Fréttablaðið - 05.10.2022, Side 34

Fréttablaðið - 05.10.2022, Side 34
njall@frettabladid.is Ef marka má nýjasta tvít Elon Musk mun Cybertruck-pallbíllinn, sem væntanlegur er í framleiðslu á næsta ári, geta flotið yfir vötn og ár. Cybertruck-pallbíllinn var frumsýndur árið 2019 og átti að fara í framleiðslu árið 2021 en framleiðsla hans hefur tafist nokkuð í Covid-19 heimsfaraldr- inum. „Cybertruck verður nógu vatnsheldur til að geta flotið eins og bátur og mun því geta farið yfir ár eða vötn, og jafnvel sjó sem er ekki of úfinn,“ sagði Elon Musk á Twitter. Elon Musk hefur látið fleira uppi um Cybertruck að undanförnu, eins og að hann verði með fjórum rafmótorum og geti stýrt afturhjól- unum, sem gefur honum mögu- leika á að keyra til hliðar. n Cybertruck á að geta flotið Biðin eftir Cybertruck er orðin löng en nú hillir undir hann í framleiðslu. njall@frettabladid.is Ford hefur frumsýnt 2023-árgerð Ford Super Duty pallbílsins og valdi til þess Kentucky-veðreið- arnar. Hann fær nýja 6,8 lítra bensínvél sem grunnvél en hún er ný af nálinni þótt hún byggi á 7,3 lítra Godzilla V8-vélinni. V8 Power Stroke dísilvélin fær að halda sér en kemur nú í tveimur aflútfærslum. Grunngerðin verður sú sama og áður en einnig kemur High-Output útgáfa með nýrri for- þjöppu sem er aflmeiri og tjúnuð fyrir drátt á þungum eftirvögnum. Yfirbygging bílsins er ný en undir henni er ný hönnun á raf- búnaði til að styðja allan þann nýja tæknibúnað sem er í boði. Super Duty-pallbíllinn hefur einnig fengið nýja dempara sem eiga að virka betur þegar bíllinn er ólestaður svo hann virki ekki eins hastur. Hægt verður að fá hann með XL Off Road-pakka en þá kemur hann á 33 tommu dekkjum, með hærra loftinntaki og undir- vagn sem þolir meiri vaðdýpt, ásamt grjótvörn undir bílnum og rafstýrðri læsingu á afturdrifi. Pallurinn er endurhannaður með þrepum á hliðum ásamt 2 kW raf- búnaði fyrir raftæki eða rafbúnað á palli. n Endurhannaður Ford Super Duty Í boði verða sjö útgáfur á grilli en C-laga aðalljósin verða einkennandi fyrir Super Duty-pallbílinn. Átta tommu afþreyingarskjár er nú staðalbúnaður og 12 tommu í betur búnum útgáfum. njall@frettabladid.is Tesla áætlar að auka vel við fram- leiðslu á Model Y og Model 3 á síðasta ársfjórðungi ársins eins og oft áður. Samkvæmt heimildum Reuters er áætlað að framleiða 495.000 Model Y og Model 3 á síðustu þremur mánuðum þessa árs. Gangi þessar áætlanir eftir mun Tesla framleiða um 1,4 milljónir bíla árið 2022. Samkvæmt áætlunum Tesla verða 1.590.000 Tesla Model Y og Model 3 framleiddir fyrstu níu mánuði næsta árs og heildarsala 2023 gæti því farið í meira en 2,1 milljón bíla. Þegar bílar með brunahreyflum eru taldir með er það meiri fram- leiðsla en hjá merki eins og Audi og stutt í að Tesla nái þeim fjölda sem BMW framleiðir á hverju ári sem er um 2,5 milljónir bíla. Þessi aukaframleiðsla Tesla er aðallega tilkomin vegna aukinnar fram- leiðslugetu eftir opnun verksmiðja í Austin í Texas og verksmiðju Tesla í Berlín. n Tesla eykur framleiðslu á síðasta fjórðungi 522 4600 www.krokur.net Krókur er fyrirtæki sem að hefur sérhæft sig í flutningum og björgun ökutækja. Félagið rekur einnig þjónustumiðstöð fyrir tjónaökutæki þar sem veitt er ahliða þjónusta í meðhöndlun tjónabifreiða og annarra bifreiða samkvæmt óskum viðskiptavina. Krókur býður m.a. uppá: • Starfsmenn sem eru þjálfaðir og reyndir í bíla- og tækjaflutningum Taktu Krók á leiðarenda Vesturhraun 5 210 Garðabær á þinni leið 12 BÍ L A BL A ÐI Ð 5. október 2022 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.