Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1986, Blaðsíða 34

Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1986, Blaðsíða 34
Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 1986: Rói Patursson ¥ Á liðnum vetri unnu færeyskt mál og menntir þann sigur að bók- menntaverðlaun Norðurlandaráðs féllu í fyrsta sinn óskipt í hlut Færey- ings sem yrkir á móðurmáli sínu. Það var þegar dómnefndin, sem úthlutar verðlaununum, tilkynnti eftir fund sinn í Reykjavík 21. janúar að fær- eyska ljóðskáldið Rói Patursson hlyti verðlaunin 1986 fyrir ljóðabók sína, „Líkasum“ (Eins og), sem út kom 1985. Höfundurinn veitti þeim að venju viðtöku á 34. þingi Norður- landaráðs sem haldið var í Kaup- mannahöfn í byrjun mars. í greinar- gerð sinni fyrir verðlaunaveitingunni sagði dómnefndin: „Með ljóðrænum þrótti og bersýni leggur Rói áherslu á samhengi færeysks raunveruleika og áleitinna spurninga um tilvist okkar í samtímanum.“ Þetta var í annað sinn sem bók á færeysku var meðal þeirra ritverka sem fram voru lögð vegna verðlaunaveitingarinnar. Árið 1965 var verðlaununum skipt milli Olofs Lagercrantz og Williams Heinesens sem hlaut þau fyrir skáldsöguna „Vonin blíð“, en hún var hins vegar lögð fram á dönsku. Sú ákvörðun dómnefndarinnar að skipta verð- laununum í það sinn sætti allmikilli gagnrýni, enda hefur það ekki verið gert síðan. Rói Patursson er tæplega fertugur að aldri, fæddur í Þórshöfn 1947. Þar er hann nú búsettur, nýfluttur heim eftir býsna langa útivist. Eins og margir landar hans var hann fyrst sjómaður um tveggja ára skeið þegar Rói Patursson LÍKASUM Memunantrannw Studenlatdaflsns hann var unglingur og lagðist í landa- flakk 1968. Hann hafði þá lokið gagn- fræðaprófi heima og vildi víkka sjón- deildarhring sinn, ferðaðist m. a. til Bretlands, Frakklands og Spánar. í fimm ár vann hann í verksmiðju í Kaupmannahöfn, en lauk stúdents- prófi 29 ára gamall og las síðan heimspeki til meistaraprófs við Kaup- mannahafnarháskóla. Heim kominn hefur hann stundað ýmis störf, m. a. verkamannavinnu og kennslu, auk rit- starfanna. Ein af formæðrum Róa var Austfirðingur og Erlendur heitinn Patursson frændi hans. Á unglings- árum sínum var Rói árlangt í vinnu hér á íslandi. í fyrra kom hann hing- að og las úr verkum sínum á vegum Norrænu höfundamiðstöðvarinnar og ljóð eftir hann voru fléttuð inn í leikritið „í lýsing“ eftir fimm árum yngri frænda hans, Regin Djurhuus Patursson, sem færeyskur leikflokkur sýndi í Reykjavík á leiklistarhátíð nor- rænna áhugaleikara nú í sumar. Fyrsta ljóð Róa Paturssonar sást á prenti þegar hann var 13 ára og síðan birtust þau nokkur í blöðum og tíma- ritum. Fyrsta ljóðabók hans, nafn- laust kver með 15 ljóðum, kom út 1969 og fyrir það hlaut hann M. A. Jacobsens-verðlaunin sem oftast hafa verið veitt árlega í Færeyjum frá 1958. í næstu bók hans, „á alfaravegi“, sem út kom 1976, voru 19 ljóð, en verð- launabókin „Líkasum" er þriðja bók skáldsins. Fáeinar smásögur og stíl- æfingar í óbundnu máli hafa birst eftir Róa, en annars er ljóðagerðin sú bók- 32

x

Norræn jól : ársrit Norræna félagsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norræn jól : ársrit Norræna félagsins
https://timarit.is/publication/1682

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.