Íslenzk fyndni - 01.06.1957, Side 25
23
Á leiðinni austur mætir Símon kunningja sínum,
sem spyr hann, hvert hann sé að fara.
Þá segir Símon:
„Veiztu það ekki, að það er búið að veita mér
Þúfuna?“
50.
CjEINNA var byggður sérstakur kofi yfir þau hjónin.
Símon gekk löngum á milli góðbúanna og naut víða
vinsælda fyrir gott skap og orðheppni.
Þegar Símon kvaddi húsbónda einn, sem hann hafði
heimsótt að sumarlagi, sagði bóndi:
„Hvenær heldurðu, að þú sjáist næst, Símon minn?“
„Ætli það geti orðið fyrr en í haust, þegar allar
annir eru úti“, svaraði Símon.
51-
§ÍMONI var lagt af sveitinni nokkur fiskvirði í
hverjiun stað, eins og þá tíðkaðist.
Þegar hann var að innheimta þetta, sagði hann oft
við húsbænduma:
„Hér er kominn Símon kóngur að heimta skatt af
þegnum sínum“.
52.
glMON reið eitt sinn niður í Landeyjasand til að
snikja sér í soðið, því að þá var þar útræði all-
mikið.
Hann hitti svo á, að Ölafur formaður í Tungu var
að lenda með góðan afla.
Ölafur var ríkur maður, en talinn aðsjáll.