Fréttablaðið - 05.10.2022, Page 10
Einn af stofnendum nýsköp-
unarfyrirtækisins Level Up
segir að hann hafi upplifað
það á eigin skinni hversu
mikilvægt það sé að auka
aðgengi að líkamsræktar-
stöðvum. Fyrirtæki hafi sýnt
lausn Level Up mikinn áhuga.
magdalena@frettabladid.is
Nýsköpunarfyrirtækið Level Up
er að þróa hugbúnað sem gerir
notendum kleift að kaupa sig inn í
staka tíma hjá hinum ýmsu líkams-
ræktar- og heilsubótarstöðvum.
Sölvi Smárason, einn af stofn-
endum fyrirtækisins, segir að hug-
myndin hafi kviknað þegar hann
var að æfa hjá bardagafélaginu
Mjölni en vildi sækja aðra tíma
samhliða.
„Ég var búinn að vera í boxi í
langan tíma og langaði að prófa
kickbox. Hins vegar komst ég að því
að ég væri með of læstar mjaðmir til
að geta gert spörkin og fór því í Pri-
mal Iceland til að geta opnað þær,“
segir Sölvi en bætir við að þá hafi
hann áttað sig á því að hann hefði
ekki efni á að vera með áskrift að
tveimur líkamsræktarstöðvum
sökum þess að hann væri náms-
maður.
„Þá hugsaði ég með mér að það
hlyti að vera til önnur leið og upp
frá því spratt þessi hugmynd. Að
færa þennan fjárhagslega múr frá
og opna aðgengið.“
Sölvi segir að þeir hafi aðeins
fengið góð viðbrögð hjá líkams-
ræktarstöðvunum og hinum ýmsu
fyrirtækjum.
„Það hefur enginn sagt nei við
okkur af þeim sem við höfum
talað við. Við héldum að það væri
mesta vandamálið og við höfum
fengið spurningar á borð við af
hverju líkamsræktarstöðvar ættu
að vera með okkar lausn. En við
höfum aðeins fundið fyrir áhuga
hjá þeim.“
Sölvi bætir við að eins og er sé
fyrirtækið ekki að leitast eftir fjár-
mögnun. Þeir hafi þó fundið fyrir
miklum áhuga.
„Þegar við tókum þátt í Startup
Supernova tókum við fram að við
værum ekki að leitast eftir fjár-
magni eins og er. Við ætlum fyrst
um sinn að reka okkur á tekjum.
Við höfum samt sem áður orðið
varir við að aðilar í viðskiptalífinu,
svokallaðir englar, hafa sýnt okkur
áhuga og hafa boðið okkur alls
konar þjónustu og greiða.“
Aðspurður hvert f y rirtæk ið
stefnir segir Sölvi að þeir miði að
því að verða næsti frístundastyrkur.
„Við viljum verða nýi frístunda-
styrkurinn og verða stimpill fyrir
fyrirtæki. Að það verði eftirsóknar-
vert hjá fyrirtækjum að bjóða upp
á Level Up-fríðindin. Kerfið okkar
býður einnig upp á möguleikann á
að yfirmenn geti verðlaunað starfs-
fólk sitt með einhverju heilsusam-
legra en hamborgara. Það er uppi
sífellt háværari krafa meðal starfs-
fólk um að fá betra aðgengi að
hreyfingu í gegnum vinnustaðinn.“
Sölvi segir að lokum að þó að þeir
muni fyrst um sinn einblína á lík-
amsræktirnar þá muni þeir þegar
fram líða stundir einnig bjóða upp
á ýmsa heilsubótartíma.
„Það eru líka tækifæri í að bjóða
upp á nudd, jóga, kírópraktortíma
og sálfræðitíma. Við erum spenntir
að sjá hvert hugmyndin mun leiða
okkur.“ n
Auka aðgengi að líkamsræktar- og heilsutímum
Sölvi Smárason,
Robin William
Varadaraj,
Mikael Ingason,
Svavar Berg
Johansson,
stofnendur
Level Up, segja
að mikil tæki-
færi felist í að
opna á aðgengið
að líkamsrækt-
arstöðvum.
fréttablaðið/
sigtryggur ari
Nám: BS í sjávarútvegsfræði frá
Háskólanum á Akureyri og MBI
í alþjóðaviðskiptum frá Háskól-
anum á Bifröst.
störf: Sölufulltrúi hjá Icefresh
Seafood sem sér um sölu og út-
flutning á vörum Samherja.
fjölskylduhagir: Er gift Aðalbirni
Tryggvasyni og saman eigum við
dæturnar Góu Dröfn og Gíu Báru
auk þess að eiga Maltese-tíkina
Míu.
