Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1986, Blaðsíða 10

Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1986, Blaðsíða 10
Jólin hans Vöggs litla Fannirnar lágu í skínandi skörum eftir endilangri heiðinni. A henni allri var ekki nema eitt einasta býli; það var ofurlítill kofi, og hann var orðinn bæði gamall og fornfálegur. Leiðigjörn hlaut æfin að vera þeim, aumingjunum, sem áttu þarna heima, hugsaði víst margur maðurinn, sem fór þar hjá. Og heldur var eyðilegt þarna á heiðinni jafnvel að sumarlagi, ekki var unnt að neita því. Urð og lyngmóar, en á stöku stað birkirunnar og dvergfura, það var allt og sumt, sem augað gladdi þarna á heiðinni. En kofinn var nógu vistlegur svona á sína vísu. Þótt veggbrúnirnar væru orðnar mosavaxnar af elli, voru innviðirnir ófúnir og héldu úti kulda og súg. Og strompurinn á torfþakinu var bæði breiður og bústinn. Á sumrin líktist þakið grænni, glitofinni flosábreiðu, og í garðholunni fyrir framan bæinn spruttu jarðepli, gul- rófur og kál, en við gerðið gullmura, valmúa og rósir. Þar óx og apalviður, og undir honum var ofurlítill bekkur. Fyrir glugganum voru gluggatjöld, sem jafnan voru drifhvít og hrein. Geirþrúður hét konan, sem átti kot- ið og garðinn; en á vegum hennar var drenghnokki, að nafni Vöggur. Aðfangadag jóla haíði Geirþrúður gamla lagt af stað í býtið um morgun- inn til þess að kaupa í búið til jólanna í hinu afskekkta sveitaþorpi. Nú var komið undir sólarlag og ekki var hún enn komin heim. Vögg litla var farið að þykja einmanalegt í kofanum. Og allt var svo kyrt og hljótt um endi- langa heiðina. Ekki hafði heyrst í einni einustu sleðabjöllu allan lið- langan daginn og enginn á ferðinni. Vöggur lá á hnjánum, studdi oln- Viktor Rydberg: Viktor Rydberg (1828—1895) var eitt helsta skáld Svía á seinni hluta 19. aldar. Hann hvarf frá laganámi vegna fátcektar og var síðan blaðamaður í Gautaborg um 20 ára skeið. A þeim tíma samdi hann fmgar skáldsögur, greinar og ritgerðir af ýmsu tagi. 1884 varð hann prófessor í menningar- sögu og fógrum listum við Stockholms hög- skola. Ayngri árum þótti hann allrótttekur í skoðunum og barðist m. a. gegn kreddufestu og þr'óngsýni í trúarefnum. Að upplagi var hann hins vegar rómantískur hugsjóna- og mannúðarmaður og efnishyggja raunsæis- stefnunnar á efri árum hans fullniegði hon- um ekki. Eftir að hann var kominn yfir miðjan aldur varð hann frtegastur fyrir Ijóð sín sem sum halda nafni hans enn á lofti. Fáein þeirra eru til í íslenskum þýðingum. bogunum á borðið og horfði út um gluggann. Fjórar voru rúðurnar í glugganum, frostrósir og héla á þrem- ur, en fjórðu rúðuna hafði hann þítt með andardrætti sínum, svo að hún var orðin alauð. Hann beið og beið eftir Geirþrúði gömlu. Hún hafði lof- að honum að koma heim með heilt hveitibrauð, eina hunangsköku og eitt kóngaljós úr kaupstaðnum, því að nú var aðfangadagur jóla En ekkert sást enn til hennar. Nú var sólin gengin undir, og skýin úti við sjóndeildarhringinn voru á lit- inn eins og fegurstu rósalindar, en rósrauðum bjarma sló á fannirnar. Svo fór að smádraga úr litskrautinu; það dimmdi æ meir og meir og fann- irnar urðu svo kuldalega blárauðar að lit, eftir því sem dimmdi upp yfir. Og alltaf dimmdi meir og meir inni í kofanum. Vöggur gekk að hlóðun- um; glóðin var ekki alveg kulnuð út í þeim. Það var svo hljótt þar inni, að þegar tréklossarnir hans glumdu við gólfið, fannst honum sem það mundi heyrast um alla heiðina. Hann settist nú á hlóðasteininn og tók að hugsa um það, hvort hunangskakan, sem hann ætti að fá, væri með haus og fjórum fótum, hornum og klaufum. Og hann fór líka að hugsa um það, hvernig snjótittlingunum og öðru smáfygli mundi líða nú um jólin. Ekki er gott að segja, hversu lengi Vöggur muni hafa setið svona, er hann heyrði bjölluhljóm. Sá hann þá » / 8

x

Norræn jól : ársrit Norræna félagsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norræn jól : ársrit Norræna félagsins
https://timarit.is/publication/1682

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.