Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1986, Blaðsíða 14

Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1986, Blaðsíða 14
var kvikur á fæti og fríður drengur, og það sá Skröggur fyrir af forvísi sinni, að hann mundi verða fóstbróðir og tryggasti samherji Vöggs litla á lífs- leiðinni í baráttunni fyrir því, sem væri satt, fagurt og gott. En í vöggu leit hann lítið stúlkubarn, og var munnur þess eins og ofurlítill óút- sprunginn rósahnappur. Um telpuna vissi Skröggur það, að er hún væri gift og manni gefin, mundi hún nefna Vögg ástina sína. Nú óku þeir til konungshallarinnar, sem var miklu stærri en höfuðból herramannsins. „Hér á ég nú að gefa konungssyninum gjafir nokkrar", sagði Skröggur; „en ekki verð ég lengi að því, enda eigum við nú eftir að aka til íjallasjólans, yfirboðara míns, og síðan heim til ömmu þinnar, hennar Geirþrúðar gömlu“. Aftur lauk Skröggur upp kistu sinni, og það, sem Vöggur hafði áður séð, komst ekki í hálfkvisti við það, sem hann nú sá. A silfurskildi einum miklum mátti sjá fjölda ríðandi og fótgangandi hermanna, og er sveif var snúið, hófu hermennirnir sverðin og héldu sumir til hægri og sumir til vinstri handar; en hestarnir prjónuðu og um leið brugðu riddararnir sverð- um sínum. A öðrum skildi, er átti að tákna hafið, sáust herskip með fa.ll- byssum, og er sveifinni var snúið, riðu skotin af byssunum á vígi eitt í landi, en frá víginu var aftur skotið á skipin. Þó var þriðji skjöldurinn aðdáunar- verðastur. Þar mátti sjá óteljandi býli, stór og smá, akra og engi og fjölda fólks bæði úti og inni, en allt var þetta svo smátt, að það sást ekki almenni- lega nema í stækkunargleri. En þá munaði líka um það, sem maður sá. Þarna mátti sjá fólk að slætti og alls- konar útivinnu, smiði og múrara, vef- ara, skraddara og skóara og marga aðra iðnaðarmenn við allskonar sýslu. Svo mátti sjá konur, sem voru að dunda hitt og þetta, breiða dúka á borð og kalla á börn sín til máltíða. En þar gaf líka að líta hungruð börn og sjúk og hryggar mæður, er naum- ast áttu málungi matar. Skröggur fór nú inn í höllina á fund konungssonar með þessi einkennilegu barnagull. „Prins!“ sagði hann, „hugsaðu ekki eingöngu um hermenn- ina og herskipin, heldur líka um al- þýðuna og hennar súra sveita. Bið þú guð að blessa hana, og er þú verður konungur, þá láttu það verða helsta áhugamálið þitt að bera hag hennar fyrir brjósti þér og bæta kjör hennar. Þá mun hinn mikli dómari geta sagt við þig á efsta degi: — „Það, sem þú hefur gert þeim, sem minnstur var bræðra minna, það hefur þú og mér gert“. Að svo mæltu kvaddi Skröggur og fór. En nú fóru farskjótarnir að frísa og hneggja. Skröggur tók nú aftur við taumunum og settist hjá Vögg, og svo þutu þeir af stað eftir dimmum skógi. „Hvert er ferðinni heitið?“ spurði Vöggur. „Til fjallasjólans“, svaraði Skröggur. Vöggur litli var nú orðinn hálf- stúrinn á svipinn. Stundarkorn sat hann þegjandi, en spurði síðan: „Er nú kistan tóm?“ „Því sem næst“, sagði Skröggur og brá pípunni í munn sér. „Allir hafa nú fengið jólagjafir nema ég“, sagði Vöggur. „Og ekki hef ég nú gleymt þér; jólagjöfin þín liggur á kistubotni". „Lof mér að sjá hana, þá ertu vænn“. „Þú getur nú beðið, þangað til við komum heim til ömmu gömlu“. „Nei, góði Skröggur minn, lof mér að sjá hana strax“, sagði Vöggur litli með töluverðri ákefð. „Nú, hana þá!“ sagði Skröggur um leið og hann sneri sér í sæti sínu, lauk upp kistunni og tók upp úr henni þykka ullarsokka. „Er þetta allt og sumt?“ mælti Vöggur í hálfum hljóðum. „Ætli þeir komi sér ekki nógu vel“, sagði Skröggur; „ertu ekki með göt á hælunum?“ „Amma gamla hefði nú getað stoppað í þau. En úr því þú gafst nú kóngssyninum og hinum svo margt fallegt og skemmtilegt, gastu víst gefið mér eitthvað álíka“. Skröggur svaraði ekki einu orði, enda var hann nú orðinn alvarlegur á svip og reykti miklu ákafar en áður. Og þannig óku þeir nú þegjandi langa stund. Vöggur var orðinn súr á svipinn. Hann öfundaðist við kon- ungssoninn fyrir öll fallegu gullin hans og mátti ekki hugsa til ullarsokk- anna sinna án þess að illskast. Skrögg- ur þagði líka og blés óhemju reykjar- strokum út um bæði munnvikin. Það þaut í greniskóginum og niðaði í skógarlækjunum, og það marraði í snjónum undir hesthófunum. Þegar þeir komu út í skógarjaðarinn, kom snæljós og lýsti þeim. En það var nú bara upp á mont, því að það var vel ratljóst eftir fönnunum í tungsljósinu. Loks bar þá að þvergnýptum bjarg- vegg. Þar fóru þeir úr sleðanum. Skröggur gaffarskjótunum sína hafra- kökuna hverjum og klappaði því næst á klettaþilið, en það laukst þegar upp. Hann tók nú Vögg litla við hönd sér og hélt inn í fjallaranninn; en ekki höfðu þeir farið langt, áður en Vögg tók að skjóta skelk í bringu. Það var líka ömurlegt um að litast. Ekki hefði séð þverhandar skil, ef ekki hefði glitt í glyrnurnar á höggormum og eitureðlum, sem einblíndu á þá og undu sig og skriðu um þvalar kletta- syllurnar um leið og þeir fóru hjá. „Ég vil komast heim til hennar ömmu“, æpti Vöggur litli loks upp yfir sig. „Sænskur sveinn!“ sagði Skröggur. Og þá þagnaði Vöggur. „En hvernig líst þér annars á eðl- una þá arna?“ spurði Skröggur, eftir að þeir höfðu gengið nokkurn spöl og komið auga á grænt kvikindi, er sat þar á steini og einblíndi á Vögg litla. „Hún er hræðileg“, sagði Vöggur. „Henni hefur þú nú samt komið hingað“, sagði Skröggur. „Sérðu hvað hún er örg og útblásin? Þetta er öfundin og óánægjan“. „Hef ég komið henni hingað, segir þú?“ ,Já, ég held nú það. Öfundaðir þú ekki kóngssoninn af gjöfunum, sem hann fékk, og varst þú ekki óánægður með gjöfina, sem ég ætlaði að gefa þér af góðum hug? Hver ill hugsun, er menn hugsa hér um slóðir, verður að

x

Norræn jól : ársrit Norræna félagsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norræn jól : ársrit Norræna félagsins
https://timarit.is/publication/1682

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.