Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1986, Blaðsíða 44

Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1986, Blaðsíða 44
ekki kom hann þó frumhandriti sínu af Kalevala á prent 1833, eins og hann hafði hug á. Titill verksins var Kalevala eða gömul kyrjálsk kvæði um fornar tíðir finnsku þjóðarinnar. Handritið geymdi sextán kviður og röskar fimm þúsund ljóðlínur. Kemur þar fram kjarni hins endanlega Kalevala. 28. febrúar 1835 er það prentað eftir miklu stærra handriti, um tólf þúsund ljóðlínur, og hefur þessa at- burðar nú verið minnst um öll Norðurlönd og víðar. — Þessi útgáfa er nú ýmist nefnd Frum-Kalevala eða Gamla Kalevala. Bókin vakti veru- lega athygli. Einn kunnasti mennta- maður Finna sagði um hana: „Hún eyddi loks langvarandi hirðuleysi um finnskar bókmenntir.“ Seinni útgáfa Lönnrots, aukin og endurbætt, var prentuð 1849 og taldi hvorki meira né minna en 23 þúsund ljóðlínur. En þá hafði hann gefið upp söfnunarferðir sínar og ungir stúdent- ar tekið við fyrir hvatningu hans. Sem fyrr segir hafði Lönnrot lokið læknanámi 1832. Var hann þá skipað- ur héraðslæknir í Kajana, langt norð- ur í Finnlandi, í víðlendu, en fámcnnu héraði. Læknisstörfin reyndust hon- um frekar létt, svo að hann hafði drjúgan tíma til söfnunarferða og bók- menntaiðju. Og þess ber að geta, að yfirvöld, sem farin voru að meta áhugamál hans og iðju, veita honum leyfi frá læknisstörfum öðru hvoru. Lfppistaðan í kvæðabálkinum Kale- vala er þessi: Sagt er frá tveim finnsk- um þjóðflokkum og samskiptum þeirra í stríði og friði. Þeir eru Kalev- ar, sem byggja sunnanvert Finnland. Frá þeim er nafn kvæðabálksins kom- ið, sem Lönnrot gaf honum. Hinn þjóðflokkurinn er Pohjolar, sem búa langt norður í landi, jafnvel norður í Bjarmalandi, sem íslensk fornrit segja frá - eða sumir hafa giskað á það. Stríðsefnið milli þeirra er kvörnin góða, Sampó, sem malar eigandanum gull og önnur eftirsótt heimsgæði. Sampó hverfur loks í hafið, og báðir tapa í rauninni. Pohjolar eru fullir fjölkynngi og leiða margar plágur yfir Kaleva, svo sem sjúkdóma, árásir skógarbjarna og stela jafnvel sól og mána frá andstæðingnum, sem þó vinnur með fulltingi Váinámöinens og kantelu hans og með mætti orðsins syntysana - lykilorðsins, sem Guð gaf hverjum hlut við sköpun hans. Þegar öldunginn vantar það í lok kvæðisins við komu Krists, flýr Váinámöinen land sitt, en skilur kanteluna eftir - strengleik gleðinnar. Vísdómsfull finnsk heiðni, sem Váinámöinen er tákn fyrir, víkur undan við komu Krists. í kvæðabálkinum gætir töluverðra áhrifa frá austrænum ævintýraheimi og biblíunni, Hómerskviðum og nor- rænum fornbókmenntum. — Kalevala er ekki hetjukvæði á sama hátt og t. d. Hómerskviður. A vopnabraki ber ekki mikið. Kalevar og Pohjolar heyja einkum bardaga í orði og söng, með særingum og frumstæðri, erfðri fjöl- kynngi. Frá upphafi til enda kvæða- bálksins fer fram sístæð barátta milli góðs og ills, Ijóss og myrkurs. - Bálk- urinn hefst með sköpun heims. Ævin- týri og veruleiki skiptast á í fjöl- breyttri myndröð. Það hafa menn fyrir satt, að aðal- persónur í Kalevala séu eins konar tákn vissra eiginleika í finnskri þjóð- arsál. Þar er um að ræða: heita frelsis- þrá, dreymandi ást, hugrekki, fífl- dirfsku, móðurást, sem þekkir ei hik eða efa, að ógleymdri þrautseigju og þverlyndi (sisu). Sennilegt er talið, að einhver sögu- leg minni frá löngu liðnum öldum liggi að baki þessum þjóðkvæðum. Þau geyma menningarsögu, þar sem lífshættir, trú og siðir birtast í skugg- sjá. — Ofur náið samlíf við náttúruna speglast í kviðum fornskáldanna, enda eru þau sprottin upp í hreinræktuðu bændasamfélagi. í Kalevala er að finna þá vitneskju, sem til er um fornkveðskap Finna. Merkur Kalevalafræðingur hefur fellt þennan dóm um kvæðin og mun fara nær því rétta: „Kalevala gefur lesand- anum meira með lifandi einfaldleika, hressilegum litblæ, frjórri, fossandi orðgnótt og samræmdu bragformi en 42

x

Norræn jól : ársrit Norræna félagsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norræn jól : ársrit Norræna félagsins
https://timarit.is/publication/1682

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.