Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1986, Side 16
hann þó fyrir sér ullarsokkana, svo að
Geirþrúður gamla fór að síðustu að
halda, að hann væri farinn að leita að
lykkjufalli á þeim. En svo var mál
með vexti, að Vögg sýndist ekki betur
en að þetta væru alveg sömu sokkarn-
ir og hann hafði séð í kistunni hans
Jólaskröggs. Loks slöngvaði hann
handleggjunum um hálsinn á Geir-
þrúði gömlu og sagði: „Þakka þér,
amma mín, fyrir sokkana og skóna —
og svo fyrir sokkana!“
„Guð blessi þig, Vöggur minn“,
sagði Geirþrúður gamla og viknaði.
,Ja, satt er það, að litlu verður Vögg-
ur feginn“.
Nú var settur pottur á hlóð og hvít-
ur dúkur breiddur á borð. Og svo var
kveikt á kóngaljósinu. En Vöggur litli
hljóp til og frá í nýju sokkunum sínum
og skónum. Stundum staðnæmdist
hann þó við gluggann og horfði undr-
andi augum út yfir heiðina. Hann
botnaði einhvern veginn ekki í því,
hvernig hann hafði komist heim. En
Jólaskröggur er góður og Geirþrúður
gamla þá ekki síður, það vissi hann
upp á sína tíu fingur. Og gaman var
að lifa jólin, blessuð jólin!
Og þarna tindruðu nú óteljandi
stjörnur á himninum ofan yfir
heiðina. Og ein svar stærst. En á heið-
arbýlinu, eina heiðarbýlinu á allri
heiðinni, ríkti heimilisylurinn, hjarta-
ylurinn og gleðin.
Agúst H. Bjarnason þýddi.
Skýringar
1 Pað er þjóðtrú í Svíaríki, að Julvátten (Jóla-
skröggur) komi með gjafirnar.
2 Búálfar (tomtegubbar) eru taldir vera á hverj-
um bts í Svíaríki, og láta þeir sér annt um heill
og hagsmuni heimilisins.
Það lítur út fyrir, að þessi alkunna íslenska
bamaþula sé einn af húsgöngum þeim, er
gengið hafa um 'óll Norðurlönd. Aðalmunur-
inn á þulunni á íslensku og scensku er sá, að í
senskunni er það kvíga, sem kveðið er um. A
stensku er þulan svona:
Grimma vid grinden /
grát och sade:
nu er min moder
mj'ólkad fór andre;
nu fár jag gánga
sommaren lánga
med svulten mage
i tufvig hage;
den lilla mulen
ár illa vulen
att nafsa gr'áset i ris og Ijung;
jag borde haft mjölk till fram mot juten,
ty Grimma 'ár 'ánnu sá ung, sá ung.
Fyrr en varir
breytíst veruleikinn
í ljúfan draum
HAPPDRÆTTI
HASKÓLA ISLANDS
Vœnlesgast til vinninsfs
/
14