Íslenzk fyndni - 01.06.1957, Page 23

Íslenzk fyndni - 01.06.1957, Page 23
Sumar eitt strauk Kristján frá Kotvogi. Dauðaleit var gerð að honum, en hann fannst ekki. Tíu dögum eftir hvarf Kristjáns kom Sæmundur á Járngerðarstöðmn að Kotvogi, en þar var þá Símon staddur sem oftar. Sæmundur segist hafa fundið Kristján á Höskuldar- völlum, en svo heitir afréttarland suðaustur af Keili, og hafi hann verið að dauða kominn af vosbúð og hungri. Þá varð Símoni að orði: „Nú, hann var þó kominn í haglendið". 46. glMON var einu sinni á ferð í Höfnum með tvær merar og var að kría sér út fiskæti á þær. Hann kom þar á ríkisheimili, en húsfreyjan þar hafði mikinn herðakistil og kryppu á baki. Simoni er nú borinn matur, en húsfreyja fer út, sér hryssur hans og segir við Símon, þegar hún kemur inn: „Bölvuð skömm er að sjá merarnar þínar, Símon, báðar meiddar og horaðar“. „Og læt ég það nú vera, kona góð“, segir þá Símon. „Ekki eru þær þó famar að setja upp kryppuna ennþá“. 47- SlMON reri eina vertíð hjá hálfbróður sínum, Vil- hjálmi á Stóra-Hólmi í Leiru, og fékk 600 í hlut. Eftir vertiðina fór Símon að verka fiskinn í sjónum fyrir neðan Stóra-Hólm. Að venju fór hann að engu óðslega og var í viku að vaska. Ekki nennti hann að

x

Íslenzk fyndni

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslenzk fyndni
https://timarit.is/publication/1701

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.