Fréttablaðið - 05.10.2022, Page 13
KYNN INGARBLAÐ
ALLT
MIÐVIKUDAGUR 5. október 2022
Karen Rúnarsdóttir er sviðsstjóri vöru-, birgða- og framleiðslusviðs Lyfju. MYND/AÐSEND
Að taka ábyrgð á eigin heilsu
Mikil aukning hefur átt sér stað í meðvitund um mikilvægi heilbrigðis, bæði hvað varðar
andlega og líkamlega heilsu. Samhliða hefur áhugi á heilsufarsmælingum stóraukist. 2
Kanilsnúðadagurinn var í gær.
elin@frettabladid.is
Dagur kanilsnúðanna var í gær.
Kanilsnúðar
5 dl mjólk
50 g ger
1 dl sykur
1 tsk. vanillusykur
1 tsk. kardimommudropar
2 egg
14 dl hveiti
150 g mjúkt smjör
Fylling
150 g mjúkt smjör
4 msk. sykur
2 msk. kanill
Til að pensla
1 egg
1 msk. mjólk
Perlusykur til skrauts
Hitið mjólkina fingurvolga. Setjið
gerið í skál ásamt sykri, vanillusykri
og kardimommudropum. Bætið
mjólkinni við og hrærið aðeins svo
gerið leysist upp. Blandið eggjum
saman við en þeytið þau fyrst. Næst
er hveitinu bætt við og hnoðað í
hrærivél ásamt mjúku smjörinu.
Hnoðið áfram í að minnsta kosti
10 mínútur. Látið deigið hefast í
klukkustund. Fletjið deigið út í ca.
30x40 cm. Blandið saman smjöri,
sykri og kanil. Smyrjið blöndunni
yfir deigið. Rúllið deiginu upp,
skerið í mátulega snúða og leggið
á bökunarplötu. Látið hefast aftur
í hálftíma. Penslið með egginu og
dreifið perlusykri yfir. Bakið í ofni
við 225°C í um 10 mínútur. n
Snúðar eru bestir
T A R A M A R
Frítt Serum
Með hverju dagkremi
29. september - 9. október
www.taramar.is og Hagkaup
(Kringlunni, Smáranum, Garðabæ, Akureyri)