Norræn jól : ársrit Norræna félagsins - 01.12.1986, Síða 48
„HÁTÍÐ ER TIL
HEILLA BEST“
— íslendingar við hirð
Noregskonungs á jólum —
Pá er Ólafur konungur Tryggvason hafði boðað siðaskipti í Noregi lagði hann farbann
fyrir skip þeirra Islendinga er eigi vildu taka við kristni. Einn þeirra var Hallfreður
vandraðaskáld. Síðar bœttust í hópinn þeir Laxdalir: Kjartan Ólafsson frá Hjarðarholli
og Bolli Þorleiksson fóslbróðir hans.
Konungur lætur margt nytsamt vinna
þann vetur; lætur hann kirkju gera og
auka mjög kaupstaðinn; sú kirkja var
ger að jólum. Þá mælti Kjartan, að
þeir myndu ganga svo nær kirkju, að
þeir mættu sjá atferði siðar þess, er
kristnir menn höfðu; tóku margir und-
ir og sögðu þar vera mundu mikla
skemmtan. Gengur Kjartan nú með
sína svcit og Bolli; þar er og Hall-
freður í för og margt manna af íslend-
ingum. Konungur talaði trú fyrir
mönnum, bæði langt erindi og snjallt,
og gerðu kristnir menn góðan róm að
hans máli.
En er þeir Kjartan voru gengnir í
herbergi sín, tekst umræða mikil,
hvernig þeim hafi á litist konunginn
nú, er kristnir menn kalla næst hinni
mestu hátíð, — „því að konungur
sagði, svo að vér máttum heyra, að sá
höfðingi hafi í nótt borinn verið, er vér
skulum nú á trúa, ef vér gerum eftir
því, scm konungur býður oss.“
Kjartan segir: „Svo leist mér vel á
konung hið fyrsta sinn, er ég sá hann,
að ég fékk það þegar skilið, að hann
var hinn mesti ágætismaður, og hefur
það haldist jafnan síðan, er ég hef
hann á mannfundum séð. En miklu
best leist mér þó í dag á hann, og öll
ætla ég oss þar við liggja. vor mál-
skipti, að vér trúum þann vera sannan
guð, sem konungur býður, og fyrir
engan mun má konungi nú tíðara til
vera, að ég taki við trúnni, en mér er
að láta skírast, og það eina dvelur, er
ég geng nú eigi þegar á konungs fund,
er framorðið er dags, því að nú mun
46