Íslenzk fyndni - 01.06.1957, Síða 27
25
Sigurður, faðir húsfreyju, var þá einnig staddur í
Þorlákshöfn, og voru þeir samnátta.
Símon var gangandi, en Sigurður með marga hesta
til reiðar.
Um morguninn býður Sigurður Símoni að reiða
hann heimleiðis, og þiggur hann það.
Þegar þeir leggja af stað, segir Símon:
„Hérna sjáið þið ríða lir hlaði Landeyja-höfðingj-
ana tvo, Sigurð Magnússon dannebrogsmann á Skúms-
stöðum og Símon Sigurðsson stórbónda í Yztakoti“.
56.
gÍMON kom einhverju sinni að Skúmsstöðum í Land-
eyjum.
Ragnhildur húsfreyja bar honum mat, en gleymdi
að láta hníf hjá honum.
Símon matast nú, snýr sér síðan að Ragnhildi og
segir:
„Ég þakka þér nú fyrir matinn, Ragnhildur mín, en
það var mildi, að ég drap mig ekki á hnífnum“.
57-
glMON hitti eitt sinn mann á förnum vegi og bauð
honmn að súpa á brennivíni úr potttunnu, sem hann
var með.
Símoni þótti hann taka riflega til brennivínsins og
sagði með hægð:
„Þú gerir svo vel að skyrpa út úr þér gjörðunum".