, Blaðsíða 19

Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1986, Blaðsíða 19
Aðalsteinn Ingólfsson: Norræn 1 nyj myndlist u ljósi Á undanförnum fimm árum hafa listunnend- ur víða um heim verið að vakna til meðvitundar um að norrænar þjóðir eiga sér fleiri málsmet- andi myndlistarmenn en Edvard Munch einan. Sú vakning hófst fyrir alvöru með „Scandinavia Today“ — menningarhátíðinni í Bandaríkjun- um árið 1982, þegar haldin var mikil sýning í Washington undir heitinu „Norðurljós: Raun- sæi og táknsæi í Norrænni Málaralist, 1880— 1910“. Eftir þá sýningu voru nöfn þeirra Vilhelms Hammershöi frá Danmörku, Richards Bergh frá Svíþjóð, Helenu Schjerfbeck frá Finnlandi, og raunar fleiri norrænna listamanna á allra vörum. Bróðurpartur þeirrar sýningar var síðan sett- ur upp í Göteborgs Konstmuseum ári seinna, og gafst þá norrænum listunnendum og listfræðing- um tækifæri til að gaumgæfa og ræða þær for- sendur sem hinn bandaríski skipuleggjandi sýn- ingarinnar, Kirk Varnedoe, haföi haft til hlið- sjónar við val listaverka. Nú í sumar var þessi sýning sett upp aftur, talsvert aukin og breytt, í Hayward-sýningar- salnum í London, og bar þar nafnið „Miðsumarnæturdraumar“. Allar þessar sýningar voru afar vel sóttar og mikið var um þær skrifað. Á næsta ári er síðan ætlunin að fiytja eitthvað af þessum norrænu listaverkum til sýningar í Japan. Þessi mikli áhugi annarra þjóða á norrænni myndlist er vitaskuld mikið fagnaðarefni, en ekki er síður mikilsvert að með þessum sýning- um hafa menn, listfræðingar sem aðrir, lagt drög að nýjum skilningi á listsköpun norrænna þjóða við upphaf þessarar aldar og þar með á norrænni menningu allri á þessu tímabili. Er ekki að efa, að sá skilningur á eftir að breyta viðhorfum norrænna fræðimanna í öðrum list- greinum. í stuttu máli voru niðurstöður listfræðinga þær, að norræn myndlist við aldamót væri týndi hlekkurinn milli impressjónismans og symból- ismans, þar sem listamenn gerðu hvorttveggja í senn, að fanga hrynjandi umhverfisins í verkum sínum, og gefa því persónulega, táknræna merk- ingu. Hér á eftir (bls. 18-19, 22-23 og 26-27) fara nokkrar þeirra mynda sem prýddu þessar norrænu tímamótasýningar. 17

x

Norræn jól : ársrit Norræna félagsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norræn jól : ársrit Norræna félagsins
https://timarit.is/publication/1682

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.