Íslenzk fyndni - 01.06.1957, Síða 7
5
6.
pÉTUR MAGNtJSSON ráðherra keypti árlega kartöfl-
ur af karli einum á Akranesi. Þeir voru báðir Mýra-
menn og kunningjar.
Pétur komst að því, að karlinn seldi honum kartöflu-
pokann 5 krónum hærra verði en öðrum, og hafði orð
á því við hann.
Þá sagði karlinn:
„Til hvers er að eiga vini, ef maður hefur ekki eitt-
hvert gagn af þeim?“
7-
QEIR RÓNDI I ESKIHLÍÐ auglýsti eitt sinn eftir
eldhússtúlku.
öldruð kona bauð sig fram. Geir óskaði eftir, að hún
legði fram meðmæli, en konan færðist undan því.
Hann hringdi þvi til húsfreyjunnar, sem kona þessi
hafði verið hjá, og svaraði hún fyrirspurnum hans á
þessa leið:
„Jú, hún er mjög hentug í matsöluhúsi. Ég man
ekki eftir, að neinn kostgangari bæði um á diskinn
aftur, meðan hún var eldhússtúlka hjá mér“.
8.
§R. VIGFtJS GUTTORMSSON i Ási spurði eitt sinn
ham að þvi, hvort guð reiddist.
Bamið svaraði því játandi.
Þá sagði prestur:
„Á, er það svo, fýkur í hann?“
L