Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1986, Blaðsíða 35

Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1986, Blaðsíða 35
menntagrein sem hann hefur sinnt nær eingöngu. Gerð hafa verið lög við nokkur ljóð hans og söngtexta. Nokkra þeirra söng færeyska söngkon- an Annika Hoydal inn á plötu sem út var gefin fyrir fáeinum árum og nefn- ist „Spor í sjónum“. Þegar Rói Patursson fékk tilkynn- inguna um verðlaunin sagði hann að hún hefði komið sér mjög á óvart, en gladdist jafnframt yfir verðlaununum sem hann sagði að gerðu sér nú kleift að einbeita sér að ritstörfum um hríð. Aðspurður sagði hann um yrkisefni sín í blaðaviðtali: „Ég yrki mikið um tungumál og ljóðið sjálft, náttúruna og þjóðfélagið sem heild, stöðu mannsins á ótryggum tímum og þær miklu breytingar sem hafa orðið á lífsháttum okkar síðustu áratugi." Þegar hann var spurður hvort heimspekinám hans hefði vakið áhuga hans á tungumálinu svaraði hann því til að því væri að sínum dómi öfugt farið - hann hefði farið að ástunda heimspeki vegna áhuga síns á tungu- málinu sem slíku. Hann hcfði síður en svo áhyggjur af því að yrkja á máli sem fáir skilja. Oll tungumál væru í sjálfu sér fullkomin og unnt að segja næstum allt, sem menn vildu, á fær- eysku eins og öðrum málum. Og eng- inn vafi er á því að í Færeyjum verða bókmenntaverðlaun Róa starfs- systkinum hans styrkur og hvatning og að þar er litið á þau sem tímabæra viðurkenningu á færeysku máli og menningu. Þess sjást glögg merki í skáldskap Róa Paturssonar að á næmasta þroskaskeiði æsku sinnar mótaðist hann af viðhorfum og hugmyndafari sjöunda áratugarins. Af yrkisefnum hans og bragformi í elstu Ijóðunum frá unglingsárum sést að hann orti þá m. a. þjóðernisbundin hvatningarljóð í hefðbundnum stíl. En þegar frá leið braut hann af sér fjötra hefðar og vana og fór að túlka ný viðhorf í óbundnara og nýstárlegra ljóðformi en áður. Félagsskapur ungra Færey- inga í Kaupmannahöfn sem hafði á stefnuskrá sinni sjálfstjórn og sósíal- isma var endurreistur 1962 og hóf útgáfu mánaðarrits. Færeyskir stúd- entar voru þar framarlega í flokki og þessi vakning ýtti undir nýjan skáld- skap höfunda með sterka, pólitíska samfélagsvitund sem tjáðu viðhorf sín með nýjum hætti og litu á einstak- linginn sem félagsveru og færeyskt samfélag og þróun þess sem óaðskilj- anlegan hluta af samfélagi þjóðanna, cn ekki einangrað fyrirbæri. Einn þeirra var Rói Patursson sem sýndi þannig ungur að hann var barn síns tíma, aðdáandi bítlakynslóðarinnar, flökkufugl og uppreisnarmaður sem spurði sjálfan sig og aðra alvarlegra spurninga um hvert stefndi og hvar mannkynið væri á vegi statt. í fær- eyskum skáldskap sló hann m. a. nýj- an tón þegar hann túlkaði samúð sína og samstöðu með verkalýð heimsins og undirokuðum þjóðum og viðhorf sitt til „útlegðar“ fjarri eyjunum átj- án. Hana höfðu önnur færeysk skáld oft túlkað af heimþrá og með sorg í hjarta, en Róa Paturssyni var hún síst af öllu dapurleg byrði, heldur eggj- andi reynsla sem fól í sér skapandi lífsmagn og gullin tækifæri. Að hans dómi gat utanlandsdvöl einungis skerpt skilning Færeyingsins á kostum og göllum samfélagsins og treyst tengsl hans við land sitt, þjóð og upp- runa sem hann ann engu síður úr fjarska en heima fyrir eins og Ijóð Róa bera glöggt vitni. Þau lýsa engan veg- inn öll stríði og baráttu, heldur eru mörg þeirra óður til friðsældar náttúr- unnar og fegurðar hversdagslífsins, ort af innsæi og næmri tilfinningu. Um aðra bók Róa — frá 1976 — sagði færcyski dómnefndarfulltrúinn Malan Simonsen að þar hcfði skáldið ort um bæjarlífið, ástarþrá, tilgangsleysi og eyðileggingarhvatir í nútímasamfélagi og auk þess lofað móðurmál sitt. „Líkasum“ væri nýstárlegri en eldri bækurnar, en um hana sagði Malan: „Að efni spanna ljóðin vítt svið. Rói fjallar um samfélagsumræðu og út- leggingar á Marx og Freud, yrkir um Tarsan, vopnaskak og vígbúnaðar- kapphlaup, baráttuna fyrir friði, veltir fyrir sér rökum og eðli ljóðsins, merk- ingu orða og stafrófs, reglu og öng- þveiti. Lengsta ljóð bókarinnar og burðarljóð verksins, ,Sólareygað‘ (Auga sólar), segir frá ferðalagi hug- ans í tíma og rúmi. Ferðast er yfir ringulreið brotakennds einskismanns- lands þar sem fyrst er leitast við að byggja aftur upp sjálfið uns það sam- lagast ,þúinu‘ sem kom fram í byrjun ljóðsins og verður að lokum heilsteypt manneskja. Ferðalaginu er lýst með myndröðum sem settar eru saman og sækja efnivið sinn til náttúru og nú- tímalífs. Hver myndröð er byggð á ákveðnu meginstefi, en útfærð og dýpkuð með öðrum myndum og að lokum mætist margbrotinn veruleiki heimsins í kjarna tilverunnar, auga sólarinnar.“ í tilefni af verðlaunaveitingunni birta „Norræn jól“ síðasta ljóðaflokk bókarinnar, „árstíðir“, á frummálinu ásamt smækkaðri myndskreytingu úr „Líkasum“ eftir frænda höfundarins, Trónd Patursson.

x

Norræn jól : ársrit Norræna félagsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norræn jól : ársrit Norræna félagsins
https://timarit.is/publication/1682

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.