Unnur Inga Kristinsdóttir starfar
sem sölufulltrúi hjá Icefresh Sea-
food. Hún segir að margt velti
á íslenskum sjávarútvegi og að
ýmsar áskoranir séu fram undan í
geiranum.
Hver eru þín helstu áhugamál?
Ég hef mikinn áhuga á matseld og
garðyrkju en okkur hjónum finnst
fátt skemmtilegra en að fá góða
vini í mat og eiga með þeim góðar
stundir. Þá eru ferðalög, hvort sem
það er utan- eða innanlands, ofar-
lega á lista en að ferðast um landið
okkar með hjólhýsið í eftirdragi er
eitthvað sem við gerum mikið af
á sumrin og sköpum góðar minn-
ingar með fjölskyldu og vinum.
Hvaða bók hefur haft mest áhrif
á þig?
Þar sem ég hef verið mest allt
mitt líf í skóla þá hef ég ekki haft
mikinn tíma fyrir lestur annarra
bóka en skólabóka. Hins vegar
núna þegar ég hef lokið námi þá
leita ég í bækur og hlaðvörp sem
fjalla um leiðir til árangurs í bæði
starfi og einkalífi. Leiðir til árang-
urs í markaðsstarfi eru einnig ofar-
lega á listanum.
Hver hafa verið mest krefjandi
verkefnin á undanförnum miss-
erum?
Síðustu sjö mánuði hef ég verið
í fæðingarorlofi sem getur alveg
verið krefjandi en ef ég horfi fram
hjá því þá verð ég að segja útf lutn-
ingur á f iski með f lugvélum á
Covid-tímum. En það veltur margt
á íslenskum sjávarútvegi. Síðustu
ár hafa einkennst af miklu stressi
og útsjónarsemi við að skila fersk-
um fiski til kúnna án þess að tapa
verðmætum.
Hvar sérðu þig eftir tíu ár?
Ég nýt þess að læra nýja hluti og
takast á við krefjandi áskoranir,
hvort sem það er í einkalífi eða
starfi.
Ég vona að heilsan verði mér
hliðholl og að við fjölskyldan verð-
um búin að eignast draumasumar-
húsið í Hrísey ásamt því að ferðast
víða um heim og að við eigum að
minnsta kosti eitt ef ekki tvö fjöl-
skyldusport þar sem útivist og góð
matseld verður ráðandi.
Ef þú þyrft ir að velja annan
starfsframa, hvað yrði fyrir valinu?
Ég hef oft sagt að ef ég myndi
hætta því sem ég er að gera í dag þá
myndi ég snúa mér að garðyrkju-
störfum, það er bara eitthvað svo
heilandi og notalegt að vinna og
vera í kringum plöntur og gróður,
svo ég tali ekki um útivistina sem
fylgir því.
Hver er uppáhaldsborgin þín?
Ég held að ég verði að segja
London, systir mín bjó þar í þrjú ár
og við eigum ótrúlega góðar minn-
ingar þaðan. n
Hefur áhuga á matseld og garðyrkju
Uppáhaldsborg Unnar er London en þaðan á hún margar góðar minningar.
MyNd/aðseNd
n Svipmynd
Unnur Inga Kristinsdóttir
Þá hugsaði ég með mér
að það hlyti að vera til
önnur leið og upp frá
því spratt þessi hug-
mynd.
Sölvi Smárason
FÆRÐU ÁSTVINUM
ÞÍNUM ÓSKASKRÍN
– UPPLIFUN Í ÖSKJU
577 5600 | info@oskaskrin.is | oskaskrin.is
10 Fréttir 5. október 2022 MIÐVIKUDAGURFréttablaðiðMARKAÐURInn Fréttablaðið 5. október 2022 MIÐVIKUDAGUR