Íslenzk fyndni - 01.06.1957, Page 26

Íslenzk fyndni - 01.06.1957, Page 26
24 Símon ber nú upp erindið, og Ölafur réttir honrnn litla ýsu. Simoni mun ekki hafa þótt gjöfin rausnarleg, þvi að hann sagði: „Á hausinn að fylgja, Ólafur minn?“ 53- CjíMON hafði um eitt skeið afnot af koti og heyjaði þar fyrir meri, sem hann notaði til suðurferða. Aðr- ar skepnur hafði hann ekki. Hann var einu sinni í sláttulokin að mæna smálön bak við kotið, og var það knapplega hestfóður. Þórdís, kona Símonar, rétti honum heyið upp, en þótti lítil heyin og þusaði mjög yfir ómennsku hans við heyskapinn. Símon þegir lengi, þangað til hann kallar: „Er logn á jörðu, Þórdís?“ 54- glMON kom einu sinni á bæ á lánshesti, og var jörð frosin, en hesturinn flatjámaður. Þegar Símon reið úr hlaði, skrikaði hesturinn. Strákur, sem hjá stóð, sagði: „Skriplar hann nú, sá skjótti?“ „Ójá“, svaraði Símon, „honum var komið fyrir hjá mér til að læra að skrifa". 55- CjÍMON gisti einu sinni í Þorlákshöfn hjá Jóni bónda Ámasyni og konu hans, Jórunni Sigurðardóttur frá Skúmsstöðum í Landeyjmn.

x

Íslenzk fyndni

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslenzk fyndni
https://timarit.is/publication/1701

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.