Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1986, Blaðsíða 17

Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1986, Blaðsíða 17
orræKT Norrænt æskulýðsmót 1986 jOU *986 Á hverju sumri eru haldin norræn æskulýðsmót fyrir krakka á aldrinum 16—25 ára og eru mótin haldin til skiptis á Norðurlöndunum. í sumar var mótið haldið á íslandi og hafði yfirskriftina „Ungt fólk og fjölmiðlar“. í þetta sinn voru þátttakendur 55 frá öllum Norðurlöndunum nema Álandseyjum. Æskulýðsmótið hófst sunnudaginn 20. júlí mcð því að allir hittust í Nor- ræna húsinu og borðuðu saman kvöld- verð. Að loknum kvöldverðinum og mótssetningunni var haldið upp í fél- agsmiðstöðina Ársel í Árbæjarhverfi, en þar gisti hópurinn fyrstu og síðustu nætur mótsins. Um kvöldið byrjuðum við að kynnast hvert öðru. Daginn eftir fórum við að sjá hvern- ig Morgunblaðið væri unnið og eftir hádegi var farið í Sundlaugarnar í Laugardal. Mörgum fannst furðulegt að heitt vatn væri í útisundlaug, en allir nutu þess að svamla þarna í góða veðrinu. Síðdegis var lagt af stað upp í Heiðarskóla í Borgarfirði, en þar átti að dvelja meðan mótið færi fram. Ýmislegt var gert sér til skemmtun- ar þessa 4 daga sem við vorum í Heiðarskóla. Á daginn var unnið að ýmsu sem viðkom fjölmiðlun, farið í skoðunarferðir og unnið í hópum. Einn hópurinn vann t.d. að því að útbúa norrænt orðasafn með nyt- sömum orðum og orðatiltækjum, en einnig voru starfandi tónlistarhópur, myndbandahópur, útvarpshópur og blaðahópur. Þátttakendur hvers lands um sig útbjuggu u.þ.b. 10 mínútna langa út- varpsdagskrá og voru þættirnir teknir upp á segulband og þeim síðan „út- varpað“. í þeim voru leikin lög og frætt um land og þjóð. Á kvöldin var ýmislegt gert til gam- ans. Fyrsta kvöldið var farið í fjall- göngu og annað kvöld á hestbak. Fæstir höfðu farið á hestbak áður og gekk því á ýmsu. Allir skemmtu sér konunglega þrátt fyrir dálitla rign- ingu og engum varð meint af ævin- týrinu, enda þótt einhverjir dyttu af baki. Scinasta kvöldið var grillað, farið í borðtennis, dansað og sungið. Ekki má heldur gleyma að myndbanda- hópurinn sýndi afrakstur vinnu sinn- ar við mikinn fognuð viðstaddra. Seint var farið að sofa öll kvöldin því að margt þurfti að segja og engu skipti þótt stöku sinnum vantaði réttu orðin. Þá voru bara búin til ný orð eða notað táknmál. Einn daginn var farið í skoðunar- ferð um Borgarfjörð. Var þá mcðal annars farið í Surtshelli og í Rcykholt. Þegar farið var til Reykjavíkur var ekki farin skemmsta leið því ekið var um Þingvöll og að Gullfossi og Geysi. Þennan dag var mjög gott veður og var því ákveðið að taka lífinu með ró. Á Þingvöllum tók sr. Heimir Steins- son á móti hópnum og fræddi um jarðfræði og menningarsögu staðar- ins. Eins og vænta mátti vöktu Gullfoss og Strokkur mikla hrifningu hjá erlendu þátttakendunum og sama má segja um Hveragerði, en þar mátti ekki stoppa of lengi því að kvöldmat- urinn beið í Reykjavík og þegar orðið áliðið. Seinasta mótsdaginn gafst tími til að fara í bæinn og versla og því næst var farið í heimsóknir á Rás 2 og í Sjónvarpið. Síðdegis var farin skoðun- arferð um Reykjavík og nágrenni og meðal annars komið við á Bcssa- stöðum. Þetta kvöld var svo haldið kveðju- hóf og þessi skemmtilegi tími var á enda runninn. Við þökkum öllum sem sáu um framkvæmd mótsins, er tóku á móti okkur í Heiðarskóla og á öðrum stöð- um sem við heimsóttum, kærlega fyrir. Eva Gunnlaugsdótlir Sóley Bj'órk Axelsdóttir RÖNNING S 84000

x

Norræn jól : ársrit Norræna félagsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norræn jól : ársrit Norræna félagsins
https://timarit.is/publication/1682

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